Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 38
58 FÖSTUDAGUR 13. ÖKTÓBER2006 Helgin PV ÍM \ Ólafur Agnar Hraundal Thorarensen er einn virtasti og vinsælasti spámiðillinn i dag. Það er ekki auðvelt að fá tíma hjá honum og biðin getur verið allt upp í eitt ár. Það er ekki erfitt að átta sig á ástæðunni þegar farið er til hans. Blaðamaður DV komst að þvi að allt sem hann segir um fortiðina stenst eins og stafur á bók. Þegar hann rekur lífshlaup fólks frá fæðingu til dagsins í dag getur hann séð öll tímamót og áföll svo ekki skeikar um svo mikið sem eitt ár. Óli spámiðill segir enga konu geta þolað sig ,rSermilega var ég indjáni í einu afmínum fyrri lífum en ég hefátt um fjörutíu líf." Þegar blaðamaður DV fer á fund Óla er dulúð í loftinu og ekki laust við spenning og tilhlökkun yfir að hitta þennan mikla spá- miðil. Kertaljós og helgimyndir eru í herberginu hjá Sálarrann- sóknarfélaginu í Síðumúla þar sem Óli vinnur og einhver óút’- skýranlegur kraftur í loftinu en á sama tíma ró sem færðist yfír blaðamann. Óli spámiðill gengur inn í her- bergið og tekur fast í hönd blaða- manns DV. Sérstakt útlit hans og fas gerir heimsóknina til hans ennþá meira spennandi. Síðan byrjar hann að tala og hefúr til hliðsjónar fæð- ingardag og nafn þess sem hann spá- ir fyrir. Blaðamaður situr agndofa og kinkar kolli til samþykkis öllu því sem þessi maður veit um líf hans og finnur fyrir feimni andspænis slíkri opinber- un á eigin lífi. Hann lætur ekki þar við sitja heldur fer Óli að rekja líf náinna aðstandenda blaðamanns og segir til um hvernig þeim líður og hvern- ig þeim muni vegna. Aldrei, fyrr eða síðar, hefur blaðamaður lent í slíkri upplifun og það er rétt eins og Óli hafl þekkt fjölskyldu hans alla ævi án þess að hafa hitt hana nokkurn tímann. Plataði hann í viðtal Eftir þessa mögnuðu lífsreynslu þar sem Óli spámiðill segir blaða- manni einnig til um framtíð hans og hverjir það eru af framliðnum ætt- ingjum sem gæta hans og hvað þeir hafa að segja, ákveður blaðamaður að biðja hann um viðtal til að skyggnast aðeins meira inn í líf þessa einstaka persónuleika. Þessi hlýi en jafnframt hrjúfl maður býður blaðamanni heim til sín nokkrum dögum seinna og sú heimsókn er ekki síður spennandi. Býr í krafti Esjunnar og sjávar Óli spámiðill býr á Kjalarnesinu og þegar inn í húsið er komið taka góðir andar á móti gestum og hiý- legt heimilið ber vott um kærleiks- ríkan og ástríðufullan mann. Hann hefur söfhunaráráttu og safnar alls kyns dóti, allt frá salt- og piparstauk- um upp í gamlar vínilhljómplötur. Ást hans á gyðjurmi Marilyn Monroe fer ekki framhjá neinum því um leið og inn í húsið er komið blasir við stór mynd af henni og margar litíar, allar á sama vegg. Sá drauga sex ára Óli spámiðill hefur búið í Mosfells- bæ svo til alla sína ævi. Þegar hann var sex ára sá hann framliðið fólk allt í kringum sig. „Ég var rosalega hrædd- ur fyrst en mamma og pabbi sem eru líka skyggn hjálpuðu mér að skilja þetta og svo vandist ég því smátt og smátt," segir Óli. Hann segir að það að vera skyggn sé hæfileiki sem hon- um hafi verið gefinn og þegar hann var 26 ára fór hann í þjálfun hjá spá- miðli til að læra að skilja þetta betur og geta höndlað þessa náðargáfu sem Guð gaf honum. Allir eiga sér fylgdarmann „Það eru verur sem koma þeg- ar fólk fæðist og fara ekki fýrr en það deyr. Það fer eftir því hvað fólk er að gera hverju sinni hvaða verur eru með því. Til dæmis þegar fólk er í skóla er gjarnan munkur hjá þeim sem er tákn um grúsk og menntun og þeir sem vinna við hjúkrunarstörf hafa gjarnan nunnu hjá sér en hún er tákn um kærleik og umönnun. Fólk getur haft eina til sex verur í kringum sig og sá sem fylgir mér alltaf er indjáni frá Norður-Ameríku sem var uppi 1497. Ég sé hann greinilega og tala oft við hann. Sennilega var ég indjáni í einu af mínum fyrri lífum en ég hef átt um fjörutíu h'f," segir Óli. Líf okkar er fyrirfram ákveðið Óli segir að, líf okkar sé fyrirfram ákveðið og þegar við erum tveggja til þriggja ára gömul sé okkur sýnt allt lífshlaup okkar og það séu þessi augnablik sem við eigum sem full- orðin þegar við vitum að við erum að upplifa eitthvað sem okkur finnst við hafa upplifað áður. „Við munum bara ekki eftir því sem við sáum á þess- um aldri en það er Guð