Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Page 29
DV Lífíð
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006 29
Söngleikurinn Á tjá og tundri hefur vakið góðar viðtökur en hann er sýndur í Aust-
urbæ. Stjarna söngleiksins Friðrik Dór Jónsson kippir svo sannarlega í kynið því
ekki er langt síðan systkini hans, þau Jón Ragnar Jónsson og Hanna Borg Jónsdótt-
ir, slógu í gegn í uppfærslu á Sólsting á sínum tima.
„Þegarhanrt
var að fara
yfirrennslið
hjá okkur, þá
varhann eig-
inlega bara
með utppi-
stand,"
„Eg leik sem sagt brúðgumann í
brúðkaupinu sínu, hann heitir
Hans Hannesson og er sonur auð-
mannsins Hannesar Hanssonar.
Allt virðist vera í blóma hjá unga
manninum en svo kemur eitthvað
allt annað upp á daginn,“ segir Frið-
rik Dór Jónsson verslunarskóla-
nemi úr Hafnarflrði en hann leikur
annað aðalhlutverkanna í söngleik
Verslunarskólans, Á tjá og tundri.
Leikur á móti kærustunni
„Það var virkilega gaman að fá
að vinna með leikstjóranum Gunn-
ari Helgasyni, hann er hress karl og
kann sitt fag algerlega. Það var alltaf
sérstaklega gaman í nótum þegar
hann var að fara yfir rennslið hjá
okkur, þá var hann eiginlega bara
með uppistand sem var æðislega
skemmtileg tilbreyting," segir Frið-
rik ánægður með sýninguna. Frið-
rik leikur aðalhlutverkið á móti
kærustu sinni, Hólmfríði Björns-
dóttur, en hún leikur brúði Hans
sem Friðrik túlkar.
„Það gengur mjög vel að vinna
með Hólmfríði," segir Friðrik að-
spurður um hvort sambandið auð-
veldi ekki vinnuna við söngleikinn.
Þau Friðrik og Hólmfríður þykja
einkar glæsilegt par og taka sig vel
út saman á sviðinu.
Leiklistin í blóðinu
„Þetta er búið að vera svolítið
strembið en er allt í lagi núna, þetta
hefur verið óvenjugott æfingaferli
svona miðað við undanfarin ár,
skilst mér,“ segir Friðrik og bætir
við að hann vonist eftir að söngleik-
urinn vekji lukku meðal áhorfenda.
Friðrik Dór er svo sannarlega
ekki sá eini í fjölskyldunni sem fallið
hefur fyrir leiklistargyðjunni því
systkini hans, tvíburarnir Jón Ragn-
ar Jónsson og Hanna Borg Jónsdótt-
ir léku bæði stór hlutverk í söng-
leiknum Sólsting og Jón Ragnar fór
með aðalhlutverk í Slappaðu af.
„Þau stóðu sig vel á sínum tíma
og ég vona að ég geri það líka,“ seg-
ir Friðrik og hlær þegar blaðamaður
spyr hvort leiklistarbakterían
streymi um. æðar fjölskyldumeð-
limanna í Hafnarfirðinum.
„Kannski er þetta eitthvað í
blóðinu á okkur, ég veit það ekki, en
mér finnst þetta mjög gaman."
Hefur gaman af söngnum
„Ég veit ekki hvort ég ætla að
gera þetta að framtíðarstarfi, það
má vel vera en söngurinn kallar
svona meira á mig og það er frekar
ástæðan fyrir því að ég er í þessum
söngleik," segir Friðrik Dór
ánægður með afrakstur æfinganna í
vetur. „Samt finnst mér mjög
gaman að leika líka," bætir hann
við. Það verður gaman að fylgjast
með þessum unga manni í framtíð-
inni og næsta víst að hann mun láta
mikið að sér kveða þegar fram líða
stundir.
brynjab@dv.is
Hljómsveitin Benny Crespo’s Gang hefur verið tilnefnd til tónlistarverð-
launa X-FM. Athygli vekur að þau hafa ekki verið með lag i spilun á stöð-
inni heldur vakið athygli á þeim tónleikum sem hún hefur komið fram á.
Tilnefnd sem nýliðar ársins
„Við erum búin að vera að spila
á tónleikum á fullu og höfum
skapað okkur gott orðspor þannig,"
segir Helgi Rúnar Gunnarsson
söngvari og gítarleikari í hljóm-
sveitinni Benny Crespo’s Gang.
