Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2006, Síða 39
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 13. ÖKTÓBER2006 59
Athygli DV beindist nýlega að bloggsíðu ungrar konu, Heiðrúnar Bergsdóttur, þar sem hún fer
hamförum um menn og málefni í heilögu stríði gegn lygum, svikum og misgjörðum með sverð
sannleikans að vopni og stóra sleggju til vara.
Þegar reiðin brýst út
Eftir áralangt einelti, sem leiddi til brotinnar sjálfsmyndar og
flótta inn í aðra heima braust reiðin út, stjórnlaus og ómarkviss
en í leit að blórabögglum. Allt var ekki lengur henni að
kenna eins og henni hafði verið talið trú um. Nú finnst
henni loksins að hún hafi fundið sjálfa sig og er tilbúinn til
að mæta lífsins góðu og slæmu hliðum, mæta lífinu eins og
það er. Við erum komin inn í heim Heiðrúnar Bergsdóttur,
31 árs gamallar stúlku úr sveitum Suðurlands.
„Ég er bara brjálaða kerling- J S ^^■■■■■V /
in héma í þorpinu en ég á góða I m '
granna og hér líður mér á margan f éj ^
hátt vel en ég er bara svo rosalega yjrl "
reið. Ég hef gefið fólki hjarta mitt E3 ^
og traust en alla tíð verið misnot-
uð eins og gólftuska, verið hald- t fjj .
ið niðri og afskrifuð sem geðveik mm
bara af því að ég var feit og hafði | j Bm
skap. Ég átti bara að vera þæg og
góð, halda kjafti og gera eins og
var sagt." B
„Eg er alin upp i sveit en var ||
skóla á Selfossi. l>ar var ég stöðugt
lögð í einelti og þeir sem eru lagð-
ir í einelti eignast enga vini. Það
þorir enginn að vera \anur þeirra.
Ég flúði inn á bókasafnið og fékk
að vera óáreitt þar inni í einhverri
skonsu. Svo fór ég skyndilega að
fima og þá ágerðist eineltið og það
eina sem ég gat gert var að reyna
að láta mig hverfa. Finna einhverja
línu þar sem ég gat verið ósýnileg
því ég fékk engan stuðning, hvorki
frá foreldmm mínum, kennaran-
um eða neinum öðrum. Eineltið
var alltaf mér að kenna og svo átti
ég bara að grenna mig og þá yrði
allt gott. Ég held að ég hafi í raun
fengið mörg taugaáföll á þessum
árum."
Eignaðist vini í fjölbraut
„Það gekk betur þegar ég kom
í fjölbraut og fyrsta árið var æðis-
legt. Ég eignaðist fullt af vinum og
skemmti mér konunglega en síð-
an fór ég sem skiptinemi til ítalíu
og þegar ég kom til baka var allt
breytt. Ég varð aftur útundan og
mér var til dæmis ekki boðið í af-
mæli eða partí og ef ég svaf hjá ein-
hverjum strákum þá báðu þeir mig
um að segja ekki frá því. Þannig að
á endanum gaf ég skít í allt þó að
ég hætti ekki í skólanum."
Fór á sjóinn
„Ég réð mig á netabát og líkaði í
raun mjög vel á sjónum þrátt fyrir
að margir af köllunum væru leið-
inlegir við mig. Þetta var hrikalega
erfið vinna en ég er alveg til í að
fara á sjóinn aftur. Við vorum að
veiða skötusel utan kvóta og gekk
vel en fengum samt aldrei borgað
nema trygginguna. Það versta var
Heiðrún segist ekki hræðast neitt Með
sannleikann að vopni og sleggjuna til
varaerhún örugg.
reyndar hvað við höfðum lélega
hnífa, fáránlegt að gera að fiski
með ónýtum hnífum. En ég var
sjóveik með vöðvabólgu, hrikalega
feit og á geðlyfjum op skíthrædd
um að detta í sjóinn. I raun mun-
aði minnstu að ég dræpi mig í eitt
skiptið því ég var yfir mig þreytt og
rugluð af geðlyfjunum þegar dreki,
sem festur var í trossuna, kom
fljúgandi og var nærri búinn að
kippa mér með í sjóinn. Merkilegt
noldc tókst mér að stökkva undan
og þó að hann rækist aðeins í lærið
á mér fékk ég bara marblett. Ég var
svo þreytt að ég tók varla eftir því
og hélt áfram að vinna."
