Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Side 32
52 FÖSTUDAGUR 13. OKTÓBER2006
Helgin DV
Varagloss: „Ég er eins og iðnaðarmaður-
inn sem gerir aldrei neitt heima hjá sér - ég
mála mig nefninlega ekki mikið. Ég legg
áherslu áaðhafa húöina fallega svo set ég
á mig maskara og varaliti eða varagloss.
Þetta finnstmér
ofsalega gott
varagloss og það
ertilffulltaf
JF P
litum."
A K
Augndropar: „Þetta
fæst reyndar ekki hér á
landi svo ég panta
þetta á ebay.com. Ef
augun erþrútin og
\j rauðsprungin af
miklu vinnuálagi
þáergottað setja
þetta f augun og
hvítan verður
hvítari enn hvftt.
Það má þó
aðeins nota
þetta f hófi!'
Serum: „Góður grunnur
undirpúðureða meik. Fyllir
upp I opna húð og finar
llnurþannig að húðin
virkar sléttog falleg."
Maskari: „Þessi maskari er einn sá besti
sem ég hefprófað. Hann þykkir og lengir
augnhárin og ég meina það mér finnst eins
og augnhárin mln hafa iengst við að nota
hann," segir Margrétog hlær.
Varasalvi: „Þetta er ofsalega góður og
græðandi varasaivi. Hann er llka fjölnota
þvl efmaður er með þurrkubletti á veturnar
ergottað bera
hanná
blettina og
árangurinn
læturekkiá
sérstanda.
Þessi eralltaf
ísnyrtibudd-
inni minni."
Þann 21. september síðastliðinn opnaði Margrét R. Jónasar sérvöruverslun-
ina Make Up Store í Kringlunni.„Það eru bara tvær vikur síðan og ég hef
ofsalega gaman að þessu." Margrét hefur unnið í snyrtivörugeiranum í 12 ár.
„Ég hef reyndar verið að mála vinkonur mínar frá því á fermingaraldri. Ég
lenti til dæmis í því tvisvar í sumar að hitta gamlar vinkonur sem fóru að rifja
það upp með mér að ég hefði alltaf verið að mála þær," segir Margrét
hlæjandi. Margrét segir að henni þyki skemmtilegast að farða fyrir tískusýn-
ingar.„Mér finnst líka ofsalega gaman að farða konur áður en þær fara
eitthvað fínt." Hægt er að fara i búðina til Margrétar í förðun en auk þess
býður hún upp á námskeið fyrir konur sem vilja læra réttu handtökin og
hjálpar konum við að velja vörur sem hentar þeim best. Þeir sem vilja fræðast
meira um Margréti og búðina hennar er bent á heimasíðuna hennar margret.
is en sfðan er mikið áhugamál Margrétar og þar er hægt að fræðast um
ýmislegt sem viðkemur útliti.
Árelía Eydís Guðmundsdóttir, lektor við viðskipta- og hagfræði-
deild Háskóla íslands, hefur skapað sér gott orðspor sem fyrirles-
ari. Árelía gaf út bókina Móti hækkandi sól fyrr á þessu ári og
hefur fengið mikil viðbrögð frá lesendum.
Ekki vera míní-
útgáfur af körlum
Árelia Eydís Guðmundsdóttir
Hefurýmislegt áhugavert til
máianna að leggja þegar talið
berst að atferli mannanna.
5
Árelía er með doktorspróf í
stjórnunarfræði en hún lærði bæði
hér heima og í Bretlandi. Þegar hún
hóf menntagöngu sína hafði hún
í raun ekkert áveðið lokamarkmið
með menntun sinni. „Þetta einfald-
lega æxlaðist svona. Ég hef mikinn
áhuga á atferli fólks svo stjórnun-
arfræði er eitthvað sem hentar mér
mjög vel. Svo er maður svo ráðríkur,"
segir Árelía og hlær.
Systir mín tók sitt eigið líf
Fyrr á þessu ári gaf Árelía út bók-
ina Móti hækkandi sól sem fjallar
um von og heppni eða hvernig hægt
er að verða vongóður og heppinn.
Hvað kom til? „Það voru persónu-
legar ástæður fyrir útgáfu bókarinn-
ar en systir mín tók sitt eigið líf - hún
missti alla von. Bókin er tileinkuð
henni." Bókin selst jafnt og þétt og
sat á metsölulista um tíma. „Þeir eru
margir sem hafa lesið bókina sem
hafa haft samband við mig og þakk-
að mér fyrir að hafa hvatt þá áfram
og það finnst mér mjög ánægjulegt."
