Freyr - 01.11.1966, Side 21
FREYR
471
ÓLAFUR E. STEFÁNSSON:
Nythœstu kýr nautgriparœktarfélaganna 1964
Af 17690 kúm, sem skráðar voru á vegum
nautgriparæktarfélaganna árið 1964,mjólk-
uðu 445 kýr yfir 20 þúsund fitueiningar
(fe) á því ári, miðað við 408 árið 1963 og
280 árið 1962.
Innbyrðis flokkast 20 þús. fe kýrnar
þannig eftir afurðum árið 1964:
Yfir 23000 fe 89 kýr
22000 til 23000 fe 53 —
21000 til 22000 fe 111 —
20000 til 21000 fe 192 —
Eftir nautgriparæktarsamböndum skipt-
ast kýrnar þannig: Samb. nautgriparækt-
arfélaga Eyjafjarðar 150, Árnessýsla 125,
Rangárvalla- og V.-Skaftafellssýsla 65, S.-
Þingeyjarsýsla 51, Borgarfjörður 20, Kjal-
arnesþing 11, N.-ísafjarðarsýsla 11 (allar í
Skutulsfirði) og 12 annars staðar á land-
inu. Þar sem fitumælingar féllu niður í
Skagafirði, koma engar kýr í því héraði
til greina í þessu sambandi að þessu sinni.
Að öðru leyti er hlutfallið milli héraða
svipað og árið áður.
Eins og undanfarin ár er faðerni kúnna
í þessum afurðahæsta flokki eðlilega dreift,
en flestar dætur eiga þessi naut: Sjóli N19
21, Bolli S46 19, Ægir N63 14, Fylkir N88
12, Funi N48 10, Kolur N1 9, Skjöldur
Reykdal N3, Sómi S119, Tígull S42 og Þeli
N86 8 hver, Kolur S228 7, Randi N52 og
Rauður N46 6 hvor og Bjarmi S227 og
Klaki N30; 5 hvor. Hqfðu flest þessara
nauta hlotið I. verðlauna viðurkenningu á
sínum tíma. Að sjálfsögðu eru systrahóp-
arnir á mismunandi aldursskeiði. Er því
ekki nægilegt að dæma kynbótagildi naut-
anna innbyrðis eftir fjölda dætra þeirra,
sem eitthvert ár ná þessu afurðamagni.
T.d. eru nú aðeins 9 dætur Kols N1 í þessum
hópi, þar sem dætrum hans fækkar nú
óðum, en þær báru af varðandi mjólkur-
lagni á sínum tíma. Þá skiptir það einnig
miklu máli, hve mikið nautin hafa verið
notuð til undaneldis. Af þeim, sem talin
eru hér að framan, eru það aðeins Randi
N52 í Fnjóskadal og Rauður N46 í Reykja-
dal, sem aldrei hafa verið notuð á sæðing-
arstöðvum. Sum hinna, svo sem Bolli S46
og Tígull S42, voru mestan hluta ævinnar
notuð á bæjum, áður en þau voru tekin á
sæðingarstöð, og eru því flestar dætur
þeirra einnig á takmörkuðu svæði. Önn-
ur naut, bæði í Eyjafirði og á Suður-
landi, hafa lengi verið staðsett á sæðingar-
stöðvunum á þessum svæðum og verið mik-
ið notuð. Þannig höfðu 5787 kýr á Suður-
landi fest fang við Sóma S119 frá því, að
hann kom á kynbótastöðina í Laugardæl-
um til ársloka 1965.
Þegar á heildina er litið og faðerni kúnna
í þessum hæsta afurðaflokki athugað nokk-
ur ár í röð, kemur 1 ljós, að þar standa
fremst í flokki þau naut, sem þóttu álit-
legustu kynbótagripirnir, þegar þau voru
dæmd, meðan tiltölulega lítil reynsla var
komin á þau. Styður þetta þá skoðun, að
afurðahæfni kvígnanna komi skýrt í ljós á
fyrsta og öðru mjólkurskeiði. Þau naut
önnur, sem dætrahóp eiga í þessum af-
urðaflokki, hafa yfirleitt ekki hlotið I.
verðlauna viðurkenningu af einhverjum
öðrum orsökum eða göllum en þeim, að eig-
inleika til afurðahæfni skorti.
Afurðahæsta kýrin árið 1964 var Hjálma