Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 4
Leiðari
Blómleg félagsstarfsemi og viðburðaríkt vor
Að undanförnu hefur hver viðburöurinn á fætur öðrum rekið á fjörur símamanna. Þar
má nefna nýja reglugerð um starfsmannaráð og nýja reglugerð um starfrækslu Pósts og
síma. B.S.R.B. þing er á næstu grösum og samningar í haust.
Félagslífið hefur verið með miklum blóma. Á kjördag 20. apríl gekkst félagið fyrir fjöl-
mennri ráðstefnu og aðalfundur var haldinn í vor þar sem tryggð var afkoma félagsins.
Fundir hafa verið haldnir í deildum þar sem mætt hefur allt að helmingur félagsmanna. Fé-
lagslegur áhugi hefur löngum verið einkenni símamanna og er það enn í ríkum mæli.
Ný reglugerð um starfsmannaráð var gefin út 21. febrúar. Helsta breyting frá fyrri reglu-
gerð er að póstmenn fá nú tvo fulltrúa í ráðinu með atkvæðisrétt (eins og Símamenn). Há-
skólaborgarar fá nú atkvæðisrétt handa sínum fulltrúa. Áður höfðu þeir atkvæðisrétt í mál-
efnum sem snertu þá sérstaklega. A.S.f. félagar fá nú sambærilegan rétt og háskólamenn
höfðu fyrir þessa breytingu og póst- og símamálastjóri tilnefnir sinn fulltrúa í ráðið.
f nýja ráðinu munu fulltrúar símamanna leggja vaxandi áherslu á að ráðið fjalli um
launakjör og starfsaðstöðu fólks eins og reglur um ráðið gera ráð fyrir. Símamenn hafa flutt
tillögur um þetta efni og munu fylgja þeim eftir. Reglugerðin er birt hér í heild í hlaðinu.
Þann 1. maí tók gildi ný reglugerð um Póst og síma. Þar eru nokkrar breytingar frá því
sem var. Umdæmin sem áður voru fjögur verða nú sex að tölu. Reykjavíkursvæðið verður
nú tvö umdæmi, símaumdæmi (umdæmi 5) og póstumdæmi (umdæmi 6). Fjarskiptaeftirlit
og tegundaprófanir notendabúnaðar eru fluttar frá Pósti og síma. Reglugerðin er birt hér í
blaðinu.
Félag íslenskra símamanna mur fylgjast með því hvernig þessar skipulagsbreytingar eru
framkvæmdar. Hvort farið er efti læfni eða skólagöngu einvöröungu þegar menn eru settir
til ábyrgöar og stjórnunar í hinu nýja skipulagi.
Félag íslenskra símamanna sér fyllstu ástæðu til að hvetja stjórnvöld ríkisins og Pósts og
síma til að skipta starfsfólki ekki í tvo hópa - háskólagengna og hina. Sérstaka athygli vekj-
um við á þessu þegar ákvörðun er tekin um kaup og kjör, hlunnindi, menntun á námskeið-
um og kynnisferðum hérlendis og erlendis er að gagni má koma fyrir einstaklinginn og fyrir-
tækið í heild.
2 SfMABLAÐIÐ