Freyr - 01.11.1966, Blaðsíða 14
464
FREYR
6. gr.
Sá sem afgreiðir ammoníumnitratáburð til flutnings
á landi ber ábyrgð á að umbúðir séu samkvæmt því,
sem krafizt er í 2. gr. reglugerðar þessarar og ekki
má hann afhenda áburðinn fyrr en hann hefur full-
vissað sig um, að flutningatæki það, sem áburðinn
að flytja sé til þess hæft samkv. 7. gr. reglugerðar
þessarar.
7. gr.
Til flutnings á ammoníumnitratáburði á Iandi má
nota vörubifreið og opna vagna og skal jafnan hafa
vatnsheida yfirbreiðslu yfir farminum. Þess skal
vandlega gætt, að flutningspallur bifreiðar eða vagns
sé heill og sléttur og út úr honum standi ekkert það,
sem valdið gæti skemmdum á umbúðum áburðarins.
Aður en áburðurinn er Iátinn á bifreið eða flutn-
ingavagn, skal vörupallurinn vandlega sópaður og
ef nauðsyn kann að þykja að dómi þess, sem áburð-
inn afhendir til flutnings skal hann þveginn með
vatni, svo öruggt sé að hann sé hreinn og engar leif-
ar fyrri flutnings á honum.
8. gr.
Við fermingu og affermingu ammoníumnitratáburðar
skal þess vandlega gætt, að umbúðir skemmist ekki.
Skemmdir eða rifnir pokar skulu þegar settir til hlið-
ar og innihald þeirra sett í nýja poka, sem skulu
vera það stórir, að þeir rúmi allt innihald hinna
skemmdu poka og að þeim verði síðan örugglega
lokað. Öllum ááburði, sem fer niður skal þegar sópað
upp og hann grafinn í jörðu, eða kastaði í vatn.
9. gr.
Til geymslu á ammoníumnitratáburði má einungis
nota hús með góðri loftræstingu og skulu þau þannig
gerð, að auðveldlega megi auka súg í gegnum þau,
ef eldur kemur upp. í nánd við geymsluhús skal
vera greiður aðgangur að nægu vatni til slökkvi-
starfa.
10. gr.
Áður en ammoíumnitratáburður er látinn í hús, skal
sá hluti hússins, sem til geymslunnar er ætlaður
vandlega ræstur, svo þar séu engin óhreinindi eða
óviðkomandi efni.
Ekki má geyma ammoníumnitratáburð í sama húsi
og sprengiefni eða sprengifim efni og ekki í nánd
við lífræn brennanleg eða tærandi efni. Ekki má
heldur geyma áburðinn nálægt rafleiðslum, eimpíp-
um eða öðrum heitum hlutum.
11. gr.
Áður en ammoníumnitratáburður er látinn í hús
skulu hreinar timburfjalir lagðar á gólfið þar sem
hlaða á áburðinum.
STÆRÐ HVERS POKAHLAÐA í HÚSI MÁ EKKI
VERA MEIRI EN 3.8 M Á HLIÐ, EF EKKI ER HLAÐ-
IÐ MEÐ LOFTRÚMI MILLI POKA. Ef loftrúm er
milli poka í hlaða má hlaðinn stækka, sem loftrúm-
inu nemur, þó má stærð hlaða aldrei vera meiri en
5 m. á hlið: Mesta hæð pokahlaða má vera 4.35 m.
og skulu þá í hæðinni vera að minnsta kosti tvö
10 cm. loftbil, þannig að hæðin skiptist í þrjú jöfn
hæðabil. Fjarlægð pokahlaða frá vegg (og næsta
pokahlaða má ekki vera minni en 0.75 metrar, en
bil milli pokahlaða skal ekki vera minna en 0.50
metrar.
12. gr.
Fari ammoníumnitratáburður niður á gólf í geymslu-
húsi skal honum þegar sópað upp og hann strax graf-
inn í jörð eða kastað í vatn. Innihald rifinna eða
skemmdra poka skal láta í nýja poka, sem séu það
stórir að þeir rúmi allt innihald og verði síðan ör-
ugglega Iokað.
Timburgólf, sem áburður hefur til muna spillst
niður á, skulu vandlega þvegin með vatni.
13. gr.
Þar, sem ammoníumnitratáburður er geymdur skulu
reykingar stranglega bannaðar, svo og umferð með
opinn eld eða óbirgt ljós.
14. gr.
Á notkunarstað má ekki geyma ammoníumnitra-
áburð í sama húsi og lífræn brennanleg eða tærandi
efni. Æskilegast er að áburðurinn sé geymdur í sér-
stæðum húsum fjarri hlöðum eða gripahúsum.
15. gr.
Við notkun skal gæta þess, að nota þegar allt inni-
hald poka, sem opnaður hefur verið og brenna síð-
an tómu pokunum fáum í einu.
16. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða sektum frá 50—
5000.00 krónum, nema þyngri refsing liggi við sam-
kvæmt lögum. Sektirnar renna í ríkissjóð.
Með mál út af brotum skal farið að hætti opinberra
mála.
Reglugerð þessi er hér með sett samkvæmt lögum
nr. 23, 1. febrúar 1952 um öryggisráðstafanir á
vinnustöðum, til þess að öðlast þegar gildi og birtist
til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
SAMGÖNGUMÁLARÁÐUNEYTIÐ