Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER 2006 Fréttir DV Óskar Hrafn Þorvaldsson Sandkorn • Sjálfstæðismað- urinn Guðlaug- ur Þór Þórðar- son, sem berst við Björn Bjarnason um annað sætið í Reykjavík í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, hefur ráðið almannatengslamógúlinn Eggert Skúlason í sitt lið fyrir prófkjör- ið sem fer fram eftir rúmar tvær vikur. Eggert sýndi mátt sinn og megin þegar hann kom skjólstæðingi sínum, framsókn- armanninum Birni Inga Hrafnssyni, inn í borgarstjórn í vor þrátt fyrir að útlitið væri dökkt um tíma. Guð- laugur Þór vonast eftir að Eggert nái viðlfka árangri nú... • Óþarft er að finna upp hjólið í hvert sinn. Sumt er einfaldlega tímalaus snilld og ávallt bæt- ast nýir lesendahópar í skörð- in. Þannig telst mönnum til að greinaflokkur Kolbrúnar Berg- þórsdóttur í Blaðinu um horfnar filmstjörnur sé nú að birtast Is- lendingum í fimmta sinn en áður hafa lesendur Alþýðublaðsins, Dags-Tímans, DV og Fréttablaðsins lesið hinar ágætu grein- ar auk þess sem Kol- brún hefur lesið þær margar upp í útvarpi, bæði á Sögu og á Rás 2... • Landsliðsmað- urinn, Indriði Sigurðsson, sem leikur með Lyn í Noregi, á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni, Jó- hönnu Sigmundsdóttur. Hún er komin fimm mánuði á leið og má því búast við að barnið líti dagsinsljósílok janúar á næsta ári. Hann er ekki eini atvinnumaðurinn sem er að fara að fjölga mannkyninu þvf Heiðar Heigu- son, sem leikur með Fulham, á einnig von á barni, sínu þriðja, með eiginkonu sinni Eik... • Þórhallur Gunnarsson, rit- stjóri Kastljóss, er frekur til fjörs- ins og vill ekki að menn tali við neinn annan en sig hafi þeir frá einhverju skemmtilegu að segja. Nú hefur Þórhallur tekið skref- ið enn lengra og fer fram á það við bókaútgefendur að ÆgSSfak, hann fái að sjá bæk- F '1 ur þeirra fyrstur allra • z. I fjölmiðla enda vitað % ^ mál að einnar mín- A - útu bókarabb í Kast- •Nv. íí^^ljósi hlýtur að vera B VKk hverjum höfundi B ómetanlegt... • Blaðamanninum Andrési Magn- ússyni, sem hefur skrifað fyrir Blaðið frá stofnun þess, var sagt upp störfum í síðustu viku. Andr- és hefur haldið úti skemmti- legu smælki á síðum blaðsins og látið til sín taka í leiðara- skrifum og viðtalspistlum. Það var þó ekki mikil reisn yfir upp- sögn Andrésar því hann ku hafa fengið símskeyti á laugardaginn fyrir viku þar sem honum voru tjáð þessi tíðindi. Hvort Sigur- jóni Magnúsi Egilssyni, ritstjóra Blaðsins, hafi brostið kjark til að segja Andrési upp í eigin persónu skal ósagt látið hér... Athafnamaðurinn Gísli Reynisson lifir flottu lífi í Lettlandi. Hann er umsvifamikill i at- vinnulífinu þar eystra og einnig ræðismaður íslands í landinu. Hann keypti sér glæsi- snekkju á dögunum og bauð nokkrum vinum sínum frá íslandi í bátsferð fyrir leik Letta og íslendinga í Ríga á laugardaginn. Sýndi 200 milljóna króna lúxussnekkju í Ríga Gísli Reynisson, ræðismaður íslands í Lettlandi, hefur tilfinningu fyrir fínni blæbrigðum lífsins. Hann hefur stundað viðskipti í Lettlandi í meira en áratug og gengið allt í haginn. Þannig getur hann látið eftir