Freyr - 01.11.1966, Page 40
490
FREYR
sérstaklega tekið fram í athugasemdum við
rannsóknir þessar, að þetta þurfi húsmæð-
ur að læra því að þar sé mikill vinningur
vís.
Frystir var alltaf notaður til þess að
geyma gerbakað brauð.
Umbúðirnar
Álblöð eru nú talin lang beztu umbúðirnar
til þess að geyma vörur í frysti, en þarna
notuðu aðeins 3% húsmæðra þau, 23% not-
uðu plastblöð, (plasthúðaðan pappír) 1%
notaði áldósir, 2% notuðu plastdósir og svo
var notað sitthvað annað til þess að pakka
vörurnar í. 1 sambandi við þetta er gerð sú
athugasemd, að ekki muni allar húsmæður
gera sér ljóst hvernig hægt er að láta fryst-
inn hjálpa sér til að spara tíma og svo er
þess getið, að ef þær frystu meira af græn-
meti og ávöxtum þá efldu þær gæði fæð-
unnar um leið.
Geymsla heilsulinda
Hvort sem kaupa skal grænmeti eða rækta
það sjálfur er um að gera að varðveita líf-
efni þeirra sem bezt, og þetta er hægt með
því að geyma það, og svo ávexti, í frysti,
þannig varðveitast vitamín bezt, en viðeig-
andi og semþéttastarumbúðir erunauðsyn-
legar, segir í athugasemdum við niðurstöð-
urnar. Húsmæðurnar þurfa að læra að nota
frystiskápa sína og kistur mun betur, og
einkum er mikill vinningur við að frysta
ber í stað þess að kaupa þau niðursoðin,
segir þar.
Það er bæði eðlilegt og sjálfsagt að gera
sér far um að meta gildi frystisins, ekki
bara stinga þar einhverju inn af tilviljun
heldur af hagsýni. Það er t. d. um að gera
að baka ofurlítið í einu, meira en þarf í
hvert skipti, og eiga brauð í frysti getur ver-
ið mjög gott á annastund.
Og svo er mikilsvert að læra hvaða vörur
þola geymslu í frysti og hve lengi, en það
er önnur saga og ný fræðigrein.
er fljótlegasta og bezta geymsluaðferðin, og það mó djúp-
frysta hvað sem er: kjöt, fisk, fugla, grœnmeti, ber, mjólkur-
afurðir, brauð, kökur, tilbúna rétti o.fl., og gœðin haldast
óskert mónuðum saman.
Við bjóðum yður 3 stœrðir af ATLAS frystikistum og 2 stœrðir
af ATLAS frystiskópum.
Munið einnig ATLAS kœliskápana, sem fást í 6 stœrðum, m.a.
með allt að 150 lítra djúpfrystihólfi.
Bókin FRYSTING MATVÆLA fylgir ATLAS tœkjunum.
5 ára ábyrgð á kerfi. Traust þjónusta.
Komið, hringið eða skrifið og fáið allar upplýsingar um stœrðir,
verð og skilmála.
FYRSTA FLOKKS FRÁ
Sími 24420 - Suðurgata 10 - Reykjavík