Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2006, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2006
Menning DV
Hjónahjálp á bók
Sr. Þórhallur Heimisson hefur um árabil haidiö
hjóna og paranámskeið, „jákvætt námskeið um ,
hjónaband og sambúð'' sem hafa notið mikilla j
vinsælda. Námskeiðin hafa verið haldin um ailt
land og í Noregi, en þau fara reglulega fram í Hafn-j t
arfjarðarkirkju. | f
Vegna mikillar aösóknar hefur reynst erfitt að /
koma ölium að sem vilja sækja námskeiðin. Því (
hafa sr. Þórhallur og JPV útgáfa gengið frá samningi
um gerð bókar sem byggir á námskeiðunum. Vinnu
heiti bókarinnar er 10 leiðir til að viðhaida ástinni
og hamingjunni í hjónabandi. í hverjum kafla er i
tekin fyrir ein leið til að styrkja og efla ein-
staklinginn, fjölskylduna og sainbúðina
Bókin kernur út í haust. f
'I
A
Æáíá/
Fiskurinn hefur
fögur hljóð
Veffyrirtækið Tónlist.is ætlar
að hasla sér völl í gegnum nýtt
útgáfufélag, cod music. Tólf til
fimmtán flytjendur fá tækifæri til
að hljóðrita við bestu aðstæður
og verður efninu fylgt eftir í út-
gáfú og öflugri markaðssetningu.
Tónlistin verður aðeins gefin út
sem niðurhal á Netinu og í far-
síma til að byrja með. Ef sýnt
þykir að ákveðnir flytjendur hafi
gott efni fram að færa sem líklegt
er að nái hylli verður farið í út-
gáfi á geisladiskum í framhald-
inu.
Frosti Logason (Frosti í Mín-
us) er verkefnastjóri og mun
ásamt tónlistarráði velja tilvon-
andi flytjendur. Gert er ráð fyrir
að a.m.k. 6 flytjendur verði vald-
ir til áframhaddandi vinnslu og
afraksturinn gefinn út á veftium.
Einu skilyrðin fyrir þátttöku
eru þau að viðkomandi flytji eig-
ið efni. Ekki er einblínt á ákveð-
nar tónlistarstefnur en þó er
frekar leitað eftir ungum flytj-
endum sem hafa eitthvað fram
að færa tónlistarlega og eru lík-
legir til að ná hylli.
Nánari upplýsingar er að
finna á www.tonlist.is og á vef-
síðunni www.cod.is.
Davíð í Gelinu
Davíð örn Halldórsson Ham-
ar er ungur og flinkur mynd-
listarmaður sem opnar sýningu á
föstudag. Sýningarstaðurinn er
Gallerí Gel sem er á Hverfisgötu
37. Opnunin verður með hátíð-
legra móti: Þar spila Auxpan og
Árni +1. Sýninguna kallar Davíð
Salon salon - málverkasýning.
Hann er búinn að mála mottur á
gólfið eins og hann gerði reyndar
á grasrótarsýningu á Nýló fýrir
skemmstu.
Sinfónían tekur þátt í Myrkum músíkdögum með tvennum tónleikum á
fimmtudagskvöld og laugardag. Fyrra kvöldið verða flutt verk eftir íslensk tón-
skáld en á laugardag verða ungir einleikarar í forgrunni.
Félagar úr Sinfóní-
unni takast á við fs-
lensk hljómsvceitar-
verk á fimmtudag
Myrkir músíkdagar standa nú
sem hæst og á fimmtudag er kom-
ið til kasta Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands. Hún hefur jafnan lagt sitt til
á þessari uppskeruhátíð íslenskra
tónskálda. Að þessu sinni eru það
þeir Haraldur Vignir Sveinbjörns-
son, Þorkell Sigurbjörnsson, Eirík-
ur Árni Sigtryggsson og Þorsteinn
Hauksson sem eiga verk á tónleik-
unum sem verða á fimmtudags-
kvöldið. Þetta eru fyrri tónleikar af
tveimur sem Sinfónían leggur til
Myrkra músíkdaga í þetta 26. sinn
sem þeir eru haldnir og er rétt að
minna á sérstakt tvennutilboð á
þessa tónleika og síðan tónleika
ungra einleikara sem fara fram á
laugardag.
Sjö byltur svefnleysingjans
Um verkið Sjö byltur svefnleys-
ingjans segir höfundurinn, Harald-
ur Vignir Sveinbjömsson, að það
hafi að mestu orðið til á and-
vökunóttum veturinn 2002-2003
en á þeim tíma bjó hann í Lundi í
Svíþjóð. „Sjö tiltölulega stutt örstef
urðu til í svefnrofunum og rötuðu á
blað." Verkið var frumflutt opin-
berlega af Sinfóníuhljómsveit
Helsingjaborgar fýrir fullu húsi
snemma árs 2004 eftir að Haraldur
hlaut verðlaunin Tónskáld morg-
undagsins hjá sömu sveit. Harald-
ur var einnig tilnefndur til íslensku
tónlistarverðlaunanna 2004 fyrir
„bylturnar". Nú verða þær fluttar
fyrir vakandi eyrum.