sér að eiga flottustu bílana, flottustu einkaflugvél- ina og nú síðast flottustu snekkjuna sem hann frumsýndi fyrir vini sína í Ríga á laugardaginn. Glæsileg einkaflugvél Gtsli og félag hans Nordic Partners d flottustu einkaflugvél landsins af geröinni Dornier 328. Ekki er talið að snekkjan hafi kostað undir 200 milljónum endabúin öllum þeim lúxusisem hægt er að hugsa sér. Samkvæmt heimildum DV fór Gísli á bátasýningu í London í byrjun sept- ember og gerði sér lítið fyrir og keypti glæsilega lúxussnekkju á sýningunni. Hún er af gerðinni Princess sem þykir vera með því fínasta í bátaheiminum. Snekkjan er um 20 metrar að lengd, með 2200 hestafla vél og þremur svefn- herbergjum auk aðstöðu fyrir áhöfn. Ekki er tahð að snekkjan hafi kostað undir 200 milljónum enda búin ölfum þeim lúxusi sem hægt er að hugsa sér. Bauð félögum í siglingu Snekkjunni var siglt frá Bretlandi og kom hún tíl Ríga í Lettlandi á laugar- dagsmorgun. Þar er GísU eins og kóng- ur í ríki sínu enda með mikfl umsvif í viðskiptaheiminum þar auk þess sem hann er ræðismaður íslands í Lett- landi. GísU bauð nokkrum fé- lögum sínum frá íslandi út tíl Lettlands tíl að vera viðstaddir jóm- frúarferð snekkjunnar, sem ber nafhið Nordic Virgin. Sóttir á tveimur Cadillöcum Ekkert var sparað tíl hjá Gísla.Félagarhansvorusóttir á hótel víðs vegar um Ríga á tveimur glæsivögnum af gerðinni CadiUac Escalade sem hvor um sig kostar um tíu miUjónir. I öðrum bflnum voru „aðstoð armenn" Gísla enda eins gott að fara var- lega í borg eins og Ríga þar sem mafían, líkt og í öðrum fyrrverandi lýð veldum Sovétríkjanna, lifir góðu lífi. Farið var með menn í bátinn og síðan var siglt út haf. Þar var vel veitt í mat og drykk en eftír það var farið á landsleik Lettlands og íslands í knattspymu. Þar var GísU búinn að taka frá sérherbergi fyrir fé- laga sína þar sem haldið var áfram að borða og drekka. Heimfldfr DV herma að gestum Gísla hafi síðan verið flogið heim í einkaflugvél hans á sunnudeg- Lúxuslíf ílaumi Það hefur lítið farið fyrir Gísla Reyn- issyni á íslandi á undanfömum árum. Hann Ufir lúxuslífi en lætur samt fara lítið fyrir sér. Hann býr í 600 fermetra einbýiishúsi á Amamesi. Bflaflotí hans minnir á lúxusbflasölu. Hann á 300 fermetra íbúð á besta stað í Ríga og heilt hús með mörgum íbúðum í nálægð við dönsku konungshöUina í Kaupmannahöfn. Hann á flottustu einkaflugvél landsins og nú sennflega flottustu snekkjuna. Hann hefur lítíð vfljað tjá sig um auðæfi sín til þessa og neitaði meðal annars blaðamanni DV um myndatökur í einkaflugvél smm. oskar@dv.is Bílafloti f lagi Gíslikeypti nýverið flottasta Benz landsins sem kostaði 33 milljónir króna. Hér sést bílaflotinn standa fyrir utan hús Glsla lArnarnesinu. ........... Gisli Reynisson Athafnamaðurinn hefur auðgast glfurlega ILettlandi og d snekkju, einkaflugvél og glæsikerrur auk húsa ÍDanmörku, Islandi og Lettlandi. Fiott snekkja Eins og sjó móó þessan mynd er þetta glæsileg snekkjasem Glsli Reynisson keypti sér. sjdmóafþessummyndumer •V ' . -L,- ' ' ' - v* 5 \ ■ ’S , ' : . '&Á&mL '-ia * : v- /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.