Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 37

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 37
REGLUGERÐ um starfsmannaráð Póst- og símamálastofnunarinnar 1. gr. Hjá Póst- og símamálastofnun skal vera starfsmannaráð skipað á eftirfarandi hátt: a) Framkvæmdastjórar aðaldeilda Póst- og símamálastofnunar (fjármáladeild, tæknideild, umsýsludeild og við- skiptadeild) og umdæmisstjóri í Umdæmi I. Auk þess einn samkvæmt tilnefningu póst- og símamálastjóra. b) Formaður Félags íslenskra símamanna og einn fulltrúi tilnefndur af félaginu. c) Formaður Póstmannafélags Islands og einn fulltrúi tilnefndur af félaginu. d) Formaður Félags háskólamenntaðra póst- og símamanna. e) Fulltrúi félaga innan stofnunarinnar í ASI skal eiga þess kost að mæta á fundum ráðsins með málfrelsi, tillögu- og atkvæðisrétt, þegar fjallað er um stöður innan ASI 2. gr. Starfsmannaráð kýs sér formann til eins árs í senn úr hópi fulltrúa stjórnenda Póst- og símamálastofnunar. For- menn Félags ísl. símamanna og Póstmannafélags íslands skulu gegna stöðu varaformanns til skiptis eitt ár í senn. Starfsmannaráð kýs sér ennfremur ritara og vararitara. Falli atkvæðin jöfn ræður atkvæði formanns úrslitum. Starfsmannaráð skal halda fund minnst einu sinni í mánuði. Starfsmannaráð getur ákveðið fasta fundardaga og haldið aukafundi eftir því sem þörf krefur, svo og ef a.m.k. þrír atkvæðisbærir ráðsmenn krefjast. Formaður boðar fundi með dagskrá og stjórnar þeim. Fundir eru álykt- unarbærir, ef 8 ráðsmennn eru mættir, enda hafi allir verið boðaðir. Að jafnaði skal ekki afgreiða mál, er heyra undir einhvern fulltrúa stofnunarinnar í ráðinu, að honum fjarstöddum, né heldur mál er varða starfsfólk að fjar- stöddum fulltrúum viðkomandi félags. Halda skal gjörðabók, þar sem fundarefni og afgreiðsla mála er skráð. Ef ráðið er ekki sammála hafa einstakir ráðsmenn rétt á að fá bókuð stutt efnisleg sérálit. Afgreiðsla mála og sérálit skulu jafnan fylgja til þess aðila, sem fær málið til endanlegrar afgreiðslu. Allir fundarmenn skulu undirrita fundargerð. 3. gr. Starfsmannaráð fjallar um þau mál, er varða launakjör og starfsaðstöðu starfsfólks, skipun, setningu og ráðn- ingu í stöður, niðurlagningu á stöðum, frávikningu, menntunakröfur og önnur skilyrði til starfa, nýjar stöðuveit- ingar, svo og önnur mál, er varða hagsmuni einstakra starfsmanna, starfshópa og stofnunarinnar, svo sem aðgerð- ir sem kunna að fela í sér almenna röskun á atvinnuöryggi og högum starfsfólks, hvort sem slík mál berast frá póst- og símamálastjóra eða einstakir ráðsmenn bera þau fram. Starfsmannaráð skal fjalla um tillögur og hugmyndir starfsmanna um aðbúnað, öryggi og hollustuhætti á vinnu- stað. Jafnframt skal kynna í ráðinu allar meiriháttar breytingar á skipulagi stofnunarinnar. Skal að jafnaði kynna málin með dagskrá. Póst- og símamálastjóri skal boða starfsmannaráð á fundi þá, sem hann heldur með framkvæmdastjórum aðal- deilda og umdæmisstjórum sbr. 8. gr. laga um stjórn og starfrækslu póst- og símamála nr. 36/1977, sbr. lög nr. 34/ 1987. Skal þar leggja fram, skýra og ræða rekstrar- og framkvæmdaáætlanir stofnunarinnar, svo og ársreikninga og fjárhagsstöðu, og annað er varðar meginstefnumál og verkefni stofnunarinnar. Leitast skal við að auka áhuga starfsfólksins á því að gefa ráðinu ábendingar um það sem betur mætti fara og gera tillögur til úrbóta og senda þær starfsmannaráði. Skal ráðið auglýsa eftir slíkum ábendingum eigi sjaldnar en einu sinni á ári. Póst- og símamálastjóri veitir starfsmönnum viðurkenningur fyrir slíkar tillögur, eftir ábendingu starfsmanna- ráðs. SÍMABLAÐIÐ 35

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.