sem hefur ákveðið líf okkar allra. Þótt við getum stundum tafið örlög okkar, þá endum við alltaf á að mæta þeim," segir Óli. Allir taka röng spor á lífsleiðinni „Þeir sem koma til mín eru oft fólk sem er á tfmamótum eða fólk sem er að leita að festu í lífinu eða að rétta veginum því það fór út af honum," seg- ir Oli. Hann segir að allir taki röng spor í lífinu en við séum alltaf leidd á það rétta á endanum. Hann segir að sumir séu lengur en aðrir að finna sporið sitt og þeir sem fremja ódæðisverk í h'finu séu fólk sem er biturt vegna slæmr- ar h'fsreynslu og tekur biturleikann út sem hatur. „Þessar manneskjur þrá að vera góðar og láta gott af sér leiða en höndla það ekki vegna djúpstæðs hat- urs í sálinni," segir Óh. Eigum öll kost á að vera hamingjusöm Óli segir að allir eigi kost á því að vera hamingjusamir. „Þeir sem eru það ekki áttu kost á því en klúðruðu því vegna eigin græðgi, þeir vildu alit- af meira. Græðgin er ávísun á óham- ingju. Fólk á að lifa eftir því sem það hefur og sníða sér stakk eftír vexti og passa að fara ekki frammúr sjálfu sér. Það á heldur ekki að vera nískur því það fólk lifir í barlómi og tímir ekki að gefa dýrmætustu gjöfina sem er faðmlag og hlýtt viðmót," segir Óh spámiðill og er auðsýnilega löngu bú- inn að átta sig á því sjálfur að andlegt ríkidæmi er meira virði en veraldlegt. Fjölskyldan dýrmætust Óli býr einn og segir að það geti engin kona þolað hann. „Við sem erum í þessum andlegu málum erum allt öðruvísi en annað fólk. Við erum „Það eiga allir kost á því að vera hamingjusamir og þeir sem eru það ekki klúðruðu þvi vegna eigin græðgi, þeir vildu alltaf meira." DV-myndir: Gunnar viðkvæm og tilfinningarík og mjög næm á annað fólk, það er svo auðvelt að saera okkur. Svo höfum við öðru- vísi skap og erum alltaf á varðbergi auk þess að vera mjög þrjósk," segir Óh og brosir að eigin göllum. Hann segir að fjölskyldan sé það sem skipt- ir hann mestu máh. „Ég á yndisleg systkinaböm og bestu vinir mínir eru bræður mínir, mágkonur og foreldr- ar mínir. Þau halda þétt utan um mig. Fjölskyldan er það eina sem maður á þegar upp er staðið og fólk á að rækta hana. Stundum splundrast fjölskyld- ur út af auðvirðilegum hlutum en það á að ræða hlutina og fyrirgefa þótt það sé erfitt," segir Óh og viðurkenn- ir að hann sé stundum sár og eigi erf- itt með að fyrirgefa en geri það alltaf á endanum. Fær ekki að sjá son sinn „Sterkasta tilfinning sem ég hef fundið er þegar ég hélt á nýfæddum syni mínum. Hann er núna átta ára og móðir hans virðir ekki umgengnisrétt minn við hann og meinar mér að hitta hann. Ég hef sótt minn rétt og unnið þau mál en hún virðir það ekki og mér h'ður mjög iila með það. Það er slæm tilfinning að vita af einhverjum sem manni þykir vænt um en fá ekki að sjá hann. Eg ákvað að bíða bara þangað til hann verður fullorðinn því það er svo oft búið að slá mig niður vegna þessa máls og ég verð alitaf sárari og sárari. Auk þess vil ég ekki leggja það á hann að finna fýrir þessum leið- indum móður hans í minn garð. Ég veit ekki ennþá af hverju hún meinar mér að sjá hann, kannski vegna þess að ég er öðruvísi en annað fólk og klæði mig öðruvísi, veit það ekki svei mér þá,“ segir Óli og er brugðið þegar hann talar um þessi mál. Sátturog hamingjusamur „Ég er sáttur við mitt líf og tel mig vera hamingjusaman mann," seg- ir Óli. Hann segir það gefa sér mik- ið þegar fólk kemur aftur til hans og þakkar fyrir þær ráðleggingar og styrk sem hann gefur. „Ég sé stundum nei- kvæða hluti en vil helst ekki tala um þá. En ég hef varað fólk við öðru fólki og vafasömum viðskiptum." Þegar blaðamaður DV spyr í lokin um niðurstöður næstu alþingiskosn- inga segir Óli: „Ég vil ekki spá um svona hluti því þá fengi ég engan frið, en eitt get ég sagt, að hægristjórn- in er á niðurleið." Að þessum orðum sögðum kveður blaðamaður Óla með söknuði og á erfitt með að sh'ta sig fiá þessu fallega og friðsæla heimili. jakobina@dv.Í5 Óli spámiðill fyrlr framan mynd af Marilyn Monroe „Þetta er fallegasta Óla vantar ekki salt og pipar í sitt lif „Ég safna öllu þvl sem mérdettur I hug og þetta ersalt- og Esjuna „Hér á Kjalarnesinu ersvo friðsæltog gott ogklárastakonasemuppihefurverið." piparsafnið mitt.“ aðbúa."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.