Freyr - 01.01.1976, Blaðsíða 16
Sveinn Guðmundsson
á Sauðárkróki og kynbótahryssa
hans, Síða.
hentug. Nefndin var skipuð og skilaði áliti
snemma hausts 1972. í henni áttu sæti auk
mín, Sveinbjörn Dagfinnsson og Leifur Kr.
Jóhannesson. Niðurstaðan var, að á Litla-
hrauni í Árnessýslu væri ódýrast að koma
starfsemi þessari á fót, auk þess var sú
jörð ekki nytjuð til búskapar eins og á stóð.
Á Búnaðarþingi 1973 lagði ég málið fyrir
á ný og var það samþykkt og sent land-
búnaðarráðuneytinu. Með bréfi 20. ágúst
1973 fól ráðuneytið Búnaðarfélagi íslands
undirbúning að uppbyggingu stöðvarinnar
og að annast rekstur hennar. Jafnframt var
ákveðið, að við stöðina starfaði sérstök
kynbótanefnd. Stjórn Búnaðarfélags íslands
skipaði eftirtalda menn í þá nefnd: Þorkel
Bjarnason, Laugarvatni, Leif Kr. Jóhannes-
son, Stykkishólmi, Pál Pétursson, Höllu-
stöðum, Ingimar Sveinsson, Egilsstöðum
og Þorgeir Sveinsson, Hrafnkelsstöðum, og
átti þá hver landsfjórðungur sinn fulltrúa.
Hinn 22. ágúst 1973 er undirritaður samn-
ingur við dómsmálaráðuneytið um leigu
jarðar og útihúsa á Litlahrauni. Stjórn Bún-
aðarfélags íslands sér um rekstur stöðvar-
innar í umboði landbúnaðarráðuneytisins
og hefur tilnefnt með sér í yfirstjórn þá Pál
Agnar Pálsson og Sveinbjörn Dagfinnsson.
Þá er rétt að geta þess, að landbúnaðar-
ráðuneytið fó! Búnaðarfélagi íslands að
semja reglugerð fyrir stöðina til að starfa
eftir, eins og í öðrum þáttum búfjárræktar-
laga. í það verk voru skipaðir: Þorkell
Bjarnason, Laugarvatni, Steinþór Runólfs-
son, Hellu og Páll Pétursson, Höllustöðum.
Er reglugerð væntanleg á þessu ári.
Um aðstöðuna á Litlahrauni er margt
gott að segja. Þar er allmikið land gras-
gefið, tún um 40 hektarar og 50 kúa fjós
með viðbyggingu fyrir um 25 trippi eða vel
það, ásamt hlöðu og votheysgeymslum.
Reiðvegir eru fremur góðir, einkum er fjar-
an álitleg. íbúð vantar fyrir starfsmenn og
hefur reynst leitt vandamál og lagast ekki,
fyrr en hús hefur verið keypt eða byggt.
Hugmyndir um fyrirkomulag og rekstur:
1. Hestfolöld og ungir stóðhestar skulu
teknir á stöðina, ýmist keyptir, sem
hennar eign, eða teknir í uppeldi frá
hrossaræktarsamböndum, hrossaræktar-
félögum og einstaklingum.
2. Þegar folarnir eru 2 vetra, verði valið úr
þeim. Þeir, sem eru óálitlegir, þ.e. illa
byggðir, mjög smáir, fótaskakkir, laun-
6
F R E Y R