Freyr - 01.01.1976, Blaðsíða 18
Verður nú gerð grein fyrir þeim folum,
sem á stöðina hafa verið teknir. Sumir
þeirra eru valdir úr ótömdu stóði og nokkrir
aðrir eiga ótamdar mæður. Þeir folar, sem
eru undan stóðhestum, sem ekki eru komn-
ir á tamningaraldur, eru, meðan svo varir,
sagðir eiga ótamda feður.
Strax og stöðin hóf göngu sína, bárust
henni gjafir, hestfolöld frá Haraldi Þórar-
inssyni, Hóli II, Eyjaf., Sigurði Haraldssyni,
Kirkjubæ, Jóni Guðmundssyni, Reykjum,
Kjósarsýslu og Hrossakynbótabúinu á Hól-
um. Tveir rangæskir hrossabændur hafa
lofað folöldum, þegar kröfum þeirra er full-
nægt. Nú í haust sendi Haraldur Þórarins-
son annan fola að gjöf, og Leopold Jó-
hannesson, Hreðavatnsskála, gaf vetur-
gamlan fola. Þann fallega hug og hjálp við
málefnið, sem þessir menn hafa sýnt, ber
að þakka.
Nánar er þetta um folana að segja:
Gjafir til stöðvarinnar eru: Glaður frá
Reykjum, Mosfellssveit, f. 1972, og 3 folöld,
f. 1973, þ.e. Orri frá Kirkjubæ, Þór frá Akur-
eyri og Gráni frá Hólum í Hjaltadal. Þremur
folum, f. 1972, og 5 hestfolöldum (f. 1973)
er komið í uppeldi. Keypt eru 6 hestfolöld
(f. 1973) á 15 þúsund kr. hvert. Folarnir eru
þá 18 talsins á húsi frá því í janúar til 7.
júní 1974 (sjá skrá I).
Á tímabilinu frá janúar 1974 til júní 1974
reyndust fóðurdagar vera 2145, og fóður,
bæði hey og mél, keypt fyrir um 160 þúsund
kr. Var því beinn fóðurkostnaður um kr. 75
á dag, en var selt út á kr. 90 á dag.
Hirðir var Már Ólafsson, Eyrarbakka.
Ekkert var tamið.
Vorið 1974 voru þrír 2 vetra ungfolar
lánaðir til undaneldis. Var óskað eftir því
við hryssueigendur, að þeir lánuðu væntan-
leg afkvæmi í afkvæmarannsókn, þegar að
því kæmi. Folaleiga er þá ekki önnur en
flutningskostnaður á folum fram og til baka,
en stöðin getur ekki tekið á sig neinn kostn-
að af útlánum — enda má telja, að hér sé
um kostaboð að ræða.
Leigðir folar vorið 1974 voru: Glaður frá
Reykjum, notaður í Kjósarhreppi, Hersir frá
Lágafelli, notaður þar, og Glanni frá Skán-
ey, sem notaður var í Lundarreykjadal.
Sumarið 1974 gengu veturgömlu folarnir
á útjörð. Þá týndist Orri (f. 1973) frá Kirkju-
bæ, hefur sennilega farið í skurð.
Frh.
8
F R E Y R