Freyr - 01.01.1976, Qupperneq 17
Ör á Akureyri.
Knapi: Ingólfur Ármannsson.
graðir, eineistingar og annað slíkt, slæg-
ir eða geðillir, svo eitthvað sé tilnefnt af
óhafandi göllum, skulu vanaðir. Hinum,
sem eru heilbrigðir og álitlegir, skal
koma til undaneldis, ef kostur er. Heima-
sveit er æskilegur notkunarstaður fyrir
hvern fola, ef kostur er og óskir koma
fram um það. Þá ber að greiða fyrir
stofnræktarfélögum og búum, sem þarfn-
ast fola af vissum ættum o.s.frv. Á marg-
an hátt er álitlegt að ná tömdum hryss-
um undir þessa fola, enda ber að stefna
að því, að eingöngu séu notaðar tamdar
reiðhryssur til undaneldis. Leiða skal
ekki færri en 12 hryssur, ef mögulega
fást, undir hvern fola, svo að sem trygg-
ast sé, að eigi verði afkvæmin færri en
8, er þau komast á tamningaaldur. Sam-
komulag þarf að nást við hryssueigendur
um það, að þeir setji folöldin á vetur og
eigi þau eða selji þau til lífs með því
skilyrði, að hægt verði að fá þau í af-
kvæmarannsókn, er þau fara á 4. eða 5.
vetur, eftir því sem aðstæður leyfa. Höf-
uðnauðsyn er, að þetta takist, svo hægt
verði með þessu móti að ákveða framtíð
hvers fola sem kynbótahests. Gildi og
gagnsemi stóðhestastöðvarinnar byggist
mjög á þessu atriði og því ber að leggja
þunga áherslu á, að þessi hlekkur keðj-
unnar bresti ekki.
3. Þegar folarnir eru 3 og 4 vetra, má leigja
þá til undaneldis, í það minnsta þá álit-
legustu, en að öðrum kosti geyma þá,
þar til afkvæmadómur hefur fallið, sem
mundi skera úr um framtíð þeirra.
4. Stóðhestarnir séu tamdir 4 og 5 vetra,
og þegar þeir eru 5 vetra, sé tímabilinu
lokið. Þá fái þeir einstaklingsdóm fyrir
byggingu og reiðhestskosti. Eigendur
fái sína hesta, en stöðvarfolarnir verði
ýmist seldir eða leigðir til undaneldis.
5. Á þeim fimm árum, sem folarnir eru á
stöðinni, má gera margvíslegar athugan-
ir og tilraunir um fóðrun, aðbúnað í húsi
og högum, landþörf, tamningar o.fl., sem
gagnlegt væri.
Haustið 1973 fól stjórn stóðhestastöðv-
arinnar mér að hefja kaup á stóðhestaefn-
um. Það er erfitt og vandasamt verk. Æski-
legast er að ná vænum (stórum) og vel
sköpuðum folöldum. Að velja eftir ætt tel
ég þó, að eigi að vera megin markmið og
báðir foreldrar séu sem best ættaðir.
F R E Y R
7