Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Síða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2006, Síða 39
Helgin DV FÖSTUDAGUR 7. JÚU2006 5Í ef ég héldi í alvörunni að þetta myndi ekki virka. Ég veit um leið að þetta er erfiðasti markaður í heimi og ég frá íslandi á ekki heimtingu á neinu. Ég trúi því bara að ef ég vinn eins vel og ég get og hvet alla í kringum mig áfram í átt að réttu marki muni þetta verkefni uppskera eins og til er sáð. Það er náttúrlega mikið verið að pæla í þessu núna heima og verið að spá fyrir um gang mála. Stundum heyrir maður spár um miklar hrak- farir og stundum fær maður klapp á bakið, en það breytir því ekki að ef maður vaknar snemma, vinnur mikið og af samviskusemi þá er „ekkert víst það klikki" eins og Pét- ur heitinn Kristjánsson sagði alltaf. Við erum alveg eins tilbúin að koma heim með fyrstu vél á morg- un ef þetta gengur ekki! Stelpurnar - og á sama tíma ég - gerum okkur þeim hér ... ekki ennþá allavega!" Hverjir eru fjárfestarnir að baki þér, sem eru kannski að fjárfesta meira íþér en Nylon? „Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri, fjárfestir og tónlistar- áhugamaður hefur leitt hóp góðra manna sem ákváðu að koma til leiks við mig þegar ég hafði unnið hérna í London á eigin reikningi í eitt ár. Þetta er gríðarlega mikið og dýrt batterí og London er dýr borg. Þessir menn höfðu trú á þessu þegar ég kynnti þeim planið. Ég hef hitt þessa fjárfesta nokkrum sinnum en ég gleymdi að taka nafnspjaldið þeirra þannig að ég man ekkert hvað þeir heita - enda er Tryggvi í forsvari fyrir þá. Það er fráþært að vinna með Tryggva, hann er mikill áhugamaður um tónlist og veit reyndar miklu meira en ég um tónlist. Það er gott að „Við Áslaug erum sammála um að þótt starf mitt bjóði upp á fjölmiðlaumfjöllun eigi ekki að draga nýfætt barnið inn í þau mál. Ég skal hins vegar alveg ræða við þig um hvernig til- finning það er að verða pabbi “ alveg fullkomlega grein fyrir því að þetta getur tekið enda jafnhratt og þetta byrjaði. Hvað sem gerist þeg- ar geisladiskurinn með Nylon kemur í verslanir hér í Bretlandi á mánudaginn, þá mega stelpurnar eiga það að þær hafa staðið sig frá- bærlega. Við höfum fengið frábær tækifæri eins og það að syngja á sama sviði og Westlife. Þær gáfu erlendu stjörnunum ekkert eftir. Sá árangur sem við höfum náð er frábær. Ef við náum inn á topp 40 verð ég yfir mig ánægður. Ég geri ekki ráð fyrir því að við leggjum undir okkur breska bransann í einni tilraun. Eins og ég hef svo oft sagt: Þetta er ekki sprettur - þetta er langhlaup." Hvernig er ungum ísiendingi tekið af stórlöxunum íLondon? „Það eru nú ekki allar dyrnar opnaðar einn, tveir og þrír! Á yfir- borðinu er maður boðinn velkom- inn og menn vilja „endilega" vinna með manni, en svo undir niðri finnur maður fyrir því að það á sko ekki að gefa manni neitt. Það er nú reyndar þannig með þennan bransa eins og annan, bæði heima og annars staðar. Þegar maður er búinn að klífa stigann aðeins sér maður að það eru sömu fáu menn- irnir sem stjórna öllu. Ekki ósvipað og heima, nema ég er ekki einn af hafa svona hóp á bak við sig sem styður við okkur í þessu." Dóttirin Þá að einkalífinu. Það sem margir þrá er að sjá mynd afykkur hjónunum með dótturinni, en þú viit halda henni fyrir utan kastijós fjölmiðlanna. „Já, við Áslaug erum sammála um að þótt starf mitt bjóði upp á fjölmiðlaumfjöllun eigi eklci að draga nýfætt barnið inn í þau mál. Ég skal hins vegar alveg ræða við þig um hvers konar tilflnning það er að verða pabbi..." /á, takk. Þigg það. „Það var yndisleg lífsreynsla!" segir hann og stoltið berst eftir símalínunni yfir hafið. „Hún kom í heiminn föstudagskvöldið 12. maí og verður því tveggja mánaða eftir nokkra daga. Sú litla hefur sannar- lega kennt mér að forgangsraða í lífinu á allt annan hátt en ég hef gert á mínum þrjátíu og fjórum árum hér á jörðinni," segir hann af sinni alkunnu einlægni. „Það er ekki hægt að útskýra hvernig mér Framhaldá ^ næstusíðu Stoltur pabbi: „Ég er óendantega þakklátur fyrir hvað sú litla er heilbrigð og hraust, þvlþað er nú langt frá þviað vera sjálfsagt. Mér finnst llka yndislegt að fylgjast meöþvihvað konan mln er ofboðslega góð móðir. Hún dóttir mín kann sko sannarlega að velja sér mömmu!“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.