Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1991, Qupperneq 24

Freyr - 01.08.1991, Qupperneq 24
588 FREYR 15.-16.’91 Þriggja ára landgrœðsluátaki lokið Landgrœðslan fékk 19 milljónir Hinn 6. júní sl. lauk formlega þriggja ára Átaki í landgrœðslu þegar Árni Gestsson formaður þess afhenti Sveini Runólfssyni, landgrœðslustjóra 19 milljóna söfnunarfé átaksins við hátíðlega athöfn í Borgartúni í Reykjavík. F.v. Vigdís Finnbogadóttir, forseti, Árni Gestsson, formaður Átaks í land- grœðslu, Sveinn Runólfsson, landgrœðslustjóri og Halldór Blöndal, landbún- aðarráðherra. (Freysmynd -J.J.D.). Athöfnin hófst með ávarpi Árna Gestssonar. Hann sagði m.a. að markmið samtakanna hefði verið að safna 25-30 miiljón króna til landgræðslu, því takmarki hefði nú verið náð, en ekki væri síður mik- ilsvert að starf átaksins hefði vakið áhuga fólks á landgræðslu og skiln- ing í mikilvægu starfi þeirra sem vinna að uppgræðslu landsins. Sveinn Runólfsson landgræðslu- stjóri tók til máls á eftir Árna og þakkaði honum fyrir giftudrjúg störf við forystu Átaksins sem seint yrðu fullþökkuð. Þá þakkaði Sveinn forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur fyrir stuðning við Átakið en hún hefur verið verndari þess. Hann sagði að frú Vigdís hefði gefið öllum landsmönnum fagurt fordæmi með áhuga sínum á landgræðslu, gróðurrækt og skógrækt. Landgræðslustjóri sagði að fé því sem safnast hefði yrði varið til þess að stöðva gróður- og jarð- vegseyðingu á Haukadalsheiði í Árnessýslu og endurheimta fyrri landgæði með því að sá grasfræi og áburði. Girt hefur verið og friðað sjö þúsund hektara land á heiðinni. Næstur talaði Halldór Blöndal, landbúnaðarráðherra, og gat þess að landgræðsla á suðurströndinni væri samfelld sigurganga ræktun- armanna. Nú væri komið að því að rækta önnur svæði. Hann benti á að óvíða væri sjálfboðaliðavinna almennings jafn mikil hér á landi og við landgræðslu og skógrækt. Ráðherrann sagðist vona að unnt yrði að framfylgja þingsályktunar- tillögu frá Alþingi um að stöðva jarðvegs- og gróðureyðingu og klæða landið gróðri á næstu árum. Ólafur Haraldsson frá Gallup talaði síðastur og kynnti niðurstöð- ur af skoðanakönnun um land- græðslu og umhverfismál. Þar kom m.a. fram að um 80% aðspurðra vilja auka framlög til landgræðslu. Alls söfnuðust tæplega 27 millj- ónir króna í átakinu en af þeim fór nokkur upphæð í rekstur þess og ýmis gjöld. J.J.D. Leiðrétting Á bls. 496 í 12. tbl. Freys 1991 var birt mynd af kúm sem sagðar voru dætur Kols Nl. Vakin hefur verið athygli blaðsins á að hér er ekki rétt með farið. Umræddar kýr eru dætur Hreinu á Espihóli í Hrafna- gilshreppi og er myndin tekin þar á bæ árið 1952. Ábúendur á Espihóli á þeim tíma og eigendur kúnna voru hjónin Jónína V. Jóhannes- dóttir og Kristinn Jakobsson. Blaðið biðst velvirðingar á þess- urn mistökum.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.