Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 30
480
FREYR
GUNNAR GUÐBJARTSSON:
GREINARGERÐ
um verðlagsgrundvöll landbúnaðarins órið 1966-1967
Samningar um nýtt verð á landbúnaðar-
vörum hófust um miðjan ágústmánuð s.l.
Áður höfðu verið haldnir nokkrir fundir
í sexmannanefnd um hvernig skyldi unnið
ið að málinu í þetta sinn. Nú áttu að koma
til framkvæmda ný ákvæði framleiðslu-
ráðslaganna m.a. um breytt fyrirkomulag
á útreikningi kaups bóndans og skylduliðs
hans, en í lögunum eru ekki reglur um
hvernig að því skyldi unnið, eða á hvaða
upplýsingum byggt varðandi vinnumagn
og kauptaxta.
Nefndin ákvað í sumar að láta fram-
kvæma mælingar á nokkrum verkþáttum
við landbúnaðarstörf. Aðallega var það
hirðing nautgripa og mjaltir, svo og hey-
skapur. Gáfu þessar mælingar vissar bend-
ingar um vinnumagn við viss skilyrði, þó
ekki sé hægt að fullyrða, að þær séu full-
nægjandi undirstaða um ákvörðun vinnu-
magns við þessi verk og því síður að á
þeim sé hægt að byggja ákvarðanir vinnu-
magns annarra bústarfa. Auk þess er t.d.
nautgripahirðing að sumarlagi minni en
vetrarhirðing þeirra gripa, þannig, að eigi
að nota tímamælingar sem undirstöðu í
þessu efni, þá þarf að gera þær á mismun-
andi árstímum og endurtaka þær við
breytileg- starfs- og veðurskilyrði og láta
þær ná til allra verkþátta í almennum bú-
skap.
Á undanförnum árum hafa nokkrir (20
—30) bændur haldið sundurliðaða bú-
reikninga og þar á meðal mjög sundur-
liðaða vinnuskýrslu. Þessar vinnuskýrslur
eru í rauninni einu gögnin, sem viðhlít-
andi mega teljast, sem grundvöllur til á-
kvörðunar vinnumagns við búskap. Þó eru
á þessum skýrslum nokkrir annmarkar og
sá stærstur, að vinna við fjárfestingu er
ekki sundurliðuð eftir því, hvort unnið er
að gerð nýrra mannvirkja eða að viðhaldi
eldri mannvirkja og því er ekki í þessu
efni gerður greinarmunur á stofnkostnaði
og reksturskostnaði. Vinna við gerð nýrra
mannvirkja hlýtur að teljast til stofnkosn-
aðar, en vinna við viðhald jarðar og úti-
húsa teljast til rekstrarkostnaðar. Þrátt
fyrir þessa annmarka töldum við, fulltrúar
bænda í sex-manna-nefnd, rétt að byggja
tillögur okkar um vinnumagn á þessum
skýrslum þótt ófullkomnar væru.
Hagstofa íslands lét í sumar vinna nið-
urstöður um kostnað við framleiðslu bú-
vara fyrir árið 1965 úr skattaframtölum
bænda. Tekið var stórt úrtak, eða frá um
700 bændum, en síðan valið úr þeim hópi
úrtak þeirra bænda, sem höfðu bústærð
sem næst grundvallarbúi með 10% fráviki
á báða vegu.
Á sam hátt gerði búreikningastofa rík-
isins upp einfalda búreikninga frá 172
bændum fyrir árið 1965 og Stéttasamband
bænda hafði úrtak skattskýrslna frá um
100 bændum.
Niðurstöður allra þessara skýrslna fóru