Freyr - 01.11.1993, Page 31
21.’93
FREYR 787
„Umhverfisvœnar" innréttingar
settar f fjósið í Eyvík
Á meðfylgjandi myndum má sjá
nýja gerð af fjósinnréttingu sem
sett var í fjósið í Eyvík í Grímsnesi
nú í haust. Innréttingin var teiknuð
hjá Byggingaþjónustu Búnaðarfé-
lags íslands og smíðuð í frístundum
af tveim ungum vélsmiðum. þeim
Sigurði Magnússyni og Sigurði Sig-
urðssyni sem báðir starfa hjá
Vélum og Þjónustu hf.
Svipuð gerð innréttinga hefur
verið á markaði víða erlendis und-
anfarin ár og hlotið meðmæli.
Bogarnir, sem mynda framhlið
bássins, eru stillanlegir á þann hátt
að hægt er að festa þá hvort sem er
framan á eða aftan á uppistöðurn-
ar. Einnig má færa þá upp og niður
á uppistöðunum og stilla bilið á
milli þeirra. Á þennan hátt má
aðlaga hvern bás að kúnni sem á
honum býr.
Hálsbönd kúnna eru úr níð-
sterku gerviefni. Þau voru keypt
hjá finnska fyrirtækinu Pellonpaja
Oy, innflytjandi er Guðmundur
Eiríksson. Tröllagili, 270 Mosfells-
bæ.
Magnús Sigsteinsson.
Hollendingar verða
bœndur í Danmörku
Gífurlega hátt verð á bújörðum
og ræktuðu landi í Hollandi hefur
leitt til þess að yfir 200 hollenskir
bændur hafa flutt til EB-landsins
Danmerkur. Þar geta einkum ung-
ir bændur komið undir sig fótunum
fyrir brot af tilsvarandi kostnaði í
Hollandi. í Hollandi er verð á
mjólkurkvóta 170 kr. á lítra. en
samsvarandi verð í Danmörku er
minna en tíundi hluti af því.