Freyr - 01.11.1966, Side 8
458
FREYR
í birgðaskemmu og á flutningabíl er
varla mögulegt, að svo hár þrýstingur geti
myndazt, og talið útilokað, ef rétt er farið
að við stöflun efnisins.
Loftræsting húsa, dyr og gluggar gera
það að verkum, að loftþrýstingur nær ekki
að byggjast upp, og hætta á því, að hitastig-
ið nái sprengimörkunum er talin hverfandi.
1. c. íblöndunarefni
Ammoníumnitratið, sem sprakk í Texas
City, var húðað með vaxi til að minnka
rakasækni og sambökun þess. Það er nú al-
mennt viðurkennt, að vaxið hafi aukið
sprengihæfnina og það hafi auk þess aukið
á varmamagnið, að vaxið tók að brenna. Af
þessum sökum hefur verið tekið fyrir notk-
un á vaxi, sem húðunarefni fyrir ammon-
íumnítraáburð. Farið er að nota húðunar-
efni sem ekki geta brunnið, í staðinn t.d.
kísilgúr.
Það þykir einnig sýnt, að önnur lífræn
efni og sum ólífræn efni geta aukið sprengi-
hæfni ammoníumnítrats. Hins vegar draga
kísilgúr og fleiri ólífræn húðarefni úr
sprengihæfninni. Þar sem ekki eru enn full-
rannsökuð áhrif ýmissa íblöndunarefna og
óhreininda, er ástæða til varúðar við alla
slíka íblöndun við önnur efni bæði af ásetn-
ingi og óviljandi. Ráðlegast er að geyma
ammoníumnítrat út af fyrir sig, þar sem
lítil hætta er á samblöndun þess við önnur
efni, einnig þótt eldsvoða bæri að höndum.
1. d. Eldnœrandi ahrif
Ammoníumnitrat er eldnærandi efni og
getur, líkt og hreint súrefni, aukið mjög á
bruna og sprengingu annarra efna. Á þess-
um eiginleika byggist notkun þess í sprengi-
efnablöndur. Vegna eldnærandi áhrifa
efnisins verður eldsvoði, þar sem það er fyr-
ir hendi, ekki kæfður með því að koma í veg
fyrir aðstreymi súrefnis. Það er því mikil-
vægt að koma í veg fyrir, að nitratryk nái
að blandast eldfimum efnum eða leggjast á
timburstoðir, gólf eða veggi 1 geymsluhús-
um.
1. e. Niöurstaða
Engin ofhitun og þrýstiaukning mun eiga
sér stað, ef lofttegundir þær, sem myndast
við klofnun ammoníumnitrats, geta komizt
á brott eða með öðrum orðum lokast ekki
inni og skapa þannig þrýstihækkun yfir
nítratinu. Séu hins vegar efnin innilokuð,
munu þrýstingur og hitastig hækka ört, og
sprenging geta hlotizt af.
2. Eitrunarhætta
Kjarni eða ammoníumnítrat getur varla
talizt mjög óhollt eða eitrað efni, hvorki við
innöndun eða inntöku. Þó er talið, að efni
skylt kjarna, Chile-saltpétur, geti verið
banvænt séu tekin inn 15 grömm. Hinsveg-
ar getur kjarninn klofnað við upphitun svo
sem áður er getið, og myndast þá bæði
ammoníak og ýmis köfnunarefnisoxið, sem
eru eitraðar lofttegundir. Við slökkvistarf
ber því að hafa í huga eitrunarhættu af
þessum lofttegundum og skal þeim hættum
nú lýst að nokkru.
2. a. Ammoníak
Ammoníak, bæði fljótandi og loftkennt,
verkar brennandi á húð, slímhúðir og augu.
Fljótandi ammoníak getur einnig orsakað
kal. Þeffærin gefa mjög greinilega til
kynna hættu af þessu efni, því að lykt finnst
greinilega af mun lægri prósentu, en hættu-
leg getur talizt. Eitrunarhættan er því fyrst
og fremst fyrir hendi, ef sprenging eða elds-
voði orsakar streymi ammoníaks í ríkum
mæli út í andrúmsloftið. Talið er að 2 til 3%
ammoníak í andrúmsloftinu geti verið ban-
vænt á skömmum tíma. Við slökkvi- eða
björgunarstörf, þar sem ammoníakstreymi
getur verið fyrir hendi, er því sjálfsagt að
setja upp súrefnis- eða þrýstiloftsgrímur,
þar sem síugrímur geta mjög fljótt orðið ó-
virkar vegna mettunar. Hafi menn orðið