Hljómsveitin hefur verið tilnefnd til
tónlistarverðlauna útvarpsstöðvar-
innar X-FM, sem nýliðar ársins.
Það vekur athygli vegna þess að
hljómsveitin hefur ekki ennþá
verið með lág í spilun á stöðinni, en
þykir samt hafa sannað ágæti sitt
nógu mikið til að vera tilnefnd.
„Þeir á X-FM eru reyndar með lag
frá okkur núna, en við eigum bara
eftir að fá tíma í masteringu og svo
fer það í spilun," segir Helgi.
„Hljómsveitin var stofnuð á Sel-
fossi í september 2003. Við erum
þrír strákar frá Selfossi og ein stelpa
sem er frá Reykjavík." Ásamt Helga
eru í hljómsveitinni Magnús Árni
0der Kristinsson, Björn Sigmundur
Kristinsson og Lovísa Elísabet Sig-
urðardóttir.
„Við erum að taka upp plötu
Helgi Rúnar Gunnarsson
Singur og spilar á gítar í Benny
Crespo's Gang.
núna." Helgi segir að þau geri plöt-
una alveg sjálf og séu ekki með út-
gáfufyrirtæki. „Vonandi kemurhún
út seint í vor, eða þá snemma í
sumar."
Hljómsveitin hefur verið dugleg
við að spila á tónleikum og gerði
meðal annars góða hluti á Airwa-
ves-hátíðinni. „Við erum að fara
Hvernig var.
Kjarvalsstofa í París
„Við Sigrún erum
búin að vera hérna
í viku og verðum í
tvo mánuði í við-
bót. Svaka fínt.
París er málið. Ég
er að skrifa hand-
rit. Segi ekki meir.
Ðennis Rodman á
Yello?
Mörgum brá í brún þegar pelsklæddur
maður með Von Dutch-húfu á höfði
gekk inn á skemmtistaðinn Yello í Kefla-
vík þarsíðustu helgi og hóldu margir að
þar væri á ferðinni körfuboltamaðurinn
villti Dennis Rodman. Sagan fór eins og
eldur í sinu um Brtlabæinn að Dennis
hefði millilent hér á landi og hefði farið
út að skemmta sér í millitíðinni. Þegar
allt kom til alls var þetta ekki Dennis
Rodman heldur óþekktur Reykvíkingur
dulbúinn í gervi kappans.
Þeir félagar Óli Geir og Jói
sem eru umsjónarmenn
sjónvarpsþáttarins Splash '
á Sirkus tóku viðtal við
kappann sem þótti flottur.
Skráning í Freestyle-
keppniTónabæjar
hafin
Skráning í Freestyle-danskeppni Tóna-
bæjar hófst þann 1. febrúar síðastliðinn
og mun skráningin standa yfir fram til
10. febrúar. Keppnin er fyrir alla ung-
linga fædda '89-'92. Þessi keppni er sú
25. í röðinni og ennþá eru vinsældir
hennar meðal unglinga þjóðarinnar
gríðarlegar. Keppt er bæði í einstak-
lingskeppni og í hópdansi en í keppn-
inni hafa orðið til margar af söngleikja-
stjörnum þjóðarinnar.
Ásdís Rán
leitarað næsta
bikinímódeli
Ásdís Rán Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri fyrirsætuskrifstofunnar Model.is,
hefur nú hafið leitina að næsta bikiní-
módeli ársins en á hverju ári sendir ís-
land þá stúlku til þess að keppa fyrir (s-
lands hönd í Miss Hawaiian Tropic-
keppninni sem haldin er í Las Vegas.
Matthildur Magnúsdóttir sem fór síðast
til Vegas að keppa fyrir hönd fslendinga
náði fínum árangri í fyrra en Ásdís von-
ast til að stúlkan í ár nái enn lengra.
spila á Gauknum á fimmtudaginn
með hljómsveitunum Ókind og
Telepathetics. Svo verðum við líka í
Norðurkjallara MH 15. febrúar
ásamt I Adapt og Fighting Shit."
Það er sem sagt nóg um að vera hjá
þessari efnilegu hljómsveit og
verður spennandi að sjá hvernig
þeim vegnar á næstu misserum.