Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Qupperneq 38
50 FÖSTUDAGUR 7. JÚU2006 Helgin 0V Einar Bárðarson, Umboðsmaður íslands, tónleikahaldari og eiganda Concerts, í einlægu samtali um ný- fædda dóttur sína, ástina, Guð í London og Qárfesta sem hann gleymdi að taka nafnspjöldin hjá. Fyrir tveimur mánuðum varð gjörbylting í lífi Einars þegar hann fékk frumburð sinn í fangið og honum varð ljós forgangsröðun lífsins. Hann stendur í stórræðum í Bretlandi en bíður þess að komast heim í frí til að skeina og skipta á litlu dótturinni. Sex ára gutti stóð fyrir utan Kaupfélagið á Selfossi og seldi dag- blöð. Þegar Kaupfélaginu var lokað tveimur tímum síðar rærði hann sig í blóma- og gjafavöruverslun foreldra sinna, seldi afganginn af blöðunum og hjálpaði til í búðinni. Núna er sami strákur að selja stærri hluti, aÚan Nylon-flokkinn og Garðar Thór Cortes, í aðeins stærra þorpi en Selfossi. Á mánudaginn kemur fyrsta smáskífa Nylon-stelpnanna í verslanir í Bredandi og þá sér landinn hvort Einar Bárðar hafi veðjað á rétta hesta enn eina ferðina. f haust kemur svo væntanlega breiðskífa og áform eru uppi um útgáfu plötu með Garðari Thór Cortes í febrúar á . næsta ári. Staddur í London í alltof miklum hita og úrhellisrign- ingu segist hann sakna gríðarlega tveggja mánaða dóttur sinnar og eiginkonunnar Áslaugar, en það þurfi að draga björg í bú. „Efvið náum inn á topp 40 verð ég yfír mig ánægður. Ég gerí ekki ráð fyrir því að við leggjum undir okkur breska branstmn íeinni tilraun. Eins og ég hefsvo oftsagt: Þetta er ekki sprettur - þetta er langhlaup Einar Báröarson hefur oft verið kallaður Mídas, enda virðist flest það sem hann kemur nærri breyt- astígull. Fyrirtækið hans, Concert, er einn stærsti tónleikahaldari landsins. Hann hefur staðið fyrir fjöldamörgum stórtónleikum, afl- að fjár fyrir krabbameinssjúk börn árum saman, fengið hingað til lands heimsfræga skemmtikrafta, gaf út mest seldu plötu íslands í fyrra og er maðurinn á bak við Nylon-flokkinn, sem hefur verið að gera það gott á Englandi. Guð kemur líka til London „Núna er ég hér vegna þess að ég get auðvitað ekki sent verð- bréfagaurana eina til London!" segir hann skellihlæjandi símleiðis frá Lundúnaborg. „Það verður að vera smá litróf í útrásinni. Útrásin er einhvers konar keppniskomplex og eftir góðan árangur heima lang- ar mig náttúrlega að prófa og sjá hvort ég eigi eitthvert erindi á „heimsmeistaramótið" í London. Ég tel að bæði Garðar Thór Cortes og Nylon-stelpurnar eigi fullt er- indi inn á markaðinn hér. Þess vegna ákvað ég að bíða ekki eftir því að mér yrði boðið heldur mætti bara á svæðið. Það hefur mikil Guðs blessun fylgt þessum tveim- ur verkefnum og ég trúi því að Guð komi líka til London, þótt borgin sé vissulega skítug stundum." Einar á ekki langt að sækja við- skiptahæfileikana. Mamma hans, fOara Sæland, rak um árabil blóma- og gjafavöruverslun á Sel- fossi ásamt pabba hans, Haraldi Hallgrímssyni, sem gekk Einari ungum í föðurstað. Ni' eru þau með hestabúgarð í Holtunum og Einar segir mömmu sína í raun vera heimavinnandi kúreka sem baki brauð. Garður móðurforeldr- anna, Huldu og Eiríks Sæland, var margverðlaunaður af Sambandi sunnlenskra bænda og hann er ekki frá því að þetta fólk hafí mót- að hann mikið. „Mitt fólk hefur alltaf verið sjálfs sín herrar. Það eina sem ég á ekki sameiginlegt með honum afa mínum er að hann hefur alltaf ver- ið gallharður kommúnisti!" segir hann skellihlæjandi. „Ég get þó þakkað honum það að hafa kennt mér ríka réttlætiskennd." Einar á tvö hálfsystkin í Noregi, þar sem blóðfaðir hans, Bárður Einarsson, býr en nánastúr honum er hálfbróðirinn Arngrímur Fann- ar, Addi Fannar, í hljómsveitinni Skítamórall. „Addi er hálfbróðir minn á pappírum en ég lít nú ekki á það þannig. Hann er „heilli" bróðir en nokkur hefði getað óskað sér þrátt fyrir að vera „háif" bróðir. Mamma og blóðfaðir minn Bárður skildu þegar ég var mjög ungur. Mamma var að vinna á símstöðinni í Ara- tungu þegar hún kynntist Haraldi, sem gekk mér í föðurstað. Hann hefur reynst mér gríðarlega vel og ég á honum allt að þakka. Hann kenndi mér mikið og er sá sem hef- ur undirbúið mig mest undir al- vöru lífsins. Það má því segja með sanni að ég hafi fengið sveitaballastemn- inguna beint í æð sem pjakkur í Aratungu. Þar byrjaði ég að tína gler fyrir utan Aratungu þegar ég var fimm ára, eftir böllin hjá Sum- argleðinni. Nú er ég meira að segja búinn að plata þá til að koma sam- an aftur! Við Áslaug Thelma völd- um Aratungu fyrir brúðkaupið okkar í fyrrasumar, en til að flnna Áslaugu þurfti ég að fara alla leið til Phoenix í Arizona! Það var ansi magnað að fara einhleypur til Ameríku og það út í miðja eyði- mörk til að kynnast stelpu frá Keflavík. Það voru sannarlega ein- hver örlög," segir hann glaðlega. Veit ekki nöfnin á fjárfestunum Áður en við forvitnumst um nýjasta ævintýrið ílífí Einars Bárð- ar, dótturina sem fæddist 12. maí, spyr ég hvort hann trúi því að Nylon eigi eftir að leggja Bretland að fótum sér. „London er svolítið eins og Bif- röst í goðafræðinni - leiðin að nafla alheimsins. Ég væri sannar- lega ekki að leggja alla þessa vinnu á mig og alla þessa peninga í þetta Með José Carreras Einar og Áslaug Thelma með stórsöngvaranum José Carreras, sem er einn þeirra heimsfrægu sem Einar hefur fengið til að stlga d svið d Islandi. Umboðsmaðurinn og tónlistarfólkið Á Nordica hóteli með Aslaugu Thelmu, Kiri Te Kawana, Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, Garðari Cortes og vini söngkonunnar Kiri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.