Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 27
Á tali í Feneyjum. F.v.: Sigríður E., Sara og Sigríður J.
andi. Ókum við yfir Appennínafjöllin til
hins sögufræga og fallega héraðs Toskanna,
á leið til Flórens sem stendur við ána Arno.
A leiðinni var áð í myndrænu fjallaþorpi, er
nefnist Benedicta, og snætt eitt það besta
„Lasagne“ sem áðurnefndar hafa bragðað á
lífsleiðinni.
í Flórens var allt það markverðasta skoð-
að, þ.á m. Ufisisafnið, styttan af Davíð,
Dómkirkjan, Kapella Jóhannesar skírara,
þar sem sjá mátti hurð eina stórfenglega úr
skíra gulli og tók 27 ár að fullgera hana.
Síðast en ekki síst gengum við á Gullbrúnni
(Ponte Vecchio). Þar var úrvalið af skart-
gripum svo yfirþyrmandi að við áttum í erf-
iðleikum með að hemja okkur !!!
Frá Flórens var haldið til Písa þar sem
skakki turninn var að sjálfsögðu þungamiðj-
an! Að síðbúnum kvöldverði loknum var
þotið af stað eftir hraðbraut í fjóran og hálf-
an tíma aftur til hótelsins. Það voru þreyttar
en ánægðar símakonur sem renndu í hlað
klukkan þrjú um nóttina að Handy See
íbúðablokkinni í Porto Verde.
Einn dagur var notaður til að litast um í
fríríkinu San Marino sem er elsta og
minnsta lýðveldi í heimi. San Marino stend-
ur á Títanfjalli með stórkostlegu útsýni yfir
Adríahafsströndina.
Eftir vikudvöl í Porto Verde lá leiðin eftir
austurströnd Ítalíu til Feneyja. Var komið
við í nokkrum borgum á leiðinni, þ.á m.
Ravenna.
Feneyjar eru ógleymanlegar. Þær eru
byggðar á 118 litlum eyjum, aðskildum með
þröngum síkjum. Borgin er svo sérstök á
allan hátt að það er lífsreynsla að dveljast
þar og skynja andrúmsloft hennar. Fyrsta
kvöldið sigldum við á „vatnastrætó“ til
Markúsartorgsins, en við gistum á eyjunni
Lído. A torginu var fjöldi hljómsveita sem
hver lék sína tónlistartegund. Fyrir valinu
varð að setjast niður á sérstaklega róman-
tískum stað fyrir framan Hertogahöllina,
þar sem jasstónlist var spiluð. Attum við
þarna afar ljúfa kvöldstund saman. Þar sem
verðlag í Feneyjum er hátt, fengum við okk-
ur ódýrasta vínið sem boðið var uppá,
nefnilega Campari! I Feneyjum var margt
að skoða og má þar til dæmis nefna Mark-
úsarkirkjuna og áðurnefnda Hertogahöll.
Austurríki skoðað
Austurríki var næsti áfangastaður. Gist var í
litlu þorpi í Suður-Austurríki sem heitir
Mittertrixen. Þar býr Arna, systurdóttir
Söru, í u.þ.b. 300 ára gömlu húsi. Sara gist
hjá Örnu og manni hennar, en við hinar í
eina gistihúsi staðarins sem einnig hýsti
þorpskrána. Var afar notalegt að koma
þangað á kvöldin og þiggja heimabruggað
SÍMABLAÐIÐ 25