Freyr

Volume

Freyr - 01.04.1990, Page 52

Freyr - 01.04.1990, Page 52
Á fundi stjórnar Stéttarsambands bœnda 21. mars sl. gerðist m.a. þetta: (Jndirbúningurnýs búvörusamnings. Formaður greindi frá gangi málsins, m.a. frá hugmyndum sem formaðurstjórnar Framleiðnisjóðs hefur lagt fram í stjórn sjóðsins um að Framleiðnisjóður hefji á ný uppkaup á fullvirðisrétti. Er sú að- gerð hugsuð sem liður í aðlögun að nýjum búvörusamningi. Eftirfar- andi ályktun var samþykkt um málið: „Stjórn Stéttarsambands bænda tekur undir framkomnar hug- myndir um að lagt verði fram fé til að greiða fyrir hagræðingu í bú- vöruframleiðslunni sem í aðalat- riðum sé svæðisbundin. Stjórnin telur þó að ekki sé rétt að leggja áherslu á verðmæti full- virðisréttarins sem slíks. Því verði sá möguleiki athugaður, a.m.k. samhliða greiðslum fyrir fullvirðis- rétt, að greiða að stórum hluta bætur fyrir þau verðmæti í bygg- ingum og ræktun sem nýtast ekki eftir að búvöruframleiðslu er hætt. Greiðslur séu fyrst og fremst bundnar við jarðir þar sem sam- kvæmt niðurstöðum úr búrekstrar- könnunum má ætla að búrekstur leggist fljótlega af vegna takmark- aðs framleiðsiuréttar, lélegra bygginga og/eða ræktunar. Þá verði um leið tekið mið af landnýt- ingu og markaðsaðstæðum." Nefnd til að endurskoða gjaldskrá dýralækna. Lagt fram bréf landbúnaðarráðu- neytisins dags. 2. mars sl. þar sem óskað er eftir því að Stéttarsam- bandið tilnefni mann í nefnd til þess að endurskoða gjaldskrá dýralækna. Samþykkt var að til- nefna Guðmund Jónsson á Reykj- um í nefndina. Endurskoðun á kjarasamningi Stéttarsambands bænda og 292 FREYR Verkamannasambands Islands vegna lausráðinna starfsmanna í landbúnaði. Formaður og framkvæmdastjóri greindu frá viðræðum við Verka- mannasamband Islands um endur- skoðun á þeim kjarasamningi sem gilti árið 1989 um launakjör laus- ráðinna starfsmanna á bændabýl- um. Fyrir lágu tillögur Verkamanna- sambandsins um hækkun á þeim töxtum sem gilt hafa frá 1. maí 1989. Hækkunin er 8,28% á grunn- launum og er það í samræmi við þá launaþróun sem verið hefur á þess- um tíma. Gert er ráð fyrir að frádráttur vegna fæðis, húsnæðis og þjónustu hækki um 14%. Þá var frá því greint að Verkamannasam- band íslands hafi óskað eftir því að Stéttarsamband bænda viður- kenndi að hinir almennu kjara- samningar Verkamannasam- bandsins verði grundvallarsamn- ingur við störf í landbúnaðinum. Bent var á að slíkt myndi kalla á sérsamninga vegna sérstöðu land- búnaðarins og þarfa í einstökum búgreinum. Þá var frá því greint að nú, þegar formlegur kjarasamningur hefur verið gerður um kjör lausráðinna starfsmanna í landbúnaðinum, ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að umræddir starfsmenn öðlist rétt til atvinnuleysisbóta enda leggi skattstjórar á atvinnuleysistrygg- ingagjald vegna launa þeirra. Fram kom að nauðsynlegt væri að kynna þessi mál vel meðal bænda og leiðbeina um hvernig haga beri uppgjöri launa í þessu sambandi. Formanni og framkvæmdastjóra var síðan veitt umboð til þess að ganga frá endurskoðuðum kjara- samningi við Verkamannasam- band íslands á þeim grundvelli sem kynntur var. Gunnlaugur Júlíusson í leyfi. Lagt fram bréf frá Gunnlaugi Júl- íussyni hagfræðingi þar sem hann óskar eftir leyfi frá störfum til 1 júlí 1991 frá 1. mars 1991 að telja. Gunnlaugur mun á þessu tímabili gegna störfum í landbúnaðarráðu- neytinu. Samþykkt að veita Gunnlaugi umbeðið leyfi frá störfum. Skilagjaldá rúllubaggaplasti. Lagt fram bréf frá 13 bændum sem staddir voru á námskeiði í verkun votheys á Hvanneyri þar sem skor- að er á stjórn Stéttarsambands bænda að beita sér fyrir því að komið verði á einhvers konar regl- um, t.d. skilagjaldi á plastfilmur utan af rúlluböggum þannig að komist verði hjá umhverfisspjöll- um. Afgreiðslu frestað til næsta fundar. Fyrirspurn til Hagstofununar Háskóla Islands. Lagt var fram bréf framkvæmda- stjóra Stéttarsambands bænda til formanns stjórnar Hagstofnunar Háskóla íslands þar sem spurst er fyrir um það hvort nýleg umfjöllun starfsmanns Hagstofnunarinnar um landbúnaðarmál sé í samræmi við starfsreglur hennar. Er þar átt við viðtöl og greina- skrif Guðmundar Ólafssonar hag- fræðings. Leiðrétting á myndatexta í 5. tbl. í texta með mynd í 5. tbl. Freys þ.á. af bændum í heimsókn hjá RÚV, var rangt farið með eitt nafn þeirra sem á myndinni eru. Þar sem stendur Steinunn Sigurðar- dóttir á að vera Svava Gunnars- dóttir. — Blaðið biður hlutaðeig- andi velvirðingar á þessu mis- hermi. 7. APRlL 1990

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.