Freyr - 01.11.1966, Qupperneq 38
488
FREYR
ÁBURÐUR
N þýðir köfnunarefni.
P þýðir fosfór.
K þýðir kalí.
Þetta vita allir bændur auðvitað, að
minnsta kosti þeir, sem lært hafa ögn í
efnafræði, þ.e. stundað nám í bændaskóla.
Það hefur skeð, að áburðarblanda af
þessu tagi hefur fengizt hér á landi, stund-
um sem tvö þessara efna, stundum öll í
sama í sama poka en oftast þó hvert um
sig. Allmörg ár eru síðan bændur erlendis
gerðu kröfur til að fá efnin blönduð, en
margir fræðimenn stóðu gegn framleiðslu
og sölu áburðar á þann hátt, þeir töldu að
þannig væri torveldara að bera „rétt“ á
landið. En í þessu tafli hafi bændur sigrað,
þeim er miklu meira virði að auðvelt sé
að koma áburðinum á sinn stað á akurinn
en þótt nokkur korn fari öðruvísi en full-
komnast má verða.
Lengi stóðu Danir öndverðir gegn sölu
blandaðs áburðar en einnig þar er sá múr
brotinn, sem hlaðinn var gegn þeirri ósk
bænda að fá sem mest í blöndum.
Og stíflan brast þar með miklu skriði
sem ráða má af því, að árið
1963— 64 seldust þar í landi 6.300 lestir
1964— 65 seldust þar í landi 95.500 lestir
1965— 66 seldust þar í landi 260.000 lestir
Síðasta tala er ekki nákvæm því að taln-
ingu var ekki lokið þegar heimildin var
fengin. Til viðbótar NPK-áburðarefnum í
blandaða áburðinn er bætt snefilefnum
svo sem kopar, magníum og bór, en
þetta eru efni, sem einatt vantar í jarð-
veginn og stundum valda kvillum eða rýrri
uppskeru þegar þau skortir að ráði.
Umræddum óskum danskra bænda gengur
betur en fyrr að fullnægja þegar af fullum
krafti verður starfandi innlend verk-
smiðja, sem nú þegar er verið að prófa.
Hún hefur verið reist í Frederica, kostar
um 60 milljónir danskra króna og getur
framleitt 225 þúsund lestir af NPK áburði
á ári. Saltpéturssýrudeildin framleiðir 225
tonn 100% saltpéturssýru á sólarhring. Allt
er vélrænt þarna og vel kerfað enda að
eins tveir menn starfandi við saltpéturs
verksmiðjuna.
Mannafli við verksmiðjuna alla þarf
fyrst og fremst til að afgreiða áburðinn, en
þar starfa samtals 160 manns.
NPK áburðurinn er ekki aflfræðileg
blanda heldur eru umrædd jurtanæringar-
efni öll í hverju korni áburðarins, en 10
tegundir blöndu kvað vera framleitt þar.
* * ❖
Með viðhorfi því er mótast hefur hin síð-
ustu ár, þegar Áburðarverksmiðjan í Gufu-
nesi getur engan veginn fullnægt innlendri
eftirspurn eftir N-áburði, mun verða flutt
til landsins í vor nokkuð af blönduðum
áburði, þ.e.a.s. NPK-áburði, svo að fleiri
munu nú kynnazt honum af eigin raun
en gerzt hefur til þessa.