Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 10
460
FREYR
60'J saltpéturssýra eru látin mynda amm-
oníumnitrat eftir efnajöfnunni:
NH3 + HNO, —) NH4N03
þ. e. a. s. efnabreyting 2 í öfuga átt.
Munurinn á aðferðum er aðallega fólg-
inn í ólíkum aðstæðum við efnabreytinguna
og mismunandi aðstæðum við kornamynd-
un og fjarlægingu vatnsins, sem fylgir salt-
péturssýrunni.
Sú aðferð, sem notuð hefur verið í
Áburðarverksmiðjunni h.f., er nefnd krist-
öllunaraðferðin. Hún er í því fólgin, að loft-
kennt ammoníak er leyst upp í um 40° C
heitri og um 70% sterkri ammoníumnitrat-
upplausn, við það hækkar hitastig upp-
lausnarinnar upp í um 75° C. Þessi upplausn
blandast síðan 60% saltpéturssýru í loft-
tæmikeri, sem rúmar um 7 rúmmetra og
vinnur við 50 mm kvikasilfursþrýsting.
Vegna þess varma, er losnar við sameiningu
á ammoníaki og saltpéturssýru og vegna
lofttæmisins, eimast vatnið, sem með sýr-
unni kemur inn, úr upplausninni og lækkar
þá hitastigið aftur niður í um 50° C. Jafn-
framt styrkist upplausnin upp um í 75% og
er nú leidd í kristallarann, hann rúmar um
30 rúmmetra af upplausn og vinnur við 25
mm kvikasilfursþrýstings. Vegna aukins
lofttæmis í kristallara, lækkar hitastig upp-
lausnarinnar enn niður í um 35° C, en við
það yfirmettast upplausnin og fellur amm-
oníumnitratið þá út sem fastir kristallar.
Þeir eru síðan skildir frá upplausninni í
skilvindu. Upplausnin fer nú til baka til að
taka í sig ammoníak á ný, en kristallarnir
fara til þurrkara, sem þurrkar þá við um
60° C, unz vatnsmagn er tæp 0.1%. Loks
eru ammoníumnitrat kristallarnir blandað-
ir um 4% af kísilgúr, til þess að varna því,
að áburðurinn dragi í sig raka, og sekkjað
í rakahelda sekki.
Kristöllunaraðferðin, sem hér hefur ver-
ið lýst í stórum dráttum, hefur einkum
þann kost fram yfir aðrar aðferðir, að hún
er þeirra öruggust frá sprengisjónarmiði.
Hitastig, þrýstingur og styrkleiki upplausn-
ar, er lægra en við aðrar tilsvarandi aðferð-
ir. Hæsta hitastig upplausnar er 75° C, en
styrkleiki þá 70%. Mesti styrkleiki upp-
lausnar er um 75%, en hitastig þá aðeins um
50° C. Hæsta hitastig ammoníumnitrat-
kristalla er um 60° C, þ. e. í þurrkaranum.
Þrýstingur er hvergi yfir venjulegum loft-
þrýstingi og aðeins 50 mm kvikasilfurs við
hæsta hitastigið.
Með tilliti til þess, að íslendingar höfðu
mjög litla reynslu af efnaiðnaði og enga
reynslu af áburðarframleiðslu, þegar verk-
smiðjan var byggð, var ekki óeðlilegt, að
fyrir valinu yrði sú aðferð, sem bauð upp
á mest öryggi gagnvart sprengihættu. Frá
öryggissjónarmiði hefur valið tekizt vel á
framleiðsluaðferð.
3. b. Flutningar og geymsla
Flutningar á ammoníumnitratáburði fara
ýmist fram með skipum eða flutningavögn-
um. Geymsla á sér stað bæði í verksmiðju,
afgreiðslustöðum og hjá notendum.
Strangar reglur hafa verið settar um
meðferð efnisins, vegna sprengihættu, og
eru hér á landi í gildi reglugerðir frá sam-
göngumálaráðuneytinu frá árinu 1954.
1. Reglugerð um flutning á landi og
geymslu á ammoníumnitrati. (Fylgirit 1).
2. Reglur um flutning á ammoníumnitrat-
áburði í skipum. (Fylgirit 2).
Hafnarstjórinn í Reykjavík gaf út 1964
viðbótarreglur, viðvíkjandi flutningi frá
Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi, á amm-
oníumnitratáburði. (Fylgirit 3).
Áburðarverksmiðjan h.f. hefur ennfrem-
ur ávallt séð svo um, að leiðbeiningar um
meðferð á kjarna væru skráðar á kjarna-
sekkina. (Fylgirit 4).
Allar eru þessar reglur góðra gjalda verð-
ar og til eftirbreytni, en eru þó nokkuð
komnar til ára sinna. Mun ég hér leitast við
að skýra til samanburðar frá þeim leiðbein-
ingum, sem nýlega hafa verið teknar í notk-
un í U. S. A.