Freyr - 01.01.1976, Síða 34
hugsanlega getur blendingsþróttur átt ein-
hvern þátt í þeim yfirburðum, sem þessir
hrútar sýna sem ærfeður. Dæturnar eru þó
aðeins að xk íslenskar og verður blendings-
þrótturinn þá verulega minni en við hálf-
blendingsrækt. Allt bendir því til, að þessi
blöndun við íslenskt blóð hafi orðið til að
bæta stofninn, en þess má geta, að þetta er
það fjárkyn, sem er frjósamast allra
norskra fjárkynja.
Það, sem hlýtur að vekja athygli, eru
hinir stóru ærhópar undan þessum hrútum,
en þeir eru aðeins þriggja vetra gamlir.
Meginhluti ánna er að sjálfsögðu vetur-
gamlar ær. Þetta er aðeins áminning um
það að nota verður hrútana mikið, ef
stunda skal kynbætur, þannig að hægt sé
að dæma um kosti þeirra, meðan þeir enn
eru ungir. Kostir góðra gripa nýtast því
aðeins, að þeir séu mikiðð notaðir til und-
aneldis.
Hvernig á að bða
á íslandi?...
Framh. af bls. 1.
jarðvarma. Slíkur iðnaður virðist, hvernig sem á málin
er litið, fullkomlega standast samanburð við þann orku-
freka iðnað eða svonefnda stóriðju, sem hér er þegar
komin, er í undirbúningi eða menn mæna á sem fram-
tíðarbjargráð.
En samfara ræktuninni á búskapur okkar auðvitað
líka að byggjast á nýtingu alls þess, sem landið getur
gefið. Landið hefur margvísleg hlunnindi. Beit á útjörð
og afrétti er ein þeirra. Hana þarf að nýta rétt eins og
öll hin. Það væri rangt að nýta hana í engu, eins og
það er háskasamlegt að ofnýta hana og níða landið.
Eitt það brýnasta í rannsóknum okkar er að finna þarna
hinn gullna meðalveg. En það mun væntanlega koma í
Ijós, að saman fara hagkvæmasta búskaparaðferðin og
góð meðferð á landinu.
•
Niðurstaðan af þessum stuttu hugleiðingum er því sú,
að allt fari saman: búskaparlag, sem gefi bændum í
heild mest í aðra hönd, þegar til lengdar lætur, leggur
þjóðarbúinu mest af mörkum, þegar allt er reiknað, og
er eðlilegasta hlutverk okkar, þegar litið er á matvæla-
þarfir mannkynsins alls og möguleika á, að það geti allt
lifað laust við skort og hungur.
Það hefur verið reiknað út, að með því að fullrækta allt
það land, sem liggur neðan 200 metra, og vel ræktanlegt
er talið, mætti framfleyta á því sem svarar 1 milljón
kúgilda eða tíföldum þeim bústofni, sem við nú höfum.
Þessi bústofn gæfi afurðir, sem nægðu tveggja milljóna
þjóð. Þessir útreikningar voru af varfærni gerið. En hver
sem nákvæmni þeirra er, sýna þeir, að hér er sannarlega
af miklu að taka.
24
F R E Y R