Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 38
4. gr.
Starfsmannaráð er ráðgefandi um þau mál, sem það tekur til meðferðar og gerir skriflegar tillögur eða umsögn
um þau mál til póst- og símamálastjóra. ráðið getur kallað starfsmenn Póst- og símamálastofnunar á sinn fund til
að fá upplýsingar um mál. Ef um er að ræða mál, sem snerta störf umdæma sem ekki eiga fulltrúa f starfsmanna-
ráði, skal leitað álits viðkomandi umdæmisstjóra.
Áður en starfsmannaráð tekur afstöðu til stöðuveitinga, skal að jafnaði leitað álits næsta yfirmanns þeirrar
stöðu sem um er að ræða.
5. gr.
Umræður á fundum ráðsins, er varða einstaka menn persónulega, skulu vera trúnaðarmál.
Reglur þessar eru hér með settar samkvæmt 10. gr. laga nr. 36/1977, um stjórn og starfrækslu póst- og símamála,
sbr. lög nr. 34/1987, til að öðlast þegar gildi og birtast til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
Jafnframt fellur úr gildi reglugerð nr. 5/1983.
Samgönguráðuneytið, 21. febrúar 1991
Steingrímur J. Sigfússon
Halldór S. Kristjánsson
Það ætti að vera bók yfir vit-
lausu númerin
Úr skólastíl
- lítil stúlka skrifar um drengi
Drengir eru herrar, en miklu minni en feður
þeirra.
Telpur eru ungfrúr, sem seinna verða
frökenar.
Guð skapaði fyrst Adam, leit á hann og
sagði: „Ég held mér tækist betur, ef ég
reyndi aftur.“ Og þá skapaði hann konuna,
sem hann nefndi Evu.
Guð var miklu ánægðari með hana en
Adam, og þess vegna eru konurnar margfalt
fleiri en karlmennirnir.
Drengir eru hræðilegir. Ég á tvo bræður,
sem báðir eru drengir. Og þeir eyða öllu,
nema sápu, og það gera víst allir drengir.
Ég vildi óska, að helmingur allra drengja
væru telpur og hinn helmingurinn brúður.
Pabbi minn er svo fjarskalega elskulegur,
að ég held áreiðanlega, að hann hafi verið
telpa þegar hann var lítill.
36 SÍMABLAÐIÐ