Leiðtogamunur á konum og
körlum
Fram undan hjá Árelíu er fyrir-
lestur sem hún ætlar að halda á Kon-
an, en það er uppákoma sem hald-
in verður í Laugardalshöll helgina
20.-22. október. Fyrirlesturinn sem
Árelía verður með ber það skemmti-
lega nafn Hvað er svona skemmti-
legt við það að vera kona? „Leiðtoga-
fræðin segir okkur að það er munur
á konum og körlum þegar kemur að
stjórnun. Það er ýmislegt sem konur
hafa fram yfir karla á þessu sviði en
svo er líka ýmislegt sem við getum
lært af körlunum. Að bregðast við
öfund er eitt dæmi og samkeppni er
annað. En svo er auðvitað mjög mik-
ilvægt að við höldum áfram að vera
konur en verðum ekki einhverjar
míníútgáfur af körlunum."
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú ert orðin stór?
í nóvember ædar Árelía að halda
námskeið í samstarfi við Petrínu
Mjöll Jóhannesdóttur undir yfir-
Athafnakonan
skriftinni Hvað ædar þú að verða
þegar þú ert orðin stór? „Við höfum
haldið þetta námskeið áður og það
var stórskemmtilegt. Það sem við
reynum að fá fólk til að gera er að
staldra við og endurskoða stöðu sína
í líflnu. Við búum til óskaspjald sem
virkar þannig að viðkomandi klippir
hugsunarlaust út úr tímariti og rað-
ar úrklippunum á þar til gert spjald.
Það er ótrúlega skemmtílegt að gera
þetta og ég hef sjálf gert þetta í mörg
ár. Það sem er svo hægt að lesa út úr
óskaspjaldinu er hvað viðkomandi
óska sér heitast. Það var til dæmis
ein kona sem var hjá okkur á fyrsta
námskeiðinu sem hafði látið sig
dreyma um að búa erlendis í mörg
ár - hún er nú flutt." Þeir sem vilja
fylgjast með fyrirlestrum og nám-
skeiðum Árelíu er bent á heimasíðu
hennar areliaeydis.com.
13 ráð tílað gera vinnudaginn ógleymanlegan
1. Fteyndu að komast að þvíhvar
yfirmaður þinn verslarog keyptu
alveg eins dress og hann. Farðu svo í
gallann daginn eftir að yfirmaðurinn
hefur verið í honum. Þetta er
sérstakiega áhrifaríkt efyfirmaður
þinn er aföðru kyni.
2. Búðu til gælunöfn á alla sem
vinna með þér. „Þetta er góður
punktur hjá þér Moli minn." „Nei, ég
verð að vera ósammála þérþarna Fí
fí."
3. Sendu tölvupóst á alla sem vinna
með þér og segðu þeim nákvæmlega
hvað þú ert að gera.
4. „Ef einhver þarf á mér að halda
þá verð ég á klóinu,"skaltu hrópa í
hvert sinn sem þér er mál.
5. Tússaðu á skóna þína með
yfirstrikunarpenna og segðu svo
fólki að þú hafir ekki týnt þeim eins
oftogþú gerðir áður.
6. Settu moskitónet umhverfis
vinnurýmið þitt og sláðu þig stöðugt
utan undir þegar þú þarft að standa
upp.
7. Settu stól fyrir framan prentar-
ann, sittu þar allan daginn og segðu
fólki aðþú sért að bíða eftir skjalinu
þínu.
8.1hvert skipti sem einhver biður
þig um að gera eitthvað segðu „má
bjóða þér franskar með því?"
9. Sendu sjálfum þér tölvupósta
fram og til baka líkt og þú eigir i
gáfulegum rökræðum við sjálfan
þig. Áframsendu svo tölvupóstana á
vinnufélagana og biddu þá um að
leysa deiluna.
10. Hækkaðu í tónlistinni og bjóddu
einhverjum vinnufélaganum upp i
lítinn stóladans (stólarnir verða að
vera á hjólum)
11. Feikaðu óeðiiiegan og móður-
sýkislegan ótta við heftara.
12. Sendu tölvupóst á alla og
segðu að það sé ókeypis pitsa
eða kaka í mötuneytinu.
Þegar fólkið kemur svo
aftur, pirrað yfir þvi að
hafa farið fýluferð, hallaðu
þér þá aftur í stólinn,
klappaðu á magann á þér
og segðu: „Þið verðið að
vera fljótari en þetta".
13. Settu koffínlaust kaffi í
kaffikönnuna í þrjár vikur.
Um leið og allir eru komnir
yfir fráhvarfseinkennin -
skiptu þá yfir í espresso.