Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. JÚU2006 Fréttir DV Jakob Bjarnar Grétarsson Sandkorn • Ásgeir Dav- íðsson, öðru nafni Geiri á Goldfinger, er afarósáttur við kaldar kveðjur sendiráðsmannanna bandarísku sem skrifuðu skýrslu þess efnis að vændi tengdist súlustað hans í Kópavoginum. Geiri tók sendiráðs- mönnum með kostum og kynjum, frítt á barnum og ókeypis einkadans. Geiri taldi og telur sig ekki hafa neitt að fela. Geiri er nú í Tælandi þar sem hann er á heilsuhæli í stífri megrun. Þar hefur hann verið áður og náði þá af sér um 20 kílóum en haft er eftir honum að þeim bæti hann einhverra hluta vegna á sig heimaáíslandi... • Þá er Geiri af- skaplega ósáttur við Morgunblað- ið og fréttaflutning blaðsins af um- ræddri vændis- j. skýrslu sendiráðs- mannanna.-Segist hann hafa viljað koma á framfæri athugasemdum en var tjáð að hans skoðanir væru ekki velkomnar á síður blaðsins. En gremja hans snýr þó fyrst og síðast að Bandaríkjamönnum, að þejr vogi sér að setja út á rekstur hans í Kópa- vogi. Síðast þegar spurðist til Geira var hann í Pattaya þar sem hann segist vera að kanna hvernig Kaninn hagar rekstri strípibúlla en Pattaya - sem kallað hefur verið stærsta hóru- hús heims - er byggt upp af Bánda- ríkjamönnum... • Lítt hefur heyrst frá Ágústu Evu Erlendsdóttur og hópnum í kring- um Silvíu Nótt eftir umdeilda Grikk- landsför. Enginn bilbugur er þó á þeim bænum og er nú unnið hörðum hönd- um að tökum nýrrar sjónvarpsþáttaser- íu og einnig er verið að taka upp plötu með Sil- víu Nótt... • Gullveig Sæmundsdóttir fyrrverandi ritstjóri Nýs Lífs kvaddi Fróða í síðustu viku snúin vel. Hún lét þess getið við það tækifæri að fyrir- tækið væri fólkið sem þar starfaði. Hún óskaði þá starfsfólkinu gæfu og gengis en tók það fr am að hún óskaði fyrirtækinu ekki slíks hins sama... • Dóris Róbertsdóttir vann lúxus- ferð til Rómar í „hættum að reykja" átaki sem Lyfja og Nicotinell stóðu fýrir í þættin- um ísland íbítið. Lesendur Mogga sáu mynd af því þegar Dóris tók við verðlaunum úr höndum... Ernu Kaaber! Erna kemur víða við en eftir því sem næst verður komist er hún innblaðsstýra Blaðsins. Þetta dæmi gengur illa upp. Af hverju er Erna að afhenda? Er Erna flugumað- ur íslands í bítið (365) á Blaðinu? Eða öfugt? Eða tengist þetta dálka- seríu í Blaðinu: Hættið að reykja með Emu Kaaber? Þá hlýmr Ásgeir Sverrisson ritstjóri að spyrja sig hvort sú sagnasería hafi verið í boði Nicotinell... Netið hefur gerbreytt nútíma fjölmiðlun og lýsir það sér í mun meiri hraða en áður hef- ur þekkst. Sorgaratburðir eru til umfjöllunar á netinu. Hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Tvö nýleg dæmi eru um að minningarsíður hafi orðið til skömmu eftir sviplegt fráfall. Minning með hraði á Netið Mjög færist í aukana að fólk riti minningargreinar á sérstakar síð- ur á netinu - bloggsíður látinna. Þar skrifa vinir og kunningjar kveðjuorð til hins látna og oft þegar aðeins fáein- ar klukkustundir em liðnar ffá því að viðkomandi hefur kvatt hið jarðneska líf. Hvað sem mönnum finnst um þá staðreynd þá er víst að netið hefur breytt og mun breyta nútíma fjölmiðl- un. Einnig hvað varðar sviplegt frá- fall en um það hefur ríkt samkomu- lag að láta tiltekinn tíma h'ða frá því að sviplegt fráfall verður og þar til það er kynnt opinberlega. Netið virðir það samkomulag að vettugi. Viðkvæmt málefni „Það er mjög margt viðkvæmt í þessu. Það er margt sem ber að var- ast í þessu. Það er kannski ekki búið að ná í alla aðstandendur" segir Hjörtur Magni um að það hafi færst í aukana að fólk skrifi minningarorð um nýlátið fólk í gestabækur bloggsíðna skömmu eftir að fólk hefur fallið fr á. „Kannski ætti að reyna að setja regl- ur um þetta," spyr Hjörtur sem bendir á mótsögnina sem felst í því að fjöl- miðlum er bannað að birta nafn hins láma en nöfhin birtist kannski strax á bloggsíðum. Minningarorð klukkustundum eftirfráfall „Megi englamir vaka yfir þér. Við elskum þig," mátti lesa á bloggsíðu Sig- rúnar Kristinsdóttur sem lést í bflslysi á Skagafjarðarvegi við Varmahlíð á sunnudagsmorgun. Þessi minningar- orð voru rituð á síðu Sigrúnar einung- is fáeinum klukkustundum eftir slysið. Var það vinkona hennar sem skrifaði. Hin hefðbundna leið er sú að minningargreinar birtist í Morgun- blaðinu á útfarardag. En sú virðist ekld vera leiðin sem ungt nútímafólk kýs til að minnast ástvina. Nú þegar hafa um fimmtíu aðilar skrifað minningarorð um Sigrúnu. „Tilkoma bloggsins minnir mig á þann tíma þegar fyrstu frjálsu út- varpsstöðvamar vom að hasla sér völl og kepptust við að vera fyrstar í loftið með slysafréttir og tilkynna andlát," segir Hjörtur Magni. Hann segir svo frá að þegar hann þjónaði á Suðumesjum hafi hann þurft að taka þátt í hasarkappakstri Morgunblaðið Stefán Ólafsson sérekki fram á miklar breytingar á minningargrein- um blaðsins I náinni framtið. „Aðgát skal hafa í nærveru sála," segir Hjörtur Magni Jóhannsson prestur í Fríkirkjunni um þá staðreynd að fólk er byrjað að skrifa minningargreinar á bloggsíður - og þá oft skömmu eftir fráfall viðkomandi. „ISárakrakkartesa mmningargremar Morgunbtaðsms og æti- ast til að minningar- greinarséu skrifaðar um bá beqar þeir sjálfír ^Hafrá" til að ná í aðstandendur fyrir útsend- ingartíma. En hann segir jafnframt að hálfsannleikur geti verið skaðlegri lyg- inni. „Sannleikurinn getur verið grimm- ur og miskunnarlaus. Sannleikurinn getur birst manni í formi vitneskju sem skyndilega sviptir mann allri gleði, von og jafnvel lífslöngun." Fallinn Snigill kvaddur á netinu Á heimasíðu Sniglana má lesa minningargreinar um Heiðar Þ. Jó- hannsson en hann lést í vélhjólaslysi í Öræfasveit á sunnudaginn var. „Mitt fyrsta landsmót... búinn að hlakka miídð til... það sem ég hlakkaði einna mest til að prufa var víðfræga súpan hans Heidda. Hún stóð sko al- veg undir væntingum, enda át ég á mig gat. Ég á voðalega fá orð til að lýsa sársaukan- um í hjartanu, eina sem kemur í hugann er gífur- leg sorg og söknuður. Ég sendi fjölskyldu hans, vin- um, samferðamönnum sem og öllum öðrum mín- ar dýpstu samúðarkveðjur. Hvíl í friði vinur." Þessi orð skrifar Ámý Sesselja mánudaginn 3. júh', daginn eftir slysið. Á eftir Ámýju hafa svo um 300 skrifað minningarorð um Heiðar. Morgunblaðið heldur sínu striki „Kannanir sýna að 18 ára krakkar lesa minningargreinar Morgunblaðs- ins og ætlast til að minningargreinar séu skrifaðar um þá sjálfa þegar þeir falla frá," segir Stefán Ólafsson sem sér um minningargreinar hjá Morgun- blaðinu. - Q l jd Bloggsíða Sigrunar Skömmu eftir fráfall hennar var bloggslða hennar orðin vettvangur minningarorða vina hennar. Minningarsíða Þegar eru komin þrjú hundruð innlegg þarsem fólk kveður Heiðarog minnisthans. Veigamikill þáttur í útgáfu Morg- unblaðsins er og hefur verið um ára- tuga skeið birting minningargreina. Víst er að þeir sem eiga um sárt að binda vegna fráfalls ættingja og vina líta til þess að þar sé hinn formlegi vettvangur minningarorða. Stefán sér ekld fram á breytingar þar á í náinni framtíð þrátt fyrir þessa nýbreytni sem fylgir netinu. „Tíminn leiðir það svo bara í ljós hvað bloggið kemur til með að gera í þessu samhengi," segir Stefán. myrdal@dv.is Sigurður G. Tómasson telur Landsvirkjun skaða lífríki Þingvallavatns Vatnabobbar Bubba í bobba „Kunningi minn sagði mér að lokustjórar iLandsvirkjunar við útfall- ið hefðu enn einu sinni sturtað nið- ur og næmi vatnsborðslækkunin tíu sentimetrum á afar stuttum tíma. Ég hef ekki getað staðreynt þetta en ef- ast ekki um að þetta sé satt í ljósi fyrri reynslu," segir Sigurður G. Tómasson á síðu sinni. Sigurður, eða Bubbi eins og hann er kallaður, hefur fylgst með Þingvalla- vatni í áratugi og á bústað í Þingvalla- hreppi. Veiðimenn hafa orðið þess varir í vor að óvenju daufleg silungs- veiði hefur verið í Þingvallavatni. Sigurður segir að svo virðist sem Landsvirkjunarmenn geti ekki lært þær einföldu staðreyndir að svona fikt í rennslinu, með tilheyrandi snöggri vamsborðslækkun virki eins og Þing- vallavam hafi orðið fyrir víðtækri sprengjuárás. „Allt lífrfldð verður fyrir áfalli. Mýklak skemmist, vamabobbi drepst og bleikjan hverfur út á djúpið." Héðinn Stefánsson er stöðvarstjóri Frá Þingvallavatni Veiðin hefur verið daufl vor og telur Bubbi Landsvirkjun valda þvl með flökti áyfirborði Þingvallavatns. á Steingrímsstöð og hefur verið und- anfarin 12 ár. Hann hafnar gagnrýni Sigurðar. „Við reynum að halda skekkj- unni innan við þrjátíu sentimetra. Áður en Steingrímsstöð kom nam náttúruleg sveifla á vatnsyfirborðinu allt að metra. Þannig að þetta er nú þrisvar sinnum minni sveifla sem við höfum í dag." Héðinn segir ýmislegt geta vald- ið sveiflum á vamsyfirborði, hlýindi og miklar rigningar. „Við höfiun verið í samvinnu við svokallaða hagsmuna- aðila sem þama eru," segir Héðinn og aftekur með öllu að þeir hafi verið að fikta í afrennslinu með óeðlilegum hætti. Sigurður vimar í áramgareynslu heimamanna sem best þekkja vam- ið. Og segir alkunnuga þá Iíffræðilegu staðreynd að virkni lífríkisins sé mest í efstu sentimetrum vatnsins. „Baráttan við lokustjóra Lands- virkjunar hefur staðið í áramgi, eða síðan þeir settust við kranana á virkj- ununum við Sogið. Upphaflega báru þeir hinum ótrúlegustu firrum við. Þeir þrættu fyrir að vamsborðið hefði hækkað við stíflugerð í útfallinu, þótt það lægi fyrir skjalfest. Þeir héldu því fram að vatnsborðsbreytingar hefðu engm áhrif á lífrfldð. Þeir héldu því fram að vatnsborðsbreytingar væru minni eftir virkjun en fyrir og minnt- ust þá ekkert á það að áður voru vatns- borðsbreytmgar sneggstar í kerling- arhlákum á vetuma þegar áhrifin eru sáralítfl á lífrfldð." Sigurður segir þá sem unna náttúm Þingvallavatns láta liggja í láginni fyrri glæpi, eins og þegar merkilegasta urriðastofni Evrópu var útrýmt til þess að byggja smávirkjun og bitmýinu í Sogrnu var útrýmt með eitri. Þá vissu menn kannski ekki hvað þeir voru að gera. „Nú eiga menn að vita betur. Lát- ið þið Þingvallavatn í friði, lokustjórar. Þið hafið gert nægar skammir af ykkur á liðnum árum." myrdal@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.