Freyr - 01.11.1966, Side 6
456
FREYR
RÚNAR BJARNASON:
SPRENGI- OG EITURHÆTTA
SlökkviliSssljóri
Inngangur
Nokkuð hefur verið um það fjallað í blöð-
um og tímaritum á undanförnum árum,
hversu mikil sprengi- og eiturhætta væri
af ammoníumnitratáburði þeim, sem fram-
leiddur er í Áburðarverksmiðjunni h.f. og
nefndur er Kjarni. í erindi því, sem hér fer
á eftir, skal að nokkru leitazt við að varpa
ljósi á þetta mál, ef vera mætti, að frekari
vitneskja um eðli málsins gæti orðið til þess,
að forðast mætti slys eða hættuástand af
völdum Kjarna. Slíkt hættuástand er ávallt
hugsanlegt, þar sem nokkurt magn af
Kjarna er fyrir hendi, til dæmis ef eldur
kemur upp í geymslum, skipum eða öðrum
flutningatækjum fyrir áburðinn.
í aprílmánuði 1947 átti sér stað í Texas
City í Bandaríkjunum sprenging í ammon-
íumnitraáburði, þar sem fórust að minnsta
við slökkvistörf
i ammoníumnitratbruna
Höfundur eftirfarandi greinar hefur starfaS sem verkfrœðingur
viS ÁburSarverksmiSjuna í Gufunesi í nokkur undanfarin ór en
hefur nú nýlega veriS róSinn slökkviliSsstjóri í Reykjavík.
Ritstjóri.
kosti 468 manns og tjón á verðmætum var
áætlað 3000 milljón ísl. krónur. Þessi
sprenging skeði við eldsvoða, sem kom upp
í flutningaskipi, sem var hlaðið ammon-
íumnitratáburði. Eldur læsti sig síðan um
nærliggjandi hverfi og olíustöðvar.
Önnur sprenging átti sér stað í Uleáborg í
Finnlandi í janúarmánuði 1963. Þessi
sprenging skeði í ammoníumnitratverk-
smiðju á framleiðslustiginu. Fórust þar níu
starfsmenn, verksmiðjan gjöreyðilagðist og
rúður brotnuðu í nærliggjandi húsum.
Miklar rannsóknir hafa farið fram til að
reyna að fá úr því skorið, við hvaða aðstæð-
ur hætta á sprengingu er fyrir hendi. Sér-
stök áherzla hefur verið lögð á hegðun
efnisins í eldsvoða, og hættur í sambandi
við slökkvistörf. Árangur þessara rann-
sókna er sá, að nú er talið mögulegt að gefa
greinargóða lýsingu á sprengieiginleikum
efnisins og hegðun þess í eldi. Einnig er tal-
ið fært að gefa viðhlítandi leiðbeiningar
um geymslu efnisins, eldvarnir og slökkvi-
starf á þeim stöðum, þar sem efnið er til
staðar.