Freyr - 01.11.1966, Side 5
FREYK
455
FREYR
BÚNAÐARBLAÐ
Nr. 21 - 22 — nóvember 1966
62. órgangur
Útgefendur:
BÚNAÐARFÉLAG ÍSLANDS
STÉTTARSAMBAND BÆNDA
Útgáfustjórn:
EINAR ÓLAFSSON
HALLDÓR PÁLSSON
PÁLMI EINARSSON
Ritstjórn:
AGNAR GUÐNASON
GÍSLI KRISTJÁNSSON
(ábyrgðarmaður)
Heimilisfang:
PÓSTHÓLF 390, REYKJAVÍK
BÆNDAHÖLLIN, REYKJAVÍK
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
Reykjavík - Sími 38740
Ritstjórn, innheimta, afgreiSsla og
auglýsingar:
Bœndahollinni, Reykjavík — Sími 19200
EFNI:
Vetur er gangin í garð
Sprengi- og eiturhœtta
Reglugerð um flutning og geymslu
á ammóníumnítratáburði
Beitarþol afrétta
Nythœstu kýr
HvaS er að vélinni?
Þjóðsögur, œvintýri og list
Verðlagsgrundvollur
landbúnaðarins 1966-1967
Greinagerð um verðlagsgrundvöllinn
Skrá yfir búvöruverðið
NPK — áburður
Húsmœðraþáttur
Búfrœðingar 1966
Útlönd
Bœkur
Molar
Vetur er genginn í garð
Sumri fylgir vetur að vanda. Við lok umliðins sum-
ars má um það segja, að hvergi varð það gjöfult til
sveita, sumstaðar naumgjöfult svo að vandi er á hönd-
um að ýsmu leyti af því að eftirtekjan varð af svo skorn-
um skammti.
TJppskera kartaflna hrást að langmestu leyti. Þar sem
hún varð hezt er talið að hún hafi orðið í hæsta lagi 6—8
föld, annarsstaðar aðeins 3—4 föld og svo voru til þeir
staðir, sem alls ekki var haft fyrir því að taka þær úr
moldu.
Eftirtekja annarra garðjurta, utan gróðurhúsa, varð
einnig næsta takmörkuð. Og svo er fóðurfengur hænd-
anna, en hann mun varla vera yfir meðallag í nokkurri
sveit, nema ef það skyldi vera til á Austurlandi. Gras-
spretta var sæmileg til fyrri sláttar en síðari sláttur
varð víðast alls enginn. Köl voru nokkur hér og þar og
einkum á túnum, er yrkt hafa verið sem sáðlönd en í
ýmsum sveitum var grasleysi mjög tilfinnanlegt á viss-
um hæjum svo að eftirtekja varð eftir því. Klaki í jörðu
langt á sumar fram, jafnvel þangað til í septemher, og
kuldar, einkum framan af sumri, hafa valdið takmark-
aðri eftirtekju. En gera má ráð fyrir að heyin séu góð
í vetur, þau verkuðust yfirleitt vel.
Vegna takmarkaðs fóðurfengs má húast við að færra
verði á fóðrum en í fyrra og einkum er áherandi kapp
hænda að losna við kýrnar. Forðagæzla er framundan
svo að of snemmt er að segja nokkuð ákveðið um fóður-
magn og fjölda búfjár, sem á vetur er settur, en hitt má
hrýna fyrir bœndum, nú eins og œvinlega, að skyn-
samlegur ásetningur er langmesta hagsýnin sem hónd-
inn getur heitt.
Kraftfóðurgjöf er eðlileg og sjálfsögð til þess að fá
sem mestar afurðir af hverri skepnu. Skepnan kostar
það sama hvort sem hún gefur mikið eða lítið, rúm
hennar í fjósi eða fjárhúsi kostar jafnmikið hvort sem
hún er afburðaskepna eða afstyrmi. Og af heyfóðri einu
getur afurðasæl skepna ekki framleitt nema takmark-
aðar afurðir. Þessvegna þarf kraftfóður til, en það er
vandi að nota það rétt. Á hustnóttum þarf hver hóndi
að athuga gang sinn í þessu efni og um nýár þarf hver
einasti bóndi að eiga fóður heima, er nœgi þangað til
í júní. Þetta er rétt að hugfesta nú, þegar vetur er kom-
inn. G.