Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 13. ÖKTÓBER2006
Helgin PV
Arnar Freyr Einarsson
Lét spurningamar dynja á
Magna Ásgeirssyni.
' m
„ x. z ,1 s, -
Blaðamaður vikunnar heitir Arnar Freyr Einarsson. Þegar
Arnar var spurður við hvern hann vildi taka viðtal svaraði
hann hiklaust: „Magna Ásgeirsson" Magni er maður fólksins
og játaði beiðni Arnars samstundis. Arnar kom vel undirbúinn
fyrir viðtalið enda vanur blaðamennskunni þar sem hann er
ritstjóri vefsíðu 4. bekkjar í Hólabrekkuskóla. Arnar var eðli-
lega mjög spenntur yfir því að hitta stjörnuna en þrátt fyrir það
var hann svalur og spurði spurninganna fagmannlega, spurn-
inga sem hann samdi í samráði við bekkjarfélaga og kennara.
Hundfúll yfír að
,Þetta var líklegaþað skrýtnasta sem ég hefgert en
á sama tíma það skemmtilegasta," segir MagniÁs-
geirsson um þátttöku sína í RockStar: Supernova.
tapa fýrir Toby
fbyggnir og svalir
iausandi rigningu -
alvöru rokkarar.
Það var mikil eftirvænting í Perlunni þegar Arnar beið eftir að
Magni kæmi í hús. Mamma Arnars og systir voru með honum í
för og þær voru ekki síður spenntar yfir komu stórstjörnunnar.
Myndavél heimilisins var með í för og þegar Magni nálgaðist að-
dáendurna var ófáum myndum smellt af töffaranum Magna.
Arnar er fagmaður og gekk beint til verks.
Hvar ólstu upp?
„Ég er fæddur á Egilsstöðum 1.
desember 1978 sem þýðir að ég er
næstum því 28 ára gamall. Ég ólst
svo upp á Borgarfirði eystri á sveita-
bæ hjá mömmu og pabba og þar bjó
ég þar til ég var 15 ára en þá fór ég
í heimarvistarskóla á Eiðum. Þegar
þeirri vist lauk fór ég í Menntaskól-
ann á Egilsstöðum." Viðtalið rask-
ast nú aðeins vegna þess að Marínó,
sonur Magna, heimtar alla athygli
pabba síns. „Það verður nú gaman
að hafa þig grenjandi á diktafónin-
um," segir Magni í góðlátlegum tón
við velheppnað afkvæmi sitt. í þeim
töluðu orðum kemur Eyrún Huld
Haraldsdóttir, kona Magna, synin-
um til bjargar.
Hver voru áhugamál ykkar
vinanna þegar þið voru litlir?
„Þar sem ég ólst upp í sveit lék-
um við okkur helst úti. BMX-hjól
og byssó voru vinsælustu útileikirn-
ir. Svo eyddi ég miklum tíma í Nin-
tendo-tölvunni minni. Svo var það
auðvitað tónlistin."
Var það draumur þinn að verða
söngvari þegar þú varst lítill?
„Já það er búið að vera draumur
minn síðan ég var, ja, allavegana 10
ára. Draumurinn rættist og það er
auðvitað mjög ánægjuiegt." Arnar
vill vita nákvæmlega hvenær Magni
byrjaði að syngja. „Ég söng alltaf há-
stöfum á leið minni heim úr skólan-
um og sú hefð byrjaði líklegast þegar
ég var 6 ára. Þegar ég var 11 ára söng
ég svo fyrst í míkrafón þegar hljóm-
sveitin okkar Borgfirsku geimgrís-
irnir var stofnuð." Nú skella allir upp
úr enda með undarlegri hljómsveita-
nafngiftum. „Svolítið súrt nafn, ég
veit það. Við styttum það svo fljót-
lega niður í Geimgrísirnir" segir
Magni hlæjandi.
Hvernig fannst þér að taka þátt
í Rock Star: Supernova?
„Það var æðislega erfitt, æðis-
lega gaman og allt þar á milli. Þetta
var líklega það skrýtnasta sem ég hef
gert en á sama tíma það skemmtileg-
asta. Ég held að ég hafi lært meira af
þessu en að vera í skóla í 10 ár. Mjög
mikil lífsreynsla."
Varstu stressaður að syngja
fyrir framan milljónir manna?
„Nei, ég er alveg hættur að vera
stressaður þegar ég er að syngja. Alveg
sama hvað það eru margir að horfa á.
Þetta er jú starfið mitt. Það væri eins
og maðurinn sem seldi mér kaffi áðan
væri stressaður yfir því að selja kafB.
Þetta er bara það sem ég geri."
Hvernig tilfinning
var það að komast í
úrslit?
Það var ólýsanlega
ánægjulegt. Þetta var
markmiðið. Það að
vinna var í sjálfu sér
ekkert lykilatriði - bara
að komast svona langt,
Ég vildi auðvitað ekki
tapa fyrir Toby, en ég
gerði það nú samt og
var hundfúll yfir því,"
segir Magni og glottir.
„En ég hef nú eignast
vini sem teljast til bestu
vina minna í dag. Frá-
bært fólk. „Hverjir voru
skemmtilegastir?" spyr Arn-
ar áhugasamur. „Toby, Storm, Dilana
og Lukas standa upp úr. Flestir kepp-
endurnir voru skemmtilegir en svo
voru svona einn og einn sem bara
pössuðu ekki inn í."
„Takk fýrir," segir Arnar kurteis og
Magni slekkur á diktafóninum. Arn-
ar réttir Magna nafnspjaldið sitt. Á
nafnspjaldinu stendur: Arnar Freyr
Einarsson, ritstjóri. Magna þyk-
ir mikið til koma og spyr: „Ætlar þú
að verða blaðamaður þegar þú ert
orðinn stór?" „Nei, ég ætla að verða
söngvari eins og þú," segir Arnar og
aðdáunin leynir sér ekki.
Arnar Freyr Einarsson tók viðtalið.
Berglind Hásler tók saman.
Ætli Arnar eigi eftir að
feta ffótspor Magna? Við
skulum sjá, við skulum sjá.