Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 13. ÖKTÓBER2006 Fréttir DV Hjónin Berglind Ásgeirsdóttir og Ómar Andrés Gunnarsson, sem oft eru kennd við tískuvöruverslanirnar ZikZak, hafa fest kaup á tæplega 600 fermetra glæsivillu í Þingahverfinu í Kópavogi. Húsið er enn sem komið er á teikniborðinu en gert er ráð fyrir að það verði risið næsta sumar. Talið er að kaupverðið sé ekki undir 180 milljónum króna. ZikZak-hjónin kaupa klæðskerasaumaða 600 fermetra glæsivil Glæsihúsin rísa úti um allt höfuðborgarsvæðið. Nú hafa ZikZak- hjónin Berglind Ásgeirsdóttir og Ómar Andrés Gunnarsson fest kaup á glæsivillu í Heiðaþingi 5 til 7 í Kópavogi. Villan, sem er ekki enn risin, verður tæpir 600 fermetrar og klæðskerasaumuð í kringum þarfir hjónanna og barnanna þeirra tveggja. „Þetta er nú bara ævintýra- mennska," sagði Ómar Andrés Gunnarsson við blaðamann DV þegar hann var spurður hvað ræki hann og eiginkonu hans Berglindi Ásgeirsdóttur út í að kaupa risastórt hús í Kópavogi sem enn er á teikni- borðinu. „Tímasetningin á þessu hentar okkur mjög vel. Eldra barnið erkom- ið í framhaldsskóla og það yngra klárar grunnskólann næsta vor. Það eru allir mjög spenntir enda fá all- ir fín og stór herbergi," sagði Ómar en fjölskyldan býr nú í tæplega 200 fermetra einbýlishúsi í Smárarima í Grafarvogi. Sérálma fyrir börnin Gassa arkitektar í Danmörku, Guðni Tyrfingsson og Auður Al- freðsdóttir, sjá um að teikna hús- ið bæði að utan og innan, en fata- kaupmaðurinn fris Björk Jónsdóttir í GK hefur umsjón með verkinu. íris sagði í samtali við DV að hún myndi sjá um allt. „Ég bý meira að segja um rúmin fyrir þau áður en þau koma. Þau fá bara lykla og mæta svo," sagði íris og hló. Arkitektarnir hafa hannað hús- ið þannig að það lagar sig að lóð- inni, útsýni og áttum, jafnframt því að vera klæðskerasaumað fyrir þarfir fjölskyldunnar. Aðkoman er glæsileg og myndar hátt rými með göngubrú og seitlandi vatni. Frá göngubrú er yfirsýn yfir húsið sem opnar sig út á móti fjallasýn. Húsið er hannað í svokölluðu „opnu plani" „Þetta er nú bara ævin- týramennska." þannig að innri rými renna saman. Húsinu er deilt upp í fjórar álm- ur. Stofur og íverurými, svefnálmu foreldra og 100 fermetra unglinga- álmu með sérinngangi sem hægt er að hafa opna eða lokaða að vild. Á neðri hæð er stór bílageymsla og líkamsræktarsalur með 15 fermetra útilaug. Aðspurður sagði Ómar að ekki væri um sundlaug að ræða held- ur heita laug til afslöppunar: „Ef við þurfum að fara í sund, þá förum við bara í Laugardalslaugina." Verslanirnar ganga vel Þau hjónin Berglind og Ómar reka nú ZikZak Tískuhús sem er með sex verslanir víðs vegar um landið. Fyrirtækið var stofnað árið 2001 en stuttu áður hafði Berglind selt reksturinn á Trimmformi Berg- lindar. „Þetta hefur undið upp á sig. Við byrjuðum með eina búð í Graf- arvoginum en síðan þá höfum við opnað búðir í Hamraborg í Kópa- vogi, Firðinum í Hafnarfirði, Kefla- vík, á Selfossi og síðan í Mörkinni í Reykjavík þar sem höfuðstöðvar fyr- irtældsins eru. „Þetta gengur allt saman vel. Þetta er auðvitað viðamikið en við kvörtum ekki. Það er nóg að gera og á meðan svo er njótum við þess," sagði Ómar. oskar@dv.is Heima f Smararimanum Hjónin Bergiind og ÓmarAndrés hafa komið sér vel fyrir f Smárariman- um. Þau ætia að flytja f Heiðaþingið næsta sumar. DV-mynd Hörður GASSA ARKITEKTAR Heiðaþing 5-7 Eins og sja má á BYLTING I SVEFNLAUSNUM BETRI HVÍLD, DÝPRI SVEFN OG MEIRI VELLÍÐAN. . Rúmgott er leiðandi í þróun og framleiðslu á heilsudýnum og rúmbotnum undir vöru- merkinu EZ-sleep á íslandi. Við höfum yfir að ráða fullkomnum tækjabúnaði til að mæla þrýstijöfnun á líkama hvers einstaklings sem gerir okkur kleift að framleiða svæðaskiptar heilsudýnur sniðnar að viðkomandi. FRÍ LEGUGREINING OG FAGLEG RAÐGJÖF Verslunin Rúmgott • Smiðjuvegi 2 • Kópavogi • Sími 544 2121 Opið virka daga frá kl. 10-18 - laugardaga kl. 11-16 •->-— www.rumgott.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.