Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1991, Síða 21

Freyr - 01.08.1991, Síða 21
15.-16.’91 FREYR 585 ingu. Flestum svínbændum sem eru með nákvæmt skýrsluhald og nota niðurstöður þess við val lífdýra hefur tekist að koma til móts við kröfur neytenda um fitu- lítið og bragðgott svínkjöt, þannig að það er æ algengara að heyra íslenska neytendur fullyrða að íslenskt svínakjöt sé betra en það svínakjöt sem þeir hafa fengið er- lendis. Rétt er að benda á að ís- lenskir svínabændur gætu auðveld- lega minnkað fitumagnið í svína- kjöti meira en nú hefur verið gert, en fara þarf varlega í þessuefnum. Varast ber að íslensk svínarækt lendi í sama vanda og svínrækt í nágrannalöndunum, en þar er æ algengara að neytendur og mat- reiðslumenn kvarti um að bragð- gæði svínakjöts í þessum löndum hafi hrakað mikið á síðari árum vegna þess að sláturgrísir séu orðn- ir of horaðir við slátrun. Aðallega er kvartað undan því að svínakjöt í nágrannalöndum okkar sé þurr- ara, seigara og bragðminna en áð- ur, samanber tilvitnanir hér að framan. Vaxtarhraði Helsti ókostur íslenska svína- stofnsins er of lítill vaxtarhraði miðað við vaxtarhraða svínastofna í nágrannalöndum. Vaxtarhraði ís- lensku grísanna myndi örugglega aukast við innflutning á kynbóta- dýrum. Niðurstöður afkvæma- rannsókna, sem gerðar voru á ár- inu 1990, sýna að mikill munur er á kynbótagildi íslenskra galta og gyltna og tiltölulega auðvelt er að auka vaxtarhraða og minnka fitu- söfnun íslenskra grísa með víðtæk- um afkvæmarannsóknum, þannig að vaxtarhraði og fitusöfnun ís- lenskra sláturgrísa verði nokkurn veginn sambærilegur vaxtarhraða og fitusöfnun sláturgrísa frá venju- legum svínabúum erlendis. Petta er einungis hægt að gera með víð- tækum afkvæmarannsóknum, auknu skýrsluhaldi og ströngu vali á lífdýrum. Einnig er rétt að benda á að ef víðtækar afkvæmarann- sóknir verða framkvæmdar, til þess meðal annars að auka vaxtar- hraða íslensku grísanna, taka ís- lenskir svínabændur litla áhættu á að bragðgæði íslensks svínakjöts breytist til hins verra. Sama má segja um fótagerð og endingu gyltna og þá áhættu að áður óþekktir svínasjúkdómar berist til landsins. Arfgengi vaxtarhraða í erlendum rannsóknum er talsvert lægra en arfgengi fitumagnsins, eða um 0,35, svo að reikna má með að það taki lengri tíma með ströngu úrvali lífdýra að auka vaxt- arhraða en að minnka fitumagnið. Að sjálfsögðu verður að gæta að því að aukning í vaxtarhraða or- saki ekki meiri fitusöfnun hjá slát- urgrísum en nú er. Ástæða er að minna á að þegar talað er um vaxt- arhraða grísa erlendis er miðað við vaxtarhraða grísa frá ca. 25 kg þyngd upp í 90-100 kg sláturþyngd. I þeim rannsóknum sem hafa verið gerðar á íslenska svínastofninum er miðað við vaxtarhraða frá fæð- ingu til slátrunar þar sem ógerlegt hefur reynst að fylgjast með þyngd einstakra grísa á venjulegum svínbúum. Þegar búið er að koma á kynbótastöðvum og afkvæma- rannsóknstöðvum í svínarækt hér á landi verður án efa notað sama fyrirkomulag hér og erlendis. Enn- fremur er ástæða að minna á að þau meðaltöl, sem notuð eru til að sýna þær miklu framfarir sem vissulega hafa orðið í svínarækt á Norðurlöndunum og víðar, eru meðaltöl frá öflugum kynbóta- stöðvum og afkvæmarannsókna- stöðvum sem starfræktar hafa ver- ið í áratugi í þessum löndum. Á þessar kynbótastöðvar og af- kvæmarannsóknastöðvar fer ein- ungis takmarkaður fjöldi grísa undan allra bestu einstaklingunum á búum sem eru með nákvæmt skýrsluhald. Þessi áðurnefndu meðaltöl sýna hversu langt er hægt að komast með skipulögðum kyn- bótum, en ekki hvernig sláturgrís- irnir eru frá venjulegum svínabú- um. Nánari upplýsingar um starf- semi og fyrirkomulag kynbóta á kynbótastöðvum og afkvæma- rannsóknastöðvum í Noregi og Danmörku er að finna í Fjölriti Rala nr. 139, útgefið í febrúar 1990 (Pétur Sigtryggsson 1990, „Fóður- nýting hjá svínum með hliðsjón af norrænum rannsóknum", bls. 5- 12). Ályktanir Helstu ályktanir sem hægt er að draga af þeirri samantekt sem hér liggur fyrir eru eftirfarandi: 1. Islenski svínastofninn er frjó- samur og lítið að sækja í inn- flutning til að bæta frjósemi.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.