Freyr

Árgangur

Freyr - 01.04.1990, Blaðsíða 34

Freyr - 01.04.1990, Blaðsíða 34
hefur verið milli Stéttarsambands bænda annars vegar og Verka- mannasambands íslands hins veg- ar, verði rækilega kynntur meðal bænda og landbúnaðarverkafólks. Bent er á að réttindi starfsfólks- ins tii bóta úr Atvinnuleysistrygg- ingasjóði byggjast á samningi þess- um. Erindi formannafundar búnaðar- sambanda 1990 um félagskerfi landbúnaðarins (mál nr. 20. hluti) og erindi Sambands garðyrkju- bænda um lagaleg réttindi bú- greinafélaga á við hreppabúnaðar- félög (mál nr. 6) ÁLYKTUN Búnaðarþing óskar eftir því að nefnd sú, sem unnið hefur að end- urskoðun á félagskerfi landbúnað- arins á vegum Búnaðarfélags íslands, Stéttarsambands bænda og búnaðarsambandanna starfi áfram. Til að greiða fyrir störfum nefndarinnar felur Búnaðarþing stjórn Búnaðarfélags íslands að leita samstarfs við Stéttarsamband bænda um að hver aðili fyrir sig tilnefni einn mann til viðbótar í nefndina, þannig að um fimm manna starfshóp sé að ræða. Nefndin ljúki störfum á þessu ári og skili áliti til næsta Búnaðar- þings. Auk hinnar almennu umfjöllun- ar sem m.a. beinist að uppbygg- ingu hinna þriggja megin þátta fé- lagskerfisins; búnaðarsambanda, Búnaðarfélags íslands og Stéttar- sambands bænda, og æskilegrar verkaskiptingar milli þessara að- ila, felur þingið nefndinni að móta endanlega tillögur um beina aðild búgreinafélaga að búnaðarsam- böndunum sem grunneininga til jafns við hreppsbúnaðarfélög. Bókun Jóns Gíslasonar og Önnu- bellu Harðardóttur við ályktun á þingskj. nr. 90 Við undirrituð viljum taka fram vegna niðurlags ályktunar á þingskjali nr. 90 að við teljum, að rétt væri, að það Búnaðarþing sem nú situr breyti lögum Búnaðarfé- lags íslands á þann hátt að bú- greinafélög sem telja meirihluta bænda í viðkomandi búgrein, á sama búnaðarsambandssvæði, geti orðið beinir aðilar að búnaðarsam- böndum, enda uppfylli þau sömu skilyrði um starfshætti og búnaðar- félög og hafi sömu skyldum að gegna. Fjárhagsnefnd: Sveinn Jónsson, formaður, Ágúst Gíslason, ritari, Jón Guðmundsson, Jón Hólm Stefánsson, Páll Ólafsson. Alit milliþinganefndar Búnaðar- þings um fjármál búnaðarsam- bandanna, bókhaldsmál o.ff. ÁLYKTUN Búnaðarþing leggur áherslu á að brýnt sé að efla virka þróunarstarf- semi í Iandbúnaði, auka hag- kvæmni og greiða framgang nýrra hugmynda, þekkingar og tækni í framleiðsluháttum. Til stuðnings þessum markmið- um verði komið á, á vegum Búnað- arfélags íslands og búnaðarsam- bandanna, samræmdu bókhalds- kerfi, landbúnaðarbókhaldi, er byggist sérstaklega á eftirfarandi: 1. Rekstrarbókhald, sem miðist við uppgjör á virðisaukaskatti, landbúnaðarframtali og heild- aruppgjöri einstakra búa, þar sem unnt verði að meta afkomu hverrar búgreinar fyrir sig. 2. Þróunarbókhaldi, sem grund- vallast á áætlunargerð, m.a. vegna áburðarnotkunar og fóðrunar búpenings, mats á ræktun og færslu búfjár- skýrslna. Haft skal faglegt samráð við Hagþjónustu landbúnaðarins um þau mál, er hana varðar, og tryggja þannig farsælt og árangursríkt samstarf. Til þess að tryggja framgang framangreindra ákvarðana leggur Búnaðarþing áherslu á eftirfar- andi: a) Öll búnaðarsambönd noti sam- ræmt bókhaldsforrit er uppfylli ákvæði laga um Hagþjónustu landbúnaðarins. Tölvuforritið heitir Bústólpi og er í eigu Bún- aðarfélags Islands og búnaðar- sambandanna. Mynda skal tölvunet milli allra búnaðar- sambandanna og stjórntölvu Búnaðarfélags íslands vegna þessa verkefnis. Þannig verði tryggð miðlun upplýsinga og leiðbeininga. Bústólpi verði af- hentur einstökum bændum til notkunar gegn hóflegri greiðslu sem miðast við 5.000 kr. árs- leigu, er taki verðlagsbreyting- um. Settar verði reglur um samvinnu milli þeirra bænda er færa eigið bókhald og viðkom- andi búnaðarsambands. b) Heimilt er búnaðarsambandi að leigja bókhaldsstofum tölvu- forritið Bústólpa enda sé þá tryggt að þær hagi uppgjöri með sama hætti og viðkomandi búnaðarsamband og veiti bændum sambærilega þjón- ustu. Búnaðarfélag Islands af- hendir búnaðarsantböndunum samningsform. c) Landbúnaðarbókhaldið er rótin að nýjum áherslum í fag- legri starfsemi lanébúnaðarins. Einungis virk þátttaka bænda- stéttarinnar getur tryggt árang- ur. Þar sem hér er um nýtt svið verkefna að ræða verða störf leiðbeiningaþjónustunnar að vera markviss og sannfærandi svo að útbreiðsla landbúnaðar- bókhaldsinsverðifullnægjandi. Þess vegna er lögð áhersla á að gjaldtaka fyrir þá þjónustu sem búnaðarsamböndin veita bændum meðan landbúnaðar- bókhaldið er að festast í sessi verði hófleg og fremur reynt að afla tekna með góðri þátttöku en dýrt seldri þjónustu. Lagt er til, að á þessu ári verði í gildi sérstakt kynningarverð er að hámarki nemi til dæmis krónum 10.000 fyrirhvern upp- gerðan reikning. d) Búnaðarþing metur mikils þá 274 Freyr 7, APRlL 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.