Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 35
DV Helgin
Ég varð að horfast í augu við að ég
væri engin súperkona og ég brotn-
aði. Sú ákvörðun að flytja suður var
líka geysilega erfið. Synir mínir og
systkini mín voru flutt til Reykjavíkur
og Vöku langaði suður. Hér í Reykja-
vík þekkti ég fáa og þar sem ég elska
Akureyri út af lífinu reyndist flutn-
ingurinn mér erfiður. Eg reyndi að
fóta mig í nýjum heimkynnum og
þremur árum síðar flutti Vaka í eigin,
verndaða íbúð."
Aðskilnaðurinn reyndist Gunn-
hildi erfiðari en Vöku.
„Það var búið að segja mér að
þetta myndi reynast mér erfiðara en
henni; hún væri svo sjálfstæð að hún
myndi bara vilja losna við mömmu,"
segir hún brosandi. „Þegar mað-
ur eignast þroskaheft barn, þá flyt-
ur maður inn í málefhi fatlaðra og
þroskaheftra," segir hún til skýring-
ar. „Það er mjög áríðandi að foreldr-
ar þessara barna eigi sér líf fyrir utan
líf barnsins en þá verðum við líka að
geta treyst því að þau séu í góðum
höndum. Þegar Vaka var barn fór
hún í sveit, í sumardvöl og í skamm-
tímavistun og ég var alltaf örugg
um að henni liði vel. Þegar hún fór
í skammtímavistun sagði hún öllum
að hún væri að hvíla sig á mömmu
sinni," bætir hún við og hlær.
„Mér fannst ég vera aft-
ur að upplifa það sama
og þegar pabbi hans
veiktist. Þessiglaði
og yndislegi drengur
breytti alveg um per-
sónuleika. Hann hætti
að vera glaður og sýndi
engar tilfinningar."
aðra. Við viljum byggja upp þjónustu
úti í samfélaginu og markmiðið er að
hægt verði að flytja fólk af stofnun-
um og hjálpa því með þjónustu í eig-
in íbúðum. f Bandaríkjunum er far-
ið að nota tólf spora kerfið í meðferð
geðsjúkra og ég er þeirrar skoðunar
að sú aðferð reynist vel. Það skiptir
gríðarlegu máli að sá, sem velst til að
hjálpa þeim veiku að komast aftur út
í lífið, hafi sjálfur staðið í sömu spor-
um. Við vonum að innan fárra ára
verði geðdeildir aðeins bráðadeild-
ir, en öll önnur þjónusta við geðsjúka
fari fram á heimilum þeirra og þeim
verði hjálpað að snúa aftur til dag-
legs lífs."
Unnið að bættum aðbúnaði
geðsjúkra
Þegar Vaka varflutt í eigin íbúð var
komið að þeim tímamótum í lífi Gunn-
hildarað hún leitaði sér hjálpar.
„Þá breyttist ailt líf mitt. Ég
„púnkteraði" eins og við segjum fyrir
norðan. Þá fékk ég hjálp og fór líka að
starfa með Geðhjálp. Nú á ég sæti í
nefnd á vegum Félagsmálaráðuneyt-
isins þar sem verið er að leggja fram
fimm ára áætlun í málefnum geðfatl-
Geðsjúkir ekki ofbeldishneigðir
Hún segir fordóma gagnvart geð-
sjúkum mikla í samfélaginu og einna
verst finnst henni sú mynd sem dreg-
in er upp af þeim í kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum.
„Þar er dregin upp alröng mynd
af þeim," segir hún. „Geðsjúkir eru
ekki ofbeldishneigðir, eins og þeir
eru sýndir í myndunum. Vissulega
neyta þeir vímuefna eins og fjöldi
annarra og stærsti hluti alira ofbeld-
isverka er unninn þegar fólk er undir
áhrifum eiturlyija og vímuefna. Þeg-
ar geðsjúkir neyta vímuefna, þá eru
það efnin sem ýta þeim fram af brún-
inni, en ekki sjúkdómurinn. Ég þekki
geysilega marga sem eru veúdr á
geði, en hins vegar mjög fáa sem eru
geðveikir og ofbeldishneigðir. Það
hefur líka verið of algengt inni á geð-
deildum að þar er ekki borin virð-
ing fyrir sjúklingunum. Starfsfólkið
vill að þeir séu eins og lítil börn. Lyf-
in slæva geðsjúka mikið og það er
það sem mér finnst einna sorglegast
að sjá við Kristján minn. Hann sýnir
engar tilfinningar. Mín draumsýn er
sú að geðsjúkir fái að taka þátt í líf-
inu á sínum forsendum; að þeir séu
ekki dæmdir í útlegð vegna veikinda
sinna."
Ljúfasta gleðin
Þegar Gunnhildur vill hvíla sigfrá
amstri hversdagsins les hún Ijóð.
„Mér finnst þetta knappa form
svo skemmtilegt," segir hún og bætir
við að oft hafi hún lesið ljóð upphátt,
bæði fyrir sjálfa sig og Vöku.
„Þótt ég hafi verið heimagang-
ur hjá Davíð Stefánssyni skáldi, þá
er Ingibjörg Haraldsdóttir eftirlætis-
ljóðkáldið mitt. En það er þó eitt er-
lent ljóð sem ég hef mikið dálæti á og
það ljóð las ég oft upp á Þroskahjálp-
arþingi. Þetta er ljóð eftir Axel Juel,
sem í þýðingu Magnúsar Ásgeirsson-
ar heitir Gleðin, sorgin og sælan, og
ég hef tileinkað Vöku minni:
Ljúfasta gleði allrargleði
er gleði yfir því, sem er alls ekki neitt,
engu sem þér er á valdi eða í vil
gleði yfir engu og gleði yfir öllu
oggleðin að þú ert til.
annakristine@dv.is
DV-mynd: Anton
HLYJAR
' VETUR
HUFUR
SEM
HLÆJA
Skólavörðustíg I 8
www.hsh.ehf.is
YOGASTOÐIN HEILSUBOT
Síðumúla 15, s. 588 5711 og 694 61 03
YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
Sértímar fyrir byrjendur og
barnshafandi konur. www.yogaheilsa.is
NÝTT! Astanga yoga
SOLBAÐSTOFA
Selásbraut 98 S: 5675600
Viltu prófa eitthvað nýtt?
Víð á Glabí víljum bjóða þér og þínum
30% afslátt af matseðlí okkar.
Eina sem þú þarft að g'era er að klíppa þessa auglýsíngu
út og afhenda það við komuna!
íslenskt hráefní eldað á
kóreskan máta, það geríst
ekkí betra!
Víð á Galbí bjóðum upp á ferskt og vel valíð
hráefní sem þú gríllar síðan á ekta kóreskrí
gríllpönnu, flutt ínn sérstaklega fyrír okkur.
ÓAiei WWtoA
KOREAN#BARBEQUE
Barónstígur 2-4, Reykjavík • Sími 544 4448
s: 867 4448 • galbi@galbi.ís
Tílboðíð gíldír alla daga fram að 29.okt
*flTH tílboðið gildír ekkí um drykkí með VN eða öðrum tílboðum*