Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 7

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 7
Kaupmáttur, vísitala, viðskiptakjör, öll þessi atriði hafa veruleg áhrif á kaup, kjör og lífsafkomuna í heild. I samningunum sem undirritaðir voru í febrúar 1990 og í daglegu tali eru nefndir þjóðarsátt, varð samkomulag um að samningsaðilar skipi sérstaka launanefnd með 2 fulltrúum til- nefndum af B.S.R.B. og 2 fulltrúum til- nefndum af fjármálaráðherra. Nefndin skal fylgjast með breytingum verðlags og kaup- máttar, þróun viðskiptakjara og útflutnings- tekna og efnahagsmála almennt á gildistíma samningsins með hliðsjón af forsendum þessa samnings. Launanefndin skal sérstak- lega fylgjast með þróun framfærsluvísitölu og meta ástæður til launahækkana fari verð- hækkanir fram úr viðmiðunarmörkum samningsins í maí og sept. 1990 og í maí 1991, að teknu tilliti til breytinga á við- skiptakjörum. í nóvember 1990 skal nefndin endurskoða megin forsendur samningsins fyrir síðari hluta samningstímans. I septem- ber varð breyting á framfærsluvísitölu og hækkuðu laun þá lítillega eða 0,27% frá 1. október. í nóvember fór fram endurskoðun samkvæmt ákvæðum 7. gr. kjarasamnings og varð niðurstaða að endurskoðun lokinni sú að til viðbótar umsaminni 2% iauna- hækkun 1. desember komi 0,55% hækkun frá sama tíma. í nóvember var einnig sam- þykkt að viðskiptakjörin yrðu sérstaklega skoðuð í febrúar. Niðurstaða launanefndar- innar í febrúar varð sú að laun hækkuðu um 2,8% í mars 1991 í stað 2,5% eins og samn- ingar kveða á um. Núgildandi kjarasamningur rennur sitt skeið á enda 31. ágúst nk. Fundir í sam- starfsnefnd hafa verið tæplega einu sinni í mánuði og hefur gengið treglega að fá úr- lausn þeirra mála sem lögð hafa verið fyrir á þeim vettvangi. SAMKOMULAG UM BREYTING- AR Á KAFLA UM SLYSATRYGG- INGAR 21. maí 1990 var undirritað samkomulag um breytingar á kafla um slysatryggingar milli F.I.S. og fjármálaráðherra f.h. ríkis- sjóðs og falla þar með úr gildi allar greinar í kafla 7.1, slysatryggingar í kjarasamningi aðila. í samkomulaginu kveður svo á um að starfsmenn skuli slysatryggðir allan sólar- hringinn. Tryggingarfjárhæðir miðast við vísitölu framfærslukostnaðar í apríl 1989, 119,9 stig. Við uppgjör bóta skal framreikna fjárhæð miðað við þær breytingar sem orðið hafa á vísitölu framfærslukostnaðar frá apríl 1989 til uppgjörsmánaðar. SVEIGJANLEGUR VINNUTÍMI Gamalt baráttumál F.Í.S. hefur náð fram að ganga. Undirritað var samkomulag um sveigjanlegan vinnutíma 24. október 1990 þar sem m.a. kom fram eftirfarandi: „Þar sem því verður við komið, vegna þeirrar starfsemi sem fram fer á hverjum vinnustað eða starfsdeild, verður sveigjan- legur vinnutími heimilaður frá og með 1. nóvember 1990. Heimild þessi er veitt til sex mánaða og verður að þeim tíma liðnum endurskoðuð. Yfirmaður hverrar deildar þarf að tilkynna Starfsmannadeild skriflega ef fyrirhugað er að taka upp sveigjanlegan vinnutíma.“ STARFSRÉTTINDI OG ÖNNUR RÉTTINDI Að undanförnu hefur komist í hámæli ásókn rafverktaka í störf símamanna og hafa rafverktakar beitt ýmsum ráðum til að útiloka símamenn frá vinnu. Það hefur ver- ið verkefni símamanna (samheiti yfir þá sem hafa rétt til að vinna við símakerfi) að vinna við uppsetningu síma og símakerfa allt síðan norskir símamenn símvæddu ís- land og kenndu íslendingum fagið, eins og segir til um í núgildandi lögum og reglum um starfsréttindi þessarar stéttar á óvéfengj- anlegan hátt. Það hefur verið hlutverk raf- virkjameistara að annast píuplagnir fyrir rafmagn. Þeir hafa löngum rennt hýru auga til starfa símamanna, sérstaklega hefur kveðið rammt að þessu þegar samdráttur hefur orðið á vinnumarkaðinum eins og árin 1967 og 1968 svo og nú. Þegar breytt var reglum um innflutning og sölu símtækja sl. áratug reyndu rafverktakar aftur að láta að sér kveða í sambandi við smástraum og aðrar SÍMABLAÐIÐ 5

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.