Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 16
466
FREYR
Reglur
um flufning á ammoníumnitratáburSi í skipum.
Samkvæmt 40. gr. Iaga nr. 68 5. júní 1947, um eftir-
Iit með skipum, eru hér með settar eftirfarandi regl-
ur um flutning á ammoniumnitaááburði með skipum.
1. gr.
Ammoniumnitraáburður kallast i reglum þessum
smákristallað ammoníumnitrat (NH,NO,), sem er
kornað og kornin húðuð með kísiljörð eða öðrum
viðeigandi ólífrænum efnum.
2. gr.
Ammoniumnitraáburð má einungis flytja í viður-
kenndum umbúðum, sem eru það vel lokaðar, að
ekki er hætta á, að úr umbúðunum sáldrist við
flutninginn.
Viðurkenndar umbúðir eru:
a. Vel lokuð gler- eða leirílát.
b. Vel lokaðar dósir eða stáldunkar.
c. Vel lokaðar, nýjar málmumbúðir, t. d. stáltunnur.
d. Margfaldir kraftpappírspokar, með einu eða fleiri
rakaeinangrunarlögum. Pokarnir verða að vera
vel lokaðir, svo öruggt sé að ekki sáldrist úr þeim.
3. gr.
Umbúðir þær, sem nefndar eru undir staflið a, b og
c í 2. gr. skulu ekki vera stærri en svo, að þær rúmi
meðfærilegt magn af áburði, en umbúðir þær, sem
nefndar eru undir d-lið sömu greinar, mega ekki
vera stærri en svo, að þær rúmi mest 50 kg.
4. gr.
Umbúðir þær, sem nefndar eru undir a- og b-lið 2.
gr. skulu búnar hlífðar- eða ytri umbúðum, svo sem
kössum úr timbri eða öðru viðeigandi efni eða sterk-
um riðnum körfum úr tágum eða járngjörðum. Milli
ytri og innri umbúða skal vera tróð úr viðeigandi
ólífrænu efni, svo öruggt sé að ytri umbúðirnar
snerti ekki þær innri. Ef innri umbúðirnar eru úr
gleri eða Ieir og á þeim háls eða stútur, skal við-
eigandi hlífðarbúnaður einnig vera um hálsinn, t. d.
hetta eða hálmvaf.
5. gr.
Áður en ammoniumnitratáburður er tekinn til flutn-
ings í skip, ber skipstjóra að fullvissa sig um, að
hlutaðeigandi yfirvöld hafi viðurkennt efnið hæft til
flutnings í skipi.
6. gr.
í skipum má flytja ammoniumnitratáburð á þilfari
og undir því, en ekki nálægt brennanlegum varningi
eða sterkum sýrum. Sprengiefni má ekki flytja í
sama farmrúmi og áburðin og heldur ekki í næsta
farmrúmi við hann.
Verði ammoniumnitrat flutt í skipum til annarra
landa, skal um þann flutning fara eftir reglum þess
lands, sem varan er flutt til.
7. gr.
Farmrúm, sem áður hefur verið notað til flutnings
á lífrænum efnum, t. d. fiski, fiskmjöli o. þ. h. skal
vandlega hreinsað áður en ammoniumnitratáburð-
ur er látinn i það.
8. gr.
Merkja skal ílát það, sem ammoniumnitrat eða am-
moniumnitratáburður er fluttur í, með merkiseðli
„F“, sjá reglur um flutning á hættulegum varningi
nr. 61 28. marz 1953.
9. gr.
Brot gegn reglugerð þessari varða refsingu sam-
kvæmt XI. kafla laga nr. 68 5. júní 1947, um eftirlit
með skipum.
10. gr.
Reglur þessar öðlast þegar gildi og birtast til eftir-
breytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli.
S AMGÖN GUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Viðvíkjandi
flutningi frá Áburðarverksmiðjunni í Gufunesi á
ammoniumnitratáburði, húðuðum ólífrænu efni.
1. Flutningi á þessum áburði skal haga svo, að fermt
sé i Gufunesi og skip með áburð í Iest komi ekki
inn í innri höfnina í Reykjavík eftir að áburður-
inn er kominn um borð.
2. Komi það hins vegar fyrir, að skip með þennan
áburð um borð þurfi að koma við í Reykjavíkur-
höfn, ber að tilkynna það hafnarstjóra og yfir-
hafnsögumanni svo að þær ráðstafanir verði gerð-
ar, er þurfa þykir.
3. Þegar um er að ræða áburðarmagn allt að 25 t.
er heimilt að láta það um borð í skip í innri höfn-
inni, enda sé þá fermingu lokið og skipið liggi
ekki í innri höfninni yfir nótt eftir að áburður er
kominn um borð.
Ávallt skal tilkynna hafnarstjóra og yfirhafnsögu-
manni, ef ferma skal áburð í innri höfn.
4. Smáskipum, svo sem Akraborg, er heimilt, að
koma með allt að 50 t. af áburði, er þau kynnu
að hafa tekið um borð í Gufunesi inn í innri höfn-
ina, ef þau hafa ekki lengri dvöl þar en til þess
að taka farþega um borð.
Reykjavík, 28. apríl 1964.
Valgeir Björnsson, hafnarstjóri.