Freyr - 01.01.1976, Síða 42
Námskeiðjim notkun eilurefna og hættulegra efna
i landbúnaði og garðyrkju
Haldin verða námskeið um notkun eiturefna og hættulegra efna í landbún-
aði og garðyrkju í Garðyrkjuskóla ríkisins, Reykjum, Ölfusi, síðari hluta
apríl og í byrjun maí 1976. Námskeiðin standa hvert í 3 daga og eru haldin
á vegum eiturefnanefndar, Garðyrkjuskóla ríkisins og garðyrkjuráðunauta
Búnaðarfélags íslands.
Námskeiðin eru einkum ætluð þeim, sem fengið hafa leyfi til þess að
nota efni og efnasamsetningar í X og A hættuflokkum með því skilyrði, að
leyfisskírteini yrðu ekki framlengd nema hlutaðeigendur sæktu námskeið
til þess að kynnast nánar meðferð og notkun efnanna, sbr. 4. gr. reglu-
gerðar nr. 132/1971. Námskeið þessi eru enn fremur ætluð öðrum, sem
kunna að þurfa á leyfisskírteinum að halda, en eigi hafa enn fengið slík
skírteini.
Þeir, sem kynnu að vilja notfæra sér þessi námskeið, skulu senda um-
sóknir til eiturefnanefndar, pósthólf 109, Reykjavík, fyrir 1. marz, 1976.
Geta skal i umsókn í hverju ræktunarstörf umsækjenda eru einkum fólgin.
Fæði og húsnæði verður í Garðyrkjuskólanum fyrir þá, sem þess óska.
Miðað er við, að 25 þátttakendur séu á hverju námskeiði.
Nánari upplýsingar um námskeiðshald gefur skólastjóri Garðyrkjuskóla
ríkisins. Þátttökugjald, sem verður um það bil kr. 5.000,00, skal greiða
skólastjóra Garðyrkjuskólans í upphafi námskeiðs.
Eiturnefnd,
Garðyrkjuskóli ríkisins,
Garðyrkjuráðunautar Búnaðarfélags íslands