Freyr - 01.01.1976, Blaðsíða 28
Rauðaberg á Mýrum. Bær Sævars
Kristins. Þar kemur Fláarjökull
fram og blasir við úr
eldhúsglugganum.
— Þetta hefur þá verið stórvaxnari stofn.
En er nokkuð unnið við það?
— Ja, þetta þingeyska, sem kom þarna
frá Reyðará, það er geysimikið söfnunarfé.
Ærnar verða geysivænar en þær skila því
ekki að sama skapi í afurðum. Og ég hef
stundum hugsað um það og fundið til þess,
ef pestir eru að skælast í þetta á vorin —
hvort sem það er doði eða þær bráðdrepast
af graseitrun eða öðru — að þurfa þá að
vera að moka ofan á allt þetta kjöt. Eins
veit ég ekki, hvað er unnið við, að þær
bera allt þetta kjöt um yfir sumarið en
koma svo með lítil lömb ofan í allt saman.
Ég held, að það hafi alltaf verið til í því,
sem eftir var í okkar ræktaða fé, meiri
mjólkurlagni.
— Viltu kalla þetta gamla fé ykkar hérna
Mýrafé eða bara skaftfellskt?
— Ég vil nú kalla það skaftfellskt, en
auðvitað er það ekki hreint skaftfellskt,
því að á árunum fyrir 1920 þá er Þorbergur
heitinn í Hólum kominn með Möðrudals-
hrútana og það er búið að blanda það með
þeim. Áður held ég, að fé hér hafi verið
lélegt.
— En í Öræfunum, hefur þar ekki hald-
ist hreinn, gamall skaftfellskur stofn?
— Það var líka blandað með Möðrudalsfé
og þingeysku á sínum tíma. En nú er það
orðið sérstakt vegna þess, að þangað hefur
ekki verið flutt kind, að ég hygg í um
fimmtíu ár. Yið höfum fengið fé þaðan og
það er greinilega allfrábrugðið. Mér finnst
það heldur gróft en duglegt. En af því við
vorum að tala um þingeyska féð áðan, þá
finnst mér það frekar seinþroska — en það
er mikið söfnunarfé og við góðar aðstæður
gefur það mjög góðan arð.
☆
— Nú virðist mér sem búið sé að sýna
fram á, að það sé hægt að búa við góðan
sauðfjárbúskap á láglendi. Ertu ekki sam-
mála mér um það?
— Jú, ég er alveg sannfærður um það.
Hér um sveitir hafa menn fjölgað fénu
jafnt og þétt, t.d. Suðursveitungarnir, og
það gera þeir á þennan sérstæða hátt með
ræktuninni, bæði til að fá heyið og svo
beitina á haustin. Þarna geta þeir haft féð
á góðu grængresi alveg fram á vetur. Og
það er alltaf vaxandi árangur hjá þeim,
betri og betri fallþungi.
— Hvað segirðu mér þá um annað? Það
er verið að tala um ofbeit og að við höfum
of margt sauðfé í landinu.
— Við höfum ekkert of margt sauðfé í
landinu. Við getum haft svo margt fé sem
18
F R E Y R