Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 12
462
FREYR
Ammoníumnitrat hefur í sér, eins og áður
er getið, nægilegt súrefni og aukið súrefnis-
aðstreymi vegna loftræstingar skiptir ekki
máli. Æskilegt er því talið, að opnaðir séu
gluggar og dyr, svo að loftræsting verði sem
bezt og lofttegundir þær, sem myndast við
klornun áburðarinsí komist út, því að ann-
ars getur þrýstingur byggzt upp og aukið
hitann allt upp í sprengingu. Hátt hitastig
og hár þrýstingur auka á sprengihættuna
og þarf því að halda hvoru tveggja í skefj-
um, ef auðið er.
4. Gæta þarf þess, að bráðið ammoníum-
nitrat renni ekki niður í niðurföll eða ræsi.
Hugsanlegt er, að þrýstingsaukning verði
þar svo mikil, að sprenging hljótist af.
5. Gufur frá ammoníumnitratbruna eru
ákaflega eitraðar. Lofttegundir, sem mynd-
ast við klofnun ammoníumnitrats, eru
háskalegar, eins og lofttegundir frá saltpét-
urssýru og söltum hennar almennt. Öndun-
argrímur með geymi þarf því að nota við
slökkvistarfið, einkum ef leitað er að eldin-
um eða verið er að nota loftræsta húsnæði,
sem er fullt af þessum eiturlofttegundum.
Helztu lofttegundirnar, sem myndast við
eldsvoðann, eru oxíð köfnunarefnis og einn-
ig kolsýringur.
6. Sé nægilegur hiti fyrir hendi getur átt
sér stað, að við vatnsdreifinguna myndist
gufuinnilokun í áburðarstæðunum, sem
orsaki smágos, með krafti á við smáspreng-
ingu. Það er því ekki ráðlegt að fara of
nærri eldinum, en ekki þarf þó að óttast um
of slík gos. Réttast er að skýla sér með vegg
eða einhverju því um líku er vatnsbununni
er beint að eldinum. Ekki er mikil hætta á
slíkum gufugosum í upphafi eldsvoða, með-
an hitastigið er ennþá lágt, einnig er þá
minni hætta á eiturlofti. Það ríður því á hér
sem ævinlega að reyna að vinni bug á eld-
inum sem fyrst.
5. Lokaorð
Loks vildi ég taka fram eftirfarandi:
Það er mikilvægt, að leggja sig í líma að
fræðast sem bezt fyrirfram um eldsvoða og
slökkvistarf, þar sem efni eins háskaleg og
ammoníumnitrat eru til staðar. Það er til
ómetanlegt gagns og getur forðað stórslys-
um, ef réttum aðferðum er beitt.
HEIMILDASKRÁ
1. Ammonium Nitrate Behavior in Fires
by Chester I. Babcock.
N F P A Quarterly, Boston Jan. 1960.
2. Explosion Hazards of Ammonium Nitrate undir
Fire Exposure
by R. W. Van Dolah o. fl.
R. 1. bureau of mines report of investigation 6773,
Washington 1966.
3. Kemisk Skyddshandbok
Svenska Arbetsgivareföreningen, Stockholm.
4. Industrial Hygiene and Toxicologi Vol 1.
by F. A. Patty
Intersciens Publishers, Inc. New York 1958.
Sá sem les
bókmenntir allra alda hlýtur að veita því eftirtekt,
að mannkynið hefur alla tíð þráð að lifa án þess að
erfiða.
Eden hefur um allar aldir verið sá staður, sem
horft hefur verið til sem langþráðs unaðsstaðar, er
lifa mætti án þess að vinna. Búddatrúarmenn þrá
Nirvana, þar er þeirra óska- og draumaland. Utópía
er langþráð undraland, þar sem nóg er af öllu og
allt fæst án svita.
Þrá mannkynsins virðist á öllum tímum hafa
að því stefnt að lifa við hamingju í leik án erfiðis.
(American Agriculturist)
Er mjólkin of dýr fæða?
Danmörk er fyrir ýmissa sjónum það land, sem allt
flýtur í „mjólk og hunangi", en þar kostar hver
lítri mjólkur nú í útsölu 121 danskan eyrir. Er þá
mjólkin dýr hjá okkur miðað við þetta verð gózen-
landsins ?
Nýlega gafst oss tækifæri til að athuga hvað þýzk
mjólkurbú höfðu að bjóða neytendum af mjólk og
mjólkurvörum. Þar var úrval svo mikið að, vér urð-
um sannfærðir um, að hér er sitthvað fleira hægt
að gera.
(Landbrukstidende)