Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 13
FREYR
463
um flutning á landi og geymslu
á ammoníumnítrat áburði.
1. gr.
Ammoníumnitratáburður kallast ■ reglugerð þessari
smásallað ammoníumnitrat (NH' NO:i) sem er korn-
að og kornin húðuð með kísiljörð eða öðrum viðeig-
andi ólífrænum efnum.
2. gr.
Ammoníumnitratáburð má einungis geyma og flytja
í viðurkenndum umbúðum, sem eru það vel lokaðar,
að ekki sé hætta á, að úr þeim sáldrist við flutning-
inn.
Viðurkenndar umbúðir eru:
a. Vel lokuð gler- að leirílát.
b. Vel lokaðar dósir eða stáldunkar.
c. Vel lokaðar nýjar málmumbúðir, t. d. stáltunn-
ur.
d. Margfaldir kraftpappírspokar, með einu eða
fleiri rakavarnarlögum. Pokarnir skulu ver vel Iok-
aðir, svo öruggt sé að ekki sáldrist vir þeim.
3. gr.
Umbúðir þær, sem nefndar eru undir stafliðum
a. b. og c. í 2. gr. skulu ekki vera stærri en svo að
þær rúmi meðfærilegt magn af áburði, en umbúðir
þær, sem nefndar eru undir d-Iið sömu gr., mega
ekki vera stærri en svo að þær rúmi mcst 50 kg.
4. gr.
Umbúðir þær, sem nefndar eru undir a. og b-lið 2.
gr. skulu bvinar hlífðar eða ytri umbúðum, svo sem
kössum úr timbri eða öðru viðeigandi efni, eða
traustriðnum körfum úr tágum eða járngjörðum.
Milli ytri og innri umbúða skal vera tróð úr við-
eigandi ólífrænu efni, svo öruggt sé að ytri umbúðir
snerti ekki þær innri. Ef innri umbúðirnar eru úr
gleri eða leir og á þeim háls eða stiitur, ekal viðeig-
andi hlífðarumbúnaður einnig vera um hálsinn, t. d.
hetta eða hálmvaf.
5. gr.
Umbiiðir þær, sem ammaníumnitratáburður er flutt-
ur í skulu merktar með merkiseðli „F“ sbr. reglur
um flutning á hættulegum varningi, nr. 61, 28.
marz 1953.