Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 7. JÚU2006 Helgin DV Valur Gunnarsson er aftur kominn til Finnlands og segir hér af heimsókn sinni á miöaldahátíð sem árlega er haldin í hinni fornu höfuðborg Finnlands, Turku. Ofsatrúarmenn og vUlutrúarmenn takast á í Miðausturlöndum. Evrópa þenur sig austur á bóginn. Menn eru skapaðir í mynd Guðs af afli sem eng- inn hvorki sér né skilur. Nema valda- mestu menn heims, sem segjast vera í beinu sambandi við það. Allt fer í hringi og 21. öldin virð- ist stundum vera að stefna beint aft- ur inn í miðaldir, sem stundum bera forskeytið „hinar myrku." Því er um að gera að líta á björtu hliðamar og taka þeim bara fagnandi. Og fáir staðir eru jafn heppilegir til þess og hin foma höfuðborg Finnlands, Turku. Klóakkrossfarar I júlí á hverju ári klæða íbúar borg- arinnar sig upp sem riddarar og hefð- arfrúr, munkar og útlagar og æfa sig í bogflmi jafnt sem sverðfimi, éta grill- uð svín og skola niður með bjór í leir- krúsum og selja aðkomumönnum alls konar glingur til minja um hátíð- ina. Staðsetoingin er ekki valin af handahófi. Turku, sem nefnist á sænsku Ábo, var stofnuð af sænsk- um krossförum á 12. öld þegar þeir komu til að kynna Finnum frelsisboð- skapinn og þeir sem lifðu þá fræðslu af voru síðan innlimaðir í Svíaveldi. Ábo var um tíma næststærsta borg Svíþjóðar á efdr Stokkhólmi og þar stendur enn einn glæstasti kastali Norðurlanda. í hönum er að finna sögusafn Turku og þar eru einnig til sýnis búningar hljómsveitarinnar Lordi, sem sóma sér jafn vel í mið- aldakastala sem á sviði í Eurovision- keppninni. Bóndinn í klósettinu Sagan segir einnig að bændahetjan og uppreisnarmaðurinn Johann Dkka hafi verið geymdur í Turkukastaia um sinn, eftir að hafa verið handtekinn fyrir þá iðju sína að hvetja bændur til uppreisnar. Hann grenntist svo mikið í vistinni að honum tókst að sleppa út með því að smeygja sér í gegnum klós- ettið. En rétt eins og heilagur Sebastí- an, sem skammaði Rómarkeisara fyrir að hafa reynt að drekkja sér og var þá aftur og endanlega tekinn af iífi, lét Ilk- ka sér ekki segjast og var seinna hand- tekinn aftur og slapp ekki í það skipt- ið. Múmínpabbi talar við barn Hrekktir unglingar í heitum búningum ganga um sem þekktarpersónur úrsögum Tove Jansson. DV-Myndir Valur Gunnarsson Paradís klósettáhugamanna Fyrir klósettáhugamenn er af nógu að taka í Turku. Sérstaklega ber að nefria klósettbarinn, sem hefur verið kominn fyrir í gömlu almenningsklós- etti. Allar innréttingar bera á einn eða annan hátt vitni um uppruna hans, svo sem klukkur og öskubakkar í klós- ettlíki og brúðupar hangir úr loftínu og gerir þar þarfir sínar. Allt góðar hugmyndir sem ber að hafa í huga þegar kemur að því að Núllan verður, eins og aiit annað, einkavædd. Einnig er að finna í Turku Bankabarinn og Bamaheimilisbarinn, sem einnig bera nöfn þeirra stofhana sem áður nýttu þá staðsetningu er þá nú hýsir. Múmínálfarnir og Mið-Ameríka í næsta nágrenni við Turku er bær- inn Naantali, sem helst er þekktur fyrir að vera núverandi heimili múmínálf- anna. Þar er hægt að skoða hús múm- ínfjölskyldunnar og séu menn illa inn- rættir, hrekkja unglinga sem hafa það sumarstarf að ganga um sveittir í bún- ingum múmínfjölskyldunnar. Ef til vill eiga þeir ekki betra skilið, þar sem garðurinn er styrktur af Chiquita-fyr- irtækinu, og eiga þeir þannig óbeint þátt í að Múmínsnáðinn er orðinn meðsekur í mannréttíndabrotum her- foringjastjóma í hinum ýmsu banana- lýðveldum Mið-Ameríku. Öskrandi miðaldalýður Miðaldahátíðinni lýkur að fjómm dögum liðnum, og brátt þagna þeir leikarar sem hafa öskrað sig hása í hlutverkum sínum á hinu gamla ráð- hústorgi Turku. Ekki em þó allir jafn sannfærðir um sögulegt gildi háfi'ð- arinnar. „Finnar hafa fi'tið breyst und- anfarin þúsund ár," segir stúlka sem er að læra sagnfræði í Turkuháskóla og vinnur sem leiðsögumaður í kastal- anum á sumrin. „Þeir segja lítíð núna og ég reikna með að þeir hafi sagt lítíð þá. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna fólk þarf að öskra svona mildð um leið og það er komið í miðaldaföt."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.