Þrenjar Þorkells
Þorkell Sigurbjörnsson segir svo
frá sínu tilleggi í dagskrána: „Það
var snemma árs 1984, sem Einar
Grétar Sveinbjörnsson, konsert-
meistari í Malmö, bað mig um við-
ráðanlegan, lítinn konsert fýrir
fiðlu, selló og píanó og Sinfóníu-
hljómsveit áhugamanna í Lundi.
Það var auðsótt mál. Ég þekkti þá
Einar, cellistann, Guido Vecchi og
píanistann, Peter Ernst, af góðu
einu. Þeir frumfluttu verkið síð-
sumars 1984 með áðurnefndri
hljómsveit í Lundi undir stjórn
Kjell Áke Bjarming. Margir íslensk-
ir hljóðfæraleikarar kannast við
nafn Bjarming, sem stýrði árum
saman sumarnámskeiðum fyrir
unga norræna tónlistarmenn í
Lundi, með fjölda íslenskra þátt-
takenda. Ég kallaði verkið Þrenjar.
Það þýðir þríeggjað sverð. En því
fylgja engin skilyrði. Þríeggjað
sverð má vera eins beitt eða lúið
eins og verkast vill."
Sjöstirni
Eiríkur Árni Sigtryggsson var
að hugsa um himingeiminn og
okkur hér á jörðu: „Það er allt
auðvitað óskiljanlegt. Sjöstirnið
kom upp í hugann, og þar með
talan 7. Sjöundin, þetta spenn-
andi tónbil, sem breytist í tvíund
sé því snúið við. Verkið byggir á
sjöundinni og sjöundarhljómnum
í sínum mörgu myndum. Tónlist-
in og himingeimurinn þrungin
sömu óskiljanlegu dulúð."
Síðast á dagskránni er verkið
Sinfónía eitt eftir Þorsteinn
Hauksson. Tónsmíðum kynntist
hann í svokölluðum föndurtím-
um Þorkels Sigurbjörnssonar í
kringum 1970, en í þeim tímum
kynnti Þorkell nemendum sínum
allt það nýjasta sem var að gerast
í nútímatónlist.
Hljómsveitarstjóri á tónleikun-
um er Rumon Gamba.
Gamansöngleikur með glæp? Eða leikrit með söngvum og glæp? AHa vega konum.
Átta konur á svið
Æfingar eru hafnar á gamanleik
með söngvum, Átta konum, hjá
Þjóðleikhúsinu undir stjórn Eddu
Heiðrúnar Bachman. Verkið er eftir
Robert Thomas en fær á Hverfisgöt-
unni íslenska aðlögun hjá Sævari
Sigurgeirssyni sem semur líka söng-
texta. Verkið var frumsýnt 1961 en
gekk í endumýjun h'fdaga í vinsælli
franskri kvikmynd sem byggði á því.
Söguþráöurinn gæti verið stol-
inn frá Agöthu Christe: Þegar sjö
villtar konur eru samankomnar og
sú áttunda bætist í hópinn getur allt
gerst! Fögur eiginkona, tvær ungar
og óstýrilátar dætur, aðþrengd mág-
kona, gráðug tengdamamma, dul-
arfull ráðskona og kynþokkafull
þjónustustúlka eru innilokaðar í
glæsilegu húsi í sveit vegna ófærðar.
Húsbóndinn sjálfur liggur sofandi f
rúmi sínu uppi á lofti. Eða hvað?
Leikhúsið kaÚar verkið glæpsamleg-
an gamanleik með söngvum og
dansi.
Leikendur í Átta konum eru
Bima Hafstein, Edda Björg Eyjólfs-
dóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir,
en allar þrjár vom til skamms tíma í
framvarðarsveit ungra leikkvenna
hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Þá mætir
til leiks hinn ffábæri gamanleikari
Edda Heiðrún leikstýrir gam-
anleik með söng og dansi
og trúður Kristján Ingimarsson sem
gert hefur garðinn frægan í Dana-
veldi. Þekkt andlit af sviði Þjóðleik-
hússins em Margrét Guðmunds-
dóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir,
Nína Dögg Filippusdóttir, Ólafi'a
Hrönn Jónsdóttir og Ragnheiður
Steindórsdóttir.
Tónlistarstjóri er Samúel J. Sam-
úelsson, Kristján Ingimarsson sér
um sviðshreyfingar, búningar em í
höndum Elínar Eddu Ámadóhur,
um lýsingu sér Hörður Ágústsson,
höfundur ieikmyndar er Jón Axel
Bjömsson, aðstoðarmaður leik-
stjóra er Jóhanna Jónas en það er
Edda Heiðrún Backman sem leik-
stýrir og er frumsýning áætluð á
Stóra sviðinu í mars.