Freyr - 01.01.1976, Síða 30
ekki við því, þá leiðist mér það. Menn,
sem koma að, gætu haldið, að hann ætti
svona ljótar ær. En það var nú ekki það,
sem ég ætlaði að segja, heldur hitt, að ég
gerði hérna dálitla girðingu og hafði þar í
sumar átján ær. Það voru fimmtíu og sex
kindur. Nú, þegar ég tek lömbin frá þeim
og læt þau á betri beit, þar sem ærnar
ekki sáu til þeirra, og ætlaði svo nokkrum
dögum seinna að sleppa þeim í úthagann,
þá veit ég ekki fyrst, hvað af þeim varð,
en sé svo nokkrum dögum seinna, að þær
eru allar lagstar við girðinguna, þar sem
þær voru í sumar, þangað vildu þær kom-
ast.
„Nú taka yngri menn vi3 störfunum — og bæta það
allt frá því, sem var.“
— Þú ert nú með hugann allan við sauð-
fjárræktina, þó að þú teljir, að stjórnar-
kreppa sé í félaginu ykkar. Heldurðu ekki,
að hún leysist?
— Jú, jú, hún gerir það, en ég er búinn
að vera í því starfi, ég er orðinn svo gamall,
og það eru komnir yngri menn, sem taka
við þessu og bæta það allt frá því, sem var.
— En þið hafið haft mörg önnur merki-
leg félög hérna í héraðinu og þú hefur
tekið þátt í þeim?
— Já, maður hefur gert það. Það eru
mörg félögin — búnaðarfélag, ungmenna-
félag, skógræktarfélag og svo menningar-
félagið. Menningarfélagið var mjög merki-
legt og ungmennafélögin líka. Það kom
ýmsu góðu til leiðar og hér hafa starfað
ýmsir ágætir félagsmálamenn og menn,
sem hafa stuðlað að framförum, eins og t.
d. Steinþór á Hala og margir fleiri, sem ég
ætla ekki að fara að telja.
— Hvað heldur þú, að orðið hafi til
mestra framfara í héraðinu á þessum ára-
tugum, sem þú manst?
— Samgöngurnar — og það að beisla
vötnin — og svo ræktunin — en þetta
hékk allt meira og minna saman. Sam-
göngurnar og ræktunin hafa valdið hér
byltingu. Menn gera sér það, held ég, alls
ekki Ijóst, hvað þetta var mikið átak, t.d.
með ræktunina — það að fara út í svartan
sandinn. Það þurfti verulegt áræði til þess.
Svo er það ekki minnst ánægjulegt fyrir
það, að þetta hefur verið gert í samvinnu,
og hún hefur reynst mönnum vel. Með því
gátu líka allir verið með og enginn þurfti
að sitja eftir með framkvæmdirnar. En
það, sem ég er ekki ánægður með, er, að
okkur vantar nógu góða tækni til að koma
búfjáráburðinum út á félagsræktunina á
sandinum. Við þurfum að fá þannig meira
af lífrænum efnum í sandinn og eðlilega
hringrás þeirra við ræktunina og búskap-
inn. Ég er viss um, að með tímanum grær
hér mikið meira upp og við höfum stór-
kostlega möguleika í þessu héraði.
20
F R E Y R