Freyr - 15.02.1994, Blaðsíða 18
Skattframtal í ár
Ketill A. Hannesson
búnaðarhagfrœðiráðunautur Búnaðarfélags íslands
Þessar leiðbeiningar eru engan veginn tœmandi, en ég vona að þœr komi að gagni.
Lestu aðeins þœr leiðbeiningar, sem fjalla um þann þátt sem verið er að vinna í í hvert
sinn, en ekki að lesa allar leiðbeiningarnar í einu.
Nauðsynleg gögn:
1. Leiðbeiningar ríkisskattstjóra, sem eiga að
fylgja framtalseyðublöðunum. (RSK).
2. Leiðbeiningar um útfyllingu landbúnaðar-
skýrslu 1994.
3. Leiðbeiningar um fyrningarskýrslu 1993 á bak-
hlið hennar. (RSK).
4. Leiðbeiningar um útfyllingu launamiða og
launaframtals 1994. (RSK).
5. Virðisaukaskattur. Leiðbeiningar 1993 (RSK
11.19).
6. (Leiðbeiningar um meðferð virðisaukaskatts af
bifreiðum RSK).
7. (Skattalög. Maí 1993 RSK söluverð 1500-2000
kr.).
Inngangur.
Landbúnaðarframtal er nokkuð breytt frá fyrra
ári, en skattframtal er að mest óbreytt. Lagabreyt-
ingar urðu fyrir síðustu áramót og einnig áramótin
1992/1993 sem nú taka gildi. Þær helstu eru:
1. Aðeins 20% af þeirri greiðslu sem ríkissjóður
greiddi fyrir niðurfærslu á greiðslumarki í mjólk
færist til tekna.
2. Niðurfelling skulda við Stofnlánadeild landbún-
aðarins eða eftirgjöf færist sem tekjur í land-
búnaðaframtal. Ef þessar tekjur mynda hagnað
má fyrna loðdýrahús um þá upphæð.
3. Nokkur sveigjanleiki er á því hversu hratt eignir
má fyrna niður. Vélar má fyrna um 11 til 15%.
Þannig eru sett lágmörk og hámörk, sjá síðar.
4. Keyptan fullvirðisréttur á árinu 1993 má færa til
gjalda á fimm árum.
5. Söluhagnaður, sem dreift er á nokkur ár, er nú
hækkaður upp samkvæmt verðbreytingarstuðli.
Ef skuldabréf er selt, sem dreifingin byggist á,
verður að tekjufæra þann söluhagnað sem þá er
ekki búið að færa til tekna.
6. Aðstöðugjald er ekki lengur gjaldstofn.
7. Tekjuskattur 1993 er 34,3%.
8. Kaup á hlutabréfum koma til lækkunar á tekj-
um á persónuframtali. Hagnaðarvon er nú
minni en áður þar sem þessi kaup skapa nú
minni frádrátt.
9. Húsnæðissparnaðarreikningur kemur til með að
gefa lægri ávöxtun þar sem skattafsláttur er nú
20% og lækkar um 5 prósentustig á ári þar til
hann fellur niður 1996. Þannig verður skatta-
afslátturinn 15% á næsta ári.
10. Yfirfæranlegt tap fyrnist á 5 árum.
11. Tryggingargjald af landbúnaði, þar með talin
ferðamannaþjónusta, skógrækt og fiskeldi verð-
ur 3,05 % fyrir árið 1994. (Lágmark 1.830 kr. á
mánuði fyrir mann í fullu starfi).
12. Fasteignaleiga. Útleiga tjaldstæða, hótel- og
gistiherbergjaleiga verður virðisaukaskattskyld
árið 1994. (14%)
13. Virðisaukaskattur af sölu á heitu vatni og/eða
rafmagni til húshitunar, er nú 14%. Tók gildi 1
júlí 1993.
14. Virðisaukaskattur (14%) af innlendum bókum
og tímaritum tók gildi 1. júlí 1993. (Erlend
tímarit bera 24,5% VSK).
Færa skal inn reiknuð laun samkvæmt þeirri áætl-
un sem tryggingargjald er reiknað út frá og síðan
kemur fram tap eða hagnaður. Ef færð eru hærri
eða lægri reiknuð laun skal láta fylgja skýringar.
Reiknað endurgjald á grundvallarbúi er 1.286.496
kr. árið 1993.
Reikna þarf virðisaukaskatt af heimanotuðum af-
urðum og færa á virðisaukaskattsskýrslu. Ef útskatt-
ur er hærri en innskattur síðasta tímabil ársins, fær-
ist sú upphæð á landbúnaðarframtal sem skuld,
annars sem viðskiptakrafa. Endurgreiðslu á kjarn-
fóðurskatti skal telja fram á tekjuhlið landbúnaðar-
framtals. Ríkissjóður greiddi bændum 50 kr. á
hvern lítra mjólkur sem framleiðsluréttur var skert-
ur um. Aðeins skal telja 20% af því til tekna á
landbúnaðarframtali. Framleiðsluráð landbúnaðar-
ins sendir út afurðamiða yfir þessar greiðslur. Bún-
aðarfélag ísland sendir nú út launamiða vegna
framlaga samkvæmt jarðræktarlögum. Framlag til
búháttabreytinga færist til lækkunar á stofnverði
þeirra framkvæmda, sem eru samfara búháttabreyt-
114 FREYR - 6*94