Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 14

Símablaðið - 01.05.1991, Blaðsíða 14
Grétar Guömundsson. farið á námskeið hérlendis og erlendis og til þess væri m.a. hægt að fá stuðning úr menn- ingar- og kynningarsjóði. Auk þessa stendur sjóðurinn á bak við útgáfu Símablaðsins. Grétar nefndi nokkur dæmi um styrki úr sjóðnum svo sem þegar FÍS-konur fóru á „Nordisk Forum“, stuðningur við líkams- rækt, íþróttaiðkanir félagsmanna og margt, margt fleira. Símakórinn er styrktur af sjóðnum. Flann vísaði til upplýsinga varð- andi sjóðinn í handbókinni. Ragnhildur Guðmundsdóttir sagði frá menntunarmöguleikum innan Póst og síma- skólans umfram fast nám í skólanum. Hún sagði frá breytingum á námi talsímavarða og skrifstofumanna. Hún sagði frá tölvu- námskeiðum, tungumálanámskeiðum, rit- vinnslunámskeiðum og fl. og fl. Stöðvar- stjórar fara á stjórnunarnámskeið og fá tækifæri til að fylgjast með allri þróun í sam- bandi við reikningagerð. Endurmenntunar- námskeið eru farin í gang hjá tæknimönn- um. Tvö námskeið voru í vor og mörg nám- skeið verða í haust. Verið er að endurskoða símritanám. Því verður breytt þannig að það falli betur að nýrri tækni og auki mögu- leika til framhaldsnáms á tæknisviði. Ragnhildur hvatti til þess að fólk notaði sér þá möguleika til menntunar sem hér hefði verið lýst og nýtti sér þann stuðning 12 SÍMABLAÐIÐ Sigríöur Jóhannsdóttir. sem lýst hefði verið hér á ráðstefnunni. Hún ræddi einnig útgáfu handbókarinnar og benti á að hún yrði til á skrifstofu félagsins fyrir trúnaðarmenn og aðra áhugamenn í fé- laginu. Sigríður Jóhannsdóttir fjallaði um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, reglugerðir varðandi veikindaforföll og barnsburðar- leyfi. Hún sagði frá ráðningarformum. Hve- nær og hvernig starfsmenn geta fengið lausn úr stöðu og um rétt til biðlauna ef staða hef- ur verið lögð niður. Hún talaði almennt um skyldur ríkisstarfsmanna og m.a. um þagn- arskylduna sem er stórt mál meðal síma- manna. Sigríður ræddi veikindarétt ríkisstarfs- manna sem er breytilegur eftir starfsaldri allt frá 30 heilum dögum og 30 hálfum upp í 360 heila daga. Hún sagði frá reglum um barnsburðarleyfi og að síðustu fjatlaði hún um orlof sem er frá 192 til 240 vinnustundir á ári. Sigríður vitnaði að öðru leyti til upp- lýsinga í handbók. Auður Bessadóttir fjallaði um tryggingar. Hún gat þess í upphafi að tryggingar væru nokkuð sem fólk hugsaði ekki almennt um og væru því margir illa meðvitaðir um rétt sinn ef slys eða önnur óhöpp ber að hönd- um. Auður benti á að fræðslunefnd F.Í.S.

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.