Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 31
Petrína Magnúsdóttir fæddist 21. aprfl ár-
ið 1911 að Hólum í Staðardal við Steingríms-
fjörð. Foreldrar hennar voru Kristín Arna-
dóttir og Magnús Steingrímsson.
Petrína stundaði nám í Alþýðuskólanum á
Hvítárbakka og árið 1938 fór hún í Hús-
mæðraskóiann á Lauglandi í Eyjafirði.
Petrína hóf starf sem talsímakona á sím-
stöðinni á Hólmavík árið 1943. Árið 1946 hóf
hún störf hjá Landssímanum í Reykjavík og
var skipuð talsímakona 1. janúar árið 1947.
Hún var skipuð varðstjóri hjá Langlínumið-
stöð Símstöðvarinnar í Reykjavík árið 1975
og gegndi því starfi þar til hún fór á eftir-
laun í júlí 1981. Hún tók þátt í félagsmálum
F.Í.S. og átti m.a. sæti í Félagsráði.
Petrína andaðist 20. mars sl.
Petrína Magnúsdóttir.
Um liti og litblindu
Það var ekki fyrr en árið 1666, þegar Is-
aac Newton fór að gera tilraunir með lit-
brigðin, að menn fóru að vita eitthvað um
liti. Það er sú vitneskja sem við höfum í
dag.
Litir hafa áhrif á líkamlegt og andlegt
ástand fólks og okkur er því nauðsynlegt að
þekkja okkar eigið litróf þótt ekki væri
nema til að auka á hamingju okkar og gleði.
Til að greina einn lit frá öðrum er þrennt
sem kemur til greina: Blæbrigðin, birtan og
mettun litarins.
Litblinda er það kallað ef ekki er hægt að
greina einn eða fleiri af þremur litum, græn-
um, rauðum og bláum. Litblinda getur ver-
ið fólgin í blindu á einn, tvo eða alla þessa
liti, rauðan, bláan og grænan. Litblinda á
rauðan lit er kallað Pratanopia, á grænan lit
Deuteranopia og á bláan lit Tritanopia.
Sá sem er rauð-blindur sér ekki mun á
rauðu og grænu, blá-blindur sér ekki mun á
bláu og gulu og græn-blindur sér ekki grænt
í litrófinu.
Litblinda er tuttugu sinnum algengari hjá
körlum en konum. Þetta er erfðaeiginleiki,
eða fötlun, eins og það er kallað í dag. Lit-
blindur faðir og normal móðir eiga dóttur
sem er með fulla litgreind, en hún ber samt
gallann með sér og dóttirin getur átt lit-
blindan son, en dóttur sem er með fulla lit-
greind, en ber áfram gallann.
Til þess að stúlka verði litblind verða báð-
ir foreldrar að vera litblindir.
Brot úr bókinni „Litirnir mínir“ (Colour me
beautiful) eftir Carole Jackson, sem út kom
1988 í þýðingu Ásthildar G. Steinsen.
Þakkir
Innilegar þakkir færi ég starfsfólki Pósts og sextugsafmæli mínu, þann 6. mars s.l.
síma og F.Í.S. fyrir góðar gjafir og óskir á Friðrik Lindberg
SÍMABLAÐIÐ 29