Freyr - 01.11.1966, Blaðsíða 9
fyrir eitrun vegna innöndunar er frískt loft,
hvíld og aðhlynning bezta lækningin, en
jafnframt súrefnisgjöf.
2. b. Köfnunarejnisoxíð
Köfnunarefnisoxíð þau, sem myndast við
upphitun á ammoníumnitrati, eru mismun-
andi að samsetningu, þó mun aðallega
myndast það oxíð, er hláturgas nefnist og
er ekki teljandi eitrað. Hinar tegundir köfn-
unarefnisoxíða myndast þó ávallt í nokkr-
um mæli og eru þær mjög eitraðar og var-
hugaverðar. Þessar gulbrúnu lofttegundir,
sem þekktar eru frá reyk þeim, er liggur
frá saltpéturssýruverksmiðjum, eru taldar
svo hættulegar heilsu manna, að ekki sé
óhætt að dveljast nema takmarkaðan tíma,
6—8 stundir í lofti, sem inniheldur 5—10
milljónustu hluta, og stutt dvöl í lofti með
0,01—0,02 prósent er talin geta verið ban-
væn. Lykt finnst af þessum efnum við 5—10
milljónustu hluta, en talið er, að þeffærin
deyfist af lyktinni, svo að lyktin geti horfið
manni þótt magn efnanna haldist eða fari
vaxandi. Engin teljandi sjúkdómseinkenni
koma fram strax, en 4—20 stundum eftir
innöndun hættulegs magns byrjar hósti,
öndunarteppa, hjartsláttur, blágrár hör-
undslitur í andliti, yfirlið og jafnvel bani.
Ekki er ráðlegt að treysta á síugrímur, held-
ur nota súrefnis- eða þrýstiloftsgrímur við
björgunarstörf. Hjálp í viðlögum: Frískt
loft, skjótur flutningur, liggjandi, til lækn-
is og skal skýra honum frá því, sem komið
hefir fyrir, svo að hann geti fylgzt rækilega
með ástandi sjúklingins hinn varhugaverða
tíma. Munnaðferðin við lífgun getur verið
hættuleg björgunarmanni .
2. c. Kolsýringur
Kolsýringur getur að sjálfsögðu komið
fram í eldsvoða í sekkjuðum áburði, en þar
sem það eiturloft er ekki sérstaklega af
völdum ammoníumnitratsins skal ekki fjöl-
yrt um það hér,
í Áburðarverksmiðjunni er eld- og sprengihœtta mest.
2. d. Niðurstaða
Við slökkvi- eða bförgunarstörf við elds-
voða í ammoníumnitrati geta eitraðar og
háskalegar lofttegundir myndazt. Sé nauð-
synlegt að standa í reyknum eða fara inn í
hús, er brýn þörf að nota grímur, sem
hindra það, að eiturloftið geti náð til önd-
unarfæranna.
3. Hættustaðir
Helztu staðir, þar sem eldsvoða og spreng-
inga í ammoníumnitrati getur verið von,
eru áburðarverksmiðjan, þar sem fram-
leiðslan fer fram, flutningatækin, bæði skip
og flutningavagnar, sem flytja vöruna, og
loks geymslustaðir framleiðenda, sölufyrir-
tækja og notenda.
3. a. Framleiðslan
Þegar framleiða á ammoníumnitrat koma
ýmsar aðferðir til greina og hafa þær flest-
ar bæði kosti og galla. Sameiginlegt flestum
þessum aðferðum er það, að ammoníak og