Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 10
í Fræðslunefnd F.Í.S. F.v.: Bergljót Sigfúsdóttir, Þorsteinn Óskarsson og Jette Jakobsdótt-
ir. f ræðustól er Ragnhildur Guðmundsdóttir að setja ráðstefnuna.
Ráðstefna
Félags íslenskra símamanna að Hótel Holiday Inn 20. apríl
Laugardaginn 20. apríl efndi Félag íslenskra símamanna til þjónusturáðstefnu fyrir fé-
lagsmenn og gesti þeirra á Hótel Holiday Inn. Ráðstefnan var opin öllum félagsmönnum.
Hún var fjölsótt. U.þ.b. 80 ráðstefnugestir voru auk gesta frá P.F.Í., F.H.P.S., A.S.Í. (raf-
eindav.) og félaga okkar í B.S.R.B.
Ráðstefnan stóð í fjóra tíma frá klukkan eitt til fimm. Á þessum fjórum tímum voru flutt
ellefu erindi auk setningarræðu o" ávarps, kórsöngs, kaffisamkvæmis og nál. klukkutíma
umræðu- og fyrirspurnaþáttar.
Fræðslunefndin gerði handbók fyrir ráðstefnuna. í þessari handbók eru upplýsingar sem
tengjast erindunum sem flutt voru. Handbókin er til á skrifstofu félagsins til dreifingar til
þeirra félagsmanna er þess óska. Einnig er ætlunin með þeirri frásögn af ráðstefnunni er
birtist hér á eftir í blaðinu, að vekja athygli félagsmanna á því hvar er að leita fróðleiks um
hina margvíslegu þætti er snerta félagsstarfsemi F.f.S.
Ráðstefnustjórar voru Jette Jakobsdóttir, Bergljót Sigfúsdóttir og Þorsteinn Óskarsson.
8 SÍMABLAÐIÐ