Freyr

Årgang

Freyr - 01.04.1990, Side 20

Freyr - 01.04.1990, Side 20
í því sambandi bendir þingið á að gerð verði sú breyting á reglu- gerð nr. 245 frá 31. des. 1963, að búnaðarsamböndin komi í tölu þeirra félaga, sem þar eru talin upp og almennt eru undanþegin tekju- og eignaskatti. Þingið bendir sérstaklega á, að búnaðarsamböndin eru sambönd búnaðarfélaganna og þær einingar sem mynda Búnaðarfélag íslands. Því hljóta að gilda sömu ákvæði um þau hvað skattskyldu varðar og tilgreind félög, og verði a.m.k. ekki skattlögð á meðan þau stunda ekki aðra atvinnustarfsemi en þá, sem þjónar tilgangi þeirra, þ.m.t. rekstur tilraunabúa, og eiga ekki aðrar eignir en þær, sem nauðsyn- legar eru fyrir starfsemi þeirra. Benda má á, að búnaðarsam- böndin vinna mikla þjónustu við framkvæmd laga fyrir ríkið. Búnaðarþing skorar á landbún- aðarráðherra og hlutast til um framgang þessa máls. Frumvarptil laga um Abyrgðadeild fiskeldislána ÁLYKTUN Búnaðarþing mælir með lögfest- ingu frumvarps til laga um Ábyrgðadeild fiskeldislána, 256. mál 112. löggjafarþings. Við lögfestingu á frumvarpinu verði sérstaklega athugað hvort ekki sé nauðsyn að hækka heimild um ríkisábyrgð úr 37,5%, þar sem ætla má að slík rýmkun á heimild- inni gæti leyst vanda fleiri fiskeldis- fyrirtækja á raunhæfan hátt. Þá leggur þingið til að ábyrgðin gildi í 8 ár í stað 6 í því formi sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Búnaðarþing bendir á 5. gr. frumvarpsins, sem kveður á um stjórn Ábyrgðadeildarinnar. Þar kemur meðal annars fram að stjórn deildarinnar beri að framkvæma ítarlegt mat á stöðu og rekstrarör- yggi viðkomandi fyrirtækja, og fyr- irtæki komi því aðeins til álita við veitingu sjálfskuldaábyrgða að grundvöllur teljist vera fyrir rekstri þeirra til lengri tíma litið. Þingið telur að þessi ákvæði 5. gr. geti veitt tryggingu fyrir því aðhaldi sem þörf er á um veitingu ríkisábyrgða í þessu efni. Erindi Birkis Friðbertssonar um bætta réttarstöðu bænda til nytja vegna kvikfjárræktar ÁLYKTUN Búnaðarþing 1990 beinir því til landbúnaðarráðherra að hann setji með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd jarðalaga, eins og fram er tekið í 71. gr. laga nr. 65/ 1976. GREINARGERÐ / reglugerðum er nánar kveðið á um framkvœmd laga og túlkunar þeirra. Jarðalögin hafa ekki þá sérstöðu að reglugerð með þeim sé óþörf. Túlkun laga er varða réttarstöðu atvinnugreina og eignarréttar þarf að vera skýr og ífullu samrœmi við tilgang laganna. Astœða er til þess að óska fyrr- greindrar reglugerðar þar sem nú er sérstök áhersla lögð á að íslenskur landbúnaður verði hagkvæmari. íþvísambandi verður ekkigeng- iðfram hjáþvíað á ýmsum jörðum vœri hœgt að auka hagrœðingu, einkum hvað varðar ræktun og heyöflun, með því að eignarhald eða nytjaréttur til heyöflunar og beitar á viðkomandi jörð vœri á hendi þess eða þeirra sem stunduðu þær greinar sem byggja á framan- greindum landsnytjum. Vissum landshlutum sem nú eiga í vök að verjast er þeim mun hœtt- ara af framangreindum orsökum sem ræktunarland er þar oft tak- markaðra og jarðir hafa ef til vill brytjast meira niður en annars stað- ar, meðal annars vegna arfaskipta eftir brottflutning. Erindi endurskoðenda reikninga Búnaðarfélags Islands um ráðstöf- un sjóðaleifa ræktunarsambanda vegna fyrninga ÁLYKTUN Búnaðarþing leggur til að inn- eignir ræktunarsambanda vegna fyrningasjóða, sem nú er í vörslu Búnaðarfélags íslands, verði af- hentar hlutaðeigandi ræktunar- samböndum, en búnaðarsam- böndum, þar sem ræktunarsam- bönd eru ekki lengur starfandi. Erindi Jóseps Rósinkarssonar um stimplun kjöts við heilbirgðisskoð- un ÁLYKTUN að selja framleiðslu sína á svo- nefndum útimörkuðum. Þingið væntir þess að fram- komnar reglugerðartillögur séu ekki í ósamræmi við lög. Reynist ekki stoð í lögum fyrir framsettum tillögum skorar Bún- aðarþing á landbúnaðarráðherra að vinna hið fyrsta að nauðsynlegri lagabreytingu. Búnaðarþing beinir því til yfir- dýralæknis og yfirkjötmats ríkis- ins, að hlutast til um, að stimplun á kjöti verði framvegis hagað þannig að fram komi frá hvaða ári fram- leiðslan er og af hvaða gæðaflokki. Erindi Sigurðar Þórólfssonar, Jóns Hólm Stefánssonar, Jóns Guð- mundssonar og Bjarna Guðráðs- sonar um heilbrigði í umhverfi á bújörðum og verndun lífríkis ÁLYKTUN Búnaðarþing telur brýnt að nú þegar verði snúist til varnar gegn útbreiðslu á sýkingu vegna Salmonellasmits og fleiri sýkinga af völdum smitbera vegna lélegrar umhirðu sorphauga, fiskúrgangs, úrgangs frá sláturhúsum og ófull- nægjandi frágangs við frárennsli o.fl. Því leggur þingið áherslu á að gert verði skipulegt átak til kynn- ingar og fræðslu um land allt varð- andi þetta mál. Þingið beinir því til búnaðar- sambandanna að hlutast til um að héraðsnefndir einstakra héraða, að þær gangist fyrir fræðslu og kynningarfundum um þessi mál og 260 Freyr 7, APRÍL 1990

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.