Freyr - 01.08.1991, Síða 10
574 FREYR
15.-16.’91
Höfdabrekka í Mýrdal í morgunasól. (Freysmyndir).
Ijós og hiti o.s.frv., fyrir minna
húsið. A hitt er ekki komin
reynsla.
Hvaða veitingar býður þú upp
á?
Flestir næturgestir borða hér
morgunmat, en það er sjaldan að
gestir séu hér í hádegismat. Pegar
það gista hér hópar þá útbý ég fyrir
þá nesti sem borðað er í hádeginu
og svo er algengt að hér sé borðað-
ur kvöldverður.
Koma hingað hópartil
gistingar?
Já, það er mikið um þetta 16-20
rnanna hópa sem eru á vegum
ferðaskrifstofa. Pað eru þá oftast
útlendingar.
Ég sé að það standa hér fyrir
utan tvö grillsett. Er mikið grillað
hérfyrirgesti?
I öðru grillinu þá grillar fólkið fyrir
sig sjálft og svo höfum við verið að
reyna að leggja okkar af mörkum
við að koma út lambakjötinu og
grillað fyrir gesti. Jóhannes hefur
séð um það.
Hvernig hefur útlendingum líkað
þetta?
Mjög vel. Þetta þykir útlendingum
mikið hnossgæti. Við höfum auk
þess haldið útlendingum lunda-
veislu og það gerir mikla lukku.
Hér er stundum eins konar garð-
veislustemmning þar sem fólk
nýtur veðurblíðunnar, spjallar
saman, spilar á hljóðfæri og tekur
lagið. Það eru þá alltaf útlendingar
sem eru uppistaðan í því. íslenskir
ferðamenn vilja frekar vera út af
fyrir sig, jafnvel með matinn sinn,
enda eru það oft fjölskyldur á ferð.
Heyrirðu frá því fólki sem gist
hefur hér eftir að það er komið
heim?
Já, töluvert mikið. Það konta kort
og heimboð og það er m.a. búið að
bjóða okkur í brúðkaup til út-
landa. Það er líka mjög mikið um
það að fólk skilji eftir heimilisföng
ef maður yrði á ferð erlendis. Það
koma líka margar fyrirspurnir þar
sem fólk spyr hvort ættingjar þess
geti fengið vinnu hér fyrir sumar-
tímann. Það væri reyndar mjög
gott að hafa erlenda manneskju í
vinnu. bæði fyrir mann sjálfan og
fyrir gestina. Annars er það ensk-
an sem gildir hér sem tungumál.
Er munur á samskiptum við
íslenska og erlenda
ferðamenn?
Það er ekki munur á að hafa þá
sem gesti, en íslendingarnir telja
sjálfsagt það sem útlendingar
mundu aldrei bjóða manni, eins og
að panta herbergi en láta svo ekki
sjá sig né afpanta. Auðvitað getur
alltaf komið fyrir að fólk forfallist
og þá ætti að vera minnsta málið að
hringja og afpanta og það er alltaf
tekið til greina. Það er hins vegar
dýrt að sitja uppi með tóm herbergi
á þessum stutta tíma þegar aðsókn
er mest. Útlendingar standa hins
vegar vel við sínar pantanir.
Hvað er mikið um að gestir komi
beint inn af götunni og haf i ekki
pantaðáður?
í júní og september þá dettur það
frekar inn en aftur í júlí og ágúst er
mest um að pantað sé með eins til
þriggja daga fyrirvara. Fólkið er
með áætlun sem það er að ferðast
eftir og pantar með þessum fyrir-
vara. Þó er svolítið um að það sé
pantað með löngum fyrirvara. Yfir
háannatímann hefur þurft að vísa
frá. hvernig sem það verður eftir
að nýja húsið er komið í notkun.
Hvað hafið þið fleira að bjóða
ferðamönnum upp á en gistingu
og fœði?
Við erum hér með hestaleigu. Jó-
hannes og strákarnir annast það og
það er alltaf einhver sem fer með
fólkinu. Það er hægt að fara í
klukkutímaferð eða tveggja,
þriggja eða fjögurra tíma ferðir.
Það er mjög mikið farið niður að