Aftur í sambúð og
geðlyfjasúpa
„Ég kynntist síðasta sambýl-
ismanni mínum á þessum tíma
og var alveg græn fyrir því hvern-
ig hann var sem manneskja. Yfir-
borðið slétt og fellt, hvers manns
hugljúfi sem ekki drekkur, ekki
reykir og hjólar um allar trissur.
En hann stjórnaði mér algerlega
með sálfræðinni. Vafði mér um
fingur sér eins og tvinna. Mokaði
í mig mat og gerði mig ennþá feit-
ari þangað til sjálfsmyndin var al-
veg í klessu og hélt stöðugt að mér
geðlyfjum. Ég var bara geðveik og
Þegar ég losnaði við
sambýlismanninn í
sumar tók ég mig rosa■
legu taki og heflést
um 50 kíló en er samt
ennþá svona stór.
feit. En öll þessi geðlyf gerðu mig
sljóa."
Alltaf ein og einmana
„Þetta hefur lengi verið ein-
manalegt líf, sem hefur verið erf-
itt því í raun er ég mjög mikil fé-
lagsvera. Samt vil ég ekki kalla
neitt erfitt í dag. Ég vil takast á
við mig og mín vandamál en ég
vil að mér sé sýnd virðing og ekki
afgreidd sem vonlaus bara af
því að ég er feit eða kölluð rugl-
uð eða geðveik. Þegar ég losn-
aði við sambýlismanninn í sum-
ar tók ég mig rosalegu taki og hef
lést um 50 kíló en er samt ennþá
svona stór. Auðvitað langar mig
að eignast mann og börn eins og
alla aðra og auðvitað vil ég vera
sæt og falleg en ég er á góðri leið
með að byggja upp sjálfstraust-
ið og það gerir mig brjálaða að
mæta svona mikilli mótspyrnu
við það. Þegar ég er svona reið
forðast fólk mig auðvitað og jafn-
vel undirheimalýðurinn er skít-
hræddur við mig. Ég veit ansi
margt um marga í þjóðfélagsstig-
anum og gæti auðveldlega gert
mönnum meiri skráveifu en ég
er að gera á blogginu mínu. En
í raun þá held ég að það sé bara
einni manneskju sem virkilega er
illa við mig. En þetta er einmana-
legur tími það er alveg satt."
Reið út í karlmenn
„Ég hef sótt í þessi vonlausu
sambönd af því að ég hef átt svo
erfitt með að vera ein. Einelt-
ið og einmanaleikinn sem fylgdi
því er svo djúpstæður að maður
er nánast með hverjum sem er og
hvernig sem er bara til að þurfa
ekki að vera ein. En flestir þessir
menn sem ég hef hitt eru skíthæl-
ar með örfáum undantekning-
um og ég tek á þeim sem slíkum.
Tukta þá til þegar þeir eiga það
skilið og sumum finnst þeir þurfi
þess með því að þeir hafa vonda
samvisku. Kannski er ég að hefna
mín á þeim fyrir allar misgjörð-
irnar sem ég hef orðið fyrir þegar
ég er að niðurlægja þá."
Heiðrún og Krummi Heiðrún
býr ein með fjórum köttum.
Heiðrún reiðir hátt til
höggs á bloggsíðu
sinni Sleggjan á llka að
verja hana gegn ofsókn-
um og hótunum.
ð2oml
fituskert
og eggjalaus
Frískandi kostur
VOGABÆR
Sfmi 424 6525 www.vogabaer.ls
A