Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDACUR 7. JÚLÍ2006 Helgin DV Make frá Guerlain „Nýr litur frá þeim en ég var að koma ffá Spáni og er svolítið dökk svo ég nota frek- ar dökkan lit núna." Sólarpúður frá Guerlain „Þetta er nýjasta tegundin og það er svolítill glans í þessu. Það gefur ferskan blæ.“ Augnblýantur frá Guerlain „Þessi er dökkbrúnn og sanseraður og ofsa flott- ur í sumar." Varalitablýantur frá Guerlain „Nú nota ég bninrauðan í / stíl við glossið sem er lfka frá Guerlan sem. er aðeins út í appel- sínugult." Maskari frá Clarins „Bara svona venju- legur, en ég nota hann lítið og helst bara spari." Augnskuggar frí BobbyBrown „Eg nota augnskugga mjög sjaldan en þessir eru í jarðarlit- um og voða fallegir." Inga Gottskálksdóttir er aöstoðarverslunarstjóri í Kúltúr í Kringlunni. Hún er Ifka stflisti og fer með konur f innkaupaleiðangra og ráðleggur þeim þeg- ar mikið stendur til. Hún var í óða önn að undirbúa forútsölu hjá versluninni þegar DV náði sambandi við hana en útsalan mun standa eitthvað fram eft- ir vikunni. Inga opnar snyrtibudduna sfna fyrir lesendur en hún segir veru- legan mun á snyrtivörunum sem hún notar að vetri og sumri. Litirnir sem hún velur á sumrin eru dekkri og svo notar húnn maskara og augnskugga eingöngu spari. Hún maelir þó sérstaklega með MAC-Fix-spreyi til að frfska upp á snyrtinguna f hita og þunga dagslns. Inga er nýbúin að vera á Spáni og er full tilhlökkunar á leið í laxveiði í Vfðidalsá innan tfðar. Athafnakonan Björg Kristín Sigþórsdóttir er nánast alin upp í bakaríi föður síns, Bakarameistaranum, og er lærður kökugerðarmaður. Hún kúventi þó þegar hún festi kaup á versluninni Bylgjunni í Hamraborg þar sem hún býður upp á vandaðan og sérstakan fatnað fyrir konur ásamt snyrtivörum, skartgripum og öðrum fylgihlutum. Björg Kristín Sigþórs- dóttir rekur verslunina Bylgjuna í Hamraborg. Úr kökugerð í fatabransann „Ég ætíaði reyndar alltaf að fara í snyrtifræði," segir Björg Kristín, kölluð Bogga. „Það að ég hóf rekstur hér var svolítil tilviljun, en ég var að leita mér að atvinnuhúsnæði fyrir kvenfatnaðinn Ghost sem ég var búin að fá umboð fyrir. Þetta er sér- lega vandaður breskur fatnaður, en fyrirtækið býr sjálft til sín efni. Þeir eru mikið að vinna með viskos og auðvitað fleiri efni en aðaleinkenni þeirra er viskosið sem þeir með- höndla sérstaklega. Þar af leiðandi verður efnið mjög sérstakt, það er þungt og leggst vel, en á móti leggja þeir mikla áherslu á sniðin. Þetta eru sígild föt, hátískan frá Bretíandi og klæðnaður sem er gott að vera f. Það þarf heldur ekki að fara með þennan fatnað í hreinsun, hann þolir þvott í venjulegri þvottavél." Snyrtivöruverslun með í kaupunum Þegar Bogga festi kaup á hús- næðinu í Hamraborg fylgdi með í kaupunum 35 ára gömul snyrti- vöruverslun. „Mér fannst ómögu- legt að hætta rekstrinum á þeirri verslun sem stóð á svo gömlum merg. Mér fannst lfka passa vel að hafa föt og snyrtivörur saman. Þetta er svona dótabúð fyrir konur," segir Bogga hlæjandi. „Við bættum við nýjum merkjum eins og Guerlain, Chanel og Elisabeth Arden og erum þar að auki að taka inn skartgripi frá breskum hönnuði undir merkinu Mawi. Áherslan hjá okkur er að vera með vandaða vöru sem fólk fær ekki annars staðar og ætíunin er að bæta við og opna aðra verslun í viðbót við þessa. Það er hugur í okkur," segir Bogga hlæjandi. Hún segist hafa nóg að gera í rekstrinum en nýtur hverrar mín- útu. „Þetta er langur vinnudagur en ég er líka með þrjú börn, Tinnu sem er 10 ára, Kristínu öldu fimm ára og Jörgen Viggó þriggja ára. Maðurinn minn hefur verið mjög hjáiplegur en hann er auðvitað í fullri vinnu annars staðar. Daglegur rekstur er í mínum höndum en ég er með þrjá lausráðna starfsmenn og þarf að bæta við." Allur frítími nýttur með fjölskyldunni Bogga segist nota allan sinn frí- tíma með börnunum og um helgina ætlar fjölskyldan í sumarbústað og njóta íslenskrar náttúru. „Mér finnst alltaf mest gaman að ferðast innanlands," segir Bogga, sem þarf auðvitað að ferðast mikið til Bret- lands í tengslum við reksturinn. „Ég reyni að nota tímann sem best með fjölskyldunni því verslunin er ekki opin um helgar í sumar. Á virkum dögum erum við með opið frá 10-18 og á föstudögum til 19. í haust verð- ur verslunin opin á laugardögum." edda@dv.is Nýjar rannsóknir benda til þess að konur geti notað innsæi sitt til þess að velja sér maka Konur geta lesið úr andlitum karlmanna hvað þeir vilja Þú sérð allt sem þú vilt vita um næsta mann sem þú hittir ef þú horf- ir nógu lengi á andlit hans ef marka má nýjustu rannsókn frá Santa Bar- bara-háskólanum í Kalifomíu og há- skólanum í Chicago. í rannsókninni kemur fram að konur geti lesið úr andlitum karl- manna hvort þeir séu líklegir lífstíðar- makar og vilji böm eða bara elskhugar í skamman tíma. í rann- sókninni er karlmönnunum einmitt skipt niður í tvo hópa, menn tíl að byggja upp framtíð með og menn til að eiga í ástarsambandi við. Andlitið segir allt sem segja þarf „Útkoman sýnir okkur að konur velja frekar karlmannlega menn til að eiga í stuttum ástarsamböndum við en karlmenn sem hafa áhuga á böm- um sem maka til ffambúðar," segir Dr. Dario Ma- estripieri hjá Santa Barbara-há- skólanum. Hann tekur það einnig fram að hægt sé að lesa meira úr andiitum karl- manna um sið- ferði og framtíðarmarkmið en fólk gerir sér grein fyrir. Til þess að framkvæma rannsókn- ina vom tekin testósterónsýni úr stór- um hópi manna á þrítugsaldri til þess að mæla testósterónmagnið í þeim. Síðan vom þeim sýndar myndir af fiillorðnu fólki og bömum og þurftu að svara hvort höfðaði meira til þeirra. Teknar vom myndir af öllum mönnunum og 29 konur vom fengn- ar til að gefa álit sitt á því hvort þeim líkaði við böm, væm karlmannlegir, aðlaðandi eða vingjamiegir. Þeir menn sem konumar völdu sem lík- legasta til að vilja böm í framtíðinni vom þeir sömu og sýndu áhuga á bömum á myndunum. Konunum tókst einnig að velja þá menn sem þær töldu vera með mesta magnið af testósteróni og vom allar konumar miklu hrifhari af þeim mönnum. Konumar völdu þó frekar menn sem sýndu áhuga á bömum sem lífstíðar